Fálkinn - 13.12.1961, Side 49
lega beðið hann afsökunar. Albei't gat
ekki neitað því, að innst inni fylltist sál
hans feginleik yfii' þessum óvæntu og
auðveldu sættum.
— Ég þakka fyrir, sagði hann.
Síðan stóðu þeir um stund þegjandi
hvor á móti öðrum. Þeir voru báðir
vandræðalegir og vissu ekki, hvað þeir
áttu að gera eða segja. Loks herti Julian
sig upp og rauf þögnina:
— Já, drengur minn, sagði hann, og
röddin var nú öruggari en áður. — Ég
gerði þér rangt til.
Hann gekk að Albert og lagði hönd-
ina á öxl honum.
— Þú vissir ekki betur og varst ekki
fær um að dæma aðstöðuna. Þú ert svo
ungur ennþá og væntanleg eiginkona
mín . . .
Hann fann hvernig Albert hrökk við
og sleikti þurrar varir sínar.
— Væntanleg eiginkona þín? sagði
hann, eins og hann tryði ekki sínum
eigin eyrum.
— Já, Gabriela Holthuyes verður kon-
an mín. Ég ætla að kvænast henni.
Hann tók höndina af öxl drengsins og
færði sig ögn fjær honum.
Albert varð náfölur. Skelfingu lostinn
sá 'hann þegar í hendi sér, að meira
hafði hann ekki að gera þarna, úr því
að málum var svona háttað. Það mundi
ekki gagna neitt að ætla sér að koma
vitinu fyrir föður sinn. Hann hafði ekki
kvikað um hársbreidd frá fyrirætlun-
um sínum. Hann var ennþá staðráðinn
í að kvænast Gabrielu . . .
— Pabbi! Ég hélt . . . ég hélt . . .
— Hvað hélztu?
Julian Brandt horfði beint framan í
son sinn.
— Hélztu, að ég ætlaði að gefa hana
upp á bátinn?
Albert heyrði, hvernig hjarta hans
barðist ótt og títt. Honum var erfitt
um andardráttinn.
— Ég hélt, að þér hefði skilizt, að
þú gerir okkur öll óhamingjusöm, ef
þú gengur að eiga hana . . .
Julian Brandt yppti öxlum.
— Enginn getur fyrirfram sagt neitt
með vissu um hamingju eða óhamingju.
Það verður kannski dálítið erfitt í fyrstu.
En þetta lagast allt með tíð og tíma.
— Ég mun aldrei geta skilið þig, hróp-
aði Albert. — Ef þessi kvenmaður verð-
ur konan þín, þá förum við öll að heim-
an. (Framh. á nœsta blaði).
Gráklædda konan
Frh. af bls. 35
„sinni eigin höll“. En það varð úr, að
milli jóla og nýárs höfðu þau haldið
nokkrar stórveizlur fyrir vini og kunn-
ingja. En núna eftir nýárið var aftur
komin kyri’ð á í húsinu og allt auka
þjónustufólk farið. Þau höfðu ákveðið
að eiga nokkra náðuga daga saman á
herragarðinum, áður en Allan þurfti
að hvei'fa aftur til starfs síns. Daginn
áður hafði verið hringt til hans og
hann beðinn að koma til borgarinnar
í áríðandi erindagjörðum.
Hún ýtti gluggatjöldunum til hliðar
og leit út í garðinn. Það var niðamyrk-
ur og stormurinn æddi áfram og ekkert
stóðst hamfarir hans. Það var lítil snjó-
koma þessa stundina, en það sem hafði
fallið til jarðar, fékk vissulega ekki að
hafa langar viðstöður þar. í hvert
skipti sem snjókornin höfðu fundið sér
skjól, þreif vindurinn þau á loft og sneri
þeim aftur og aftur....
Alice gekk skjálfandi aftur á bak.
Hún hafði beðið um að fá teið sitt upp
til sín um tíu leytið, en nú ætlaði hún
að fara sjálf niður til Gerðu gömlu og
Jóhönnu og drekka það, — það var
ekki hugnanlegt að sitja hér uppi alein
í myrkrinu. Áreiðanlega var einnig
ljóslaust niðri og hún vai'ð að athuga
hvernig á því stæði. Hún greip stjak-
ann og gekk hratt að löngum gangi
sem lá að stiganum.
Alice stanzaði er hún heyrði raddir,
já margar raddir, berast á móti henni.
Þetta hljóð sem virtist vera frá mörg-
um mönnum, sem töluðu samtímis,
varð stöðugt hærra og nú sá hún að
dyrnar á forstofunni stóðu opnar í hálfa
gátt. Hún sá á stórt ljósker með brigð-
ulu ljósi. Hver var þarna á ferð? Hvers
vegna hafði ekki verið kallað á hana?
Skyndilega opnuðust dyrnar inn í
stofuna alveg og kona birtist. Hún
hreyfði sig hægt og með ei'fiðismunum
og hún var klædd einhverjum æva-
VÖRUHAPPDRÆTTI S.I.B.S.
VINNINGASKRÁ
1 2 vmningar á
14 — -
20 — -
190 — -
564 — -
11200 — -
1962
500.000.00 kr.
100.000.00 —
50.000.00 —
10.000.00 —
5.000.00 —
500.00 —
6.000.000.00
1.400.000.00
1.000.000.00
1.900.000.00
2.820.000.00
5.600.000.00
12.000 vmningar kr. 18.720.000.00
Tala útgefinna miða óbreytt. — Skattfrjálsir vinningar.
Verð miðans í 1. flokki er aðeins 40 krónur.
Dregið í 1. flokki 10. janúar, annars 5. hvers mánaðar.
Stórkostleg hækkun vinninga
á árinu 1962
Að meðaltali eru útdregnir
1000 vinningar mánaðarlega
Vi milljón króna vinningur
útdreginn í hverjum mánuði
FÁLKINN
47