Fálkinn - 13.12.1961, Qupperneq 55
aði, að jólasveinninn væri lií-
andi. Úr því sem komið var,
gat ég ekki annað en tekið
grímuna burt. Allir klöpp-
uðu saman lófunum og hlógu,
nema Ragnheiður, sem leit
út eins og hún væri hræði-
lega móðguð. Eftir þetta forð-
aðist hún mig allt kvöldið.
Ég skil ekki neitt.
Skilji það hver sem vill.
29. desember.
í dag spurði pabbi mig allt
í einu, hvað það væri, sem
ég skrifaði svo ákaft niður.
Ég sagðist vera að punkta
niður athugasemdir.
— Athugasemdir? spurði
pabbi. Leiðinlegt, hvað gam-
alt fólk er gleymið. Ég sagð-
ist vera að hripa niður hjá
mér athugasemdir fyrir rit-
gerðina, sem við ættum að
gera fyrir nýárið og Ellinger
lektor hafði beðið okkur um
að hripa niður hjá okkur.
— Athugasemdir? spurði
mamma.
— Hvað heitir ritgerðin?
spurði pabbi.
—- „Jólin heima“, svaraði
ég-
— Þú skrifar sko ekki staf
um það, sem gerðist hér, sagði
mamma og leit til mín með
ógnandi svip um leið og hún
rétti sig upp úr stólnum.
— Nú en er þetta ekki
heimilið mitt? spurði ég.
— Ha, ha rumdi í pabba.
Hvað á hann við með þessu?
— Þú verður að skilja, að
þú mátt ekki taka efnið allt
of bókstaflega, sagði mamma
með áherzlu. Auðvitað er átt
við norsk jól eins og þau eru
almennt.
Pabbi sagði, að stílar ættu
ekki að vera skýrsla.
— Ritgerð á næstum því
að vera eintómur skáldskap-
ur, sagði mamma.
— En reist á breiðum og
raunsæjum grundvelli, sagði
ég. Ég hafði oft heyrt Elling-
er lektor segja þessi orð.
— Komdu hérna með at-
hugasemdirnar, svo ég geti
litið á þær, sagði pabbi.
Ég vék mér undan og
spurði hvort sá tími væri ekki
kominn, sem þau tækju sér
miðdegislúr.
— Þetta hefði átt að vera
pabbi, sem svaraði pabba sin-
um á þennan máta, sagði
mamma og lagði sig aftur
niður í sófannn. En við höf-
um, guði sé lof haft gleðileg
jól, sem vissulega verður við-
urkennt.
Pabbi lagði dágblaðið yfir
höfuðið og sagði, að við þyrft-
um að herða á sultarólinni.
Mamma hallaði aftur aug-
unum og sagði, að það þýddi
ekkert að tala framar um
gjafir.
— Getum við ekki átt
gleðileg jól án gjafa, sagði ég.
— Pu- u- u- h, andvarpaði
mamma.
Þrátt fyrir allt, er ákaflega
fallegt úti svona í hálfrökkr-
inu, þegar á snjóinn fellur
bláleit slikja og himinninn er.
grænn. Það er sjón, sem seint
gleymist og útsýnið er enn
dásamlegra, þegar fölleit birt-
an frá húsunum kastast út á
snjóbreiðuna. Þetta er allt
saman eins og í skáldsögu. •
Það er komin annarleg ang-
an af grenitrénu. Og ekkert
er lengur ætilegt í jólapok-
unum. En á morgun fer ég á
skíði með Ragnheiði Martin-
sen. Það var hún, sem hring-
di. Af stelpu að vera, er hún
geysilega góð á skíðum.
Ef til vill er hún við mitt
hæfi.
Kæri Astró.
Mig langar til að vita eins
mikið og hægt er um framtíð-
ina. Ég er fædd klukkan 10.30
síðdegis. árið 1939, á Suður-
landi. Hvers konar manneskja
er ég eiginlega? Ég hef mjög
gaman af að dansa og fer mik-
ið á böll. Ég hef lítið unnið
utan heimilis, iðulega verið í
skólum. Hvernig er skapgerð
mín? Hvenær giftist ég, á ég
mörg börn? Er útlit fyrir að
ég verði heilsuhraust? Hvað
ástinni viðvíkur, þá hef ég
ekki orðið alvarlega ástfang-
in enn. Nú er ég með strák,
sem einnig er fæddur undir
Bogmannsmerkinu. Vona að
þetta birtist sem fyrst. Gjörið
svo vel og sleppið fæðingar-
degi.
Virðingarfyllst,
Sonja.
Svar til Sonju.
Þú fæddist þegar Sólin var
26° í merki Bogmannsins. -—
Þeir sem fæddir eru á þess-
um tíma árs, eru ákaflega
framkvæmdasamir óttalausir
og ákveðnir við allt, sem þeir
hafa fyrir stafni. — Þeim er
gjarnt til að vera of ákveðnir
í oi’ðum og bersögli og eru
þeir oft rangdæmdir fyrir
gagnrýni sína og afla sér ó-
vina. Þeir beita allri athygli
sinni að því, sem þeir eru að
gera þá og þá stundina, og
virðast ekki sjá neina aðra
leið en sína, unz þeir hafa
þrautreynt hana. Þeir eru
venjulega mjög heiðvirðir, en
einkum er þeir verða þess var-
ir að aðrir bera óskorað traust
til þeirra. Þeir eru óvægilega
sannsöglir, hafa óbeit á alls
konar sviksemi og fletta ofan
af hvers konar tilraunum,
sem gerðar eru til þess að
svíkja aðra, jafnvel þótt þeir
vinni með því gegn hagsmun-
um sínum. Tveir ólíkir flokkar
manna eru fæddir undir þessu
merki. Annar flokkurinn hef-
ur afar háleitar lífsskoðanir
og verður óðara vel við, ef
beðið er um aðstoð til góð-
verka, en venjulega eru þeir
örlátari við góðgerðarstofnan-
ir heldur en við einstaklinga,
því þeir eru flestir tortryggn-
ir á einstaklinga og svo
hræddir um að verða blekktir
með sennilegri sögu, að þeir
vilja heldur senda beininga-
manninn með bréfspjald til
einhverrar góðgerðastofnunar
sem þeir styrkja, heldur en
að taka ábyrgðina á sínar
herðar. Þetta er eitt það helzta
sem sagt er um sólmerki þitt.
Hins vegar eru talvert erfið-
ar afstöður milli Mánans, Sól-
arinnar og Neptúnusar. Þess-
ar afstöður benda til þess að
þú verðir tvígift og að þú
þurfir oft að dvelja annars
staðar heldur en á heimili
þínu, sakir skapgerðargalla
hjá þér. Ég á ekki við að þú
þurfir að dvelja á spítala eða
slikt. en þetta kemur fram
sem aðskilnaður maka um
lengri eða skemmri tíma í
einu. Þú mátt vara þig á að
deila ekki á fólk og sízt af
öllu að reyna klækjabrögð,
því þú getur hengt þig í eigin
snöru hvað það áhrærir. —
Reyndu að nálgast sérhvert
vandamál með gætni og skiln
ingi og forðastu sjálfsblekk-
ingar. Þessar afstöður minnka
einnig mjög lífsorku líkam-
ans þannig að fólk með þess-
ar afstöður ætti ekki að reyna
of mikið á sig og forðast
þreytu. Spurningunni um hve-
nær þú giftist mundi ég svara
með því að afstöðurnar næsta
ár muni leiða til giftingar. Um
barneignir mundi ég telja,
að þú eignaðist þrjú, þar sem
þú ert ekki verulega frjósöm.
Ég mundi mæla með þessum
pilti, sem fæddur er undir
merki Bogmannsins, en
heppilegra hefði verið að þú
hefðir gefið mér fæðingardag
og ár hans. Einnig láðist þér
að geta nákvæmlega um fæð-
ingarstað þinn en það er nauð-
synlegt. Ef ég mætti ráðleggja
þér eitthvað í ástamálunum,þá
mundi ég hiklaust ráðleggja
þér að bíða í þi'jú til fjögur
ár því þá gengur Sólin yfir
Venus sem er pláneta ástar-
innar og undir þeim áhrifum
mundirðu hafa það bezta upp
úr ástamálunum ,sem þú hefð-
ir nokkurn tíma kost á. Hins
vegar eru afstöðurnar næsta
ár mjög heppilegar til þeirra
hluta og ef til vill ekki á-
stæða að bíða. En sem sagt
betra eftir þrjú til fjögur ár.
Þitt er kjörið.
FALKINN
53