Fálkinn - 13.12.1961, Blaðsíða 60
pað er tolulega sannað
að...........
bíleigendur sem fá sér heldur nýja FORD-dieselvél
í bílinn STÓRSPARA peninga. FORD-dieselvélin
fæst bæði 4 og 6 strokka og passar í flestar tegundir
vörubíla og fólksbíla. — FORD-diesel er notuð í
ólíkustu gerðir bíla, jafnt evrópiska sem ameríska.
FORDUMB □ (D l O
SVEIIMIM EGILSSOWf
Bergsveinn Olsen
Framh. af bls. 23
— Áfram, sagði Jón.
Hann sneri hestunum og hélt áfram
að plægja. Þá stóð Soffía Preutz allt í
einu fyrir framan hann. Hún var svart-
klædd og leit flóttalega í kringum sig,
rétt eins og hún væri hrædd um, að
einhver veitti henni eftirför. Það var
ekki bara dans á rósum, að vera rik
og fín hefðarjómfrú, það hafði Jón Bön-
stu rekið sig á oftar en einu sinni..
Hann lagði í flýti þrjá fingur á der-
húfima sína og heilsaði Soffíu á her-
mannavísu. Raunar var hún nú ekki
liðsforinginn sjálfur, en það var sama.
Soffía var fín og virðuleg, eins og faðir
hennar.
— Hefurðu tíma til að tala dálítið
við mig, Jón, sagði hún.
— Til þjónustu reiðubúinn, sagði Jón
og batt taumana við plóghornin.
Jómfrú Soffía leit enn 1 kringum sig,
hrædd og flóttaleg.
— Hér er svo votlent, sagði hún. —
Ég veit að það fer bleyta í gegnum
sólana. Getum við ekki farið þarna
upp og sezt?
Hún benti upp á skógarjaðarinn.
— Eins og yður þóknast, sagði Jón.
Einhvern veginn gat hann ekki losað
sig við hermannakurteisina, enda þótt
hann fyndi að þetta væri einum of mik-
ið af því góða við kvenfólk — jafnvel
•þótt það væri virðuleg jómfrú.
Soffía gekk á undan og stiklaði á
þúfnakollunum, en Jón stikaði á eftir
og óð í votlendinu. Hann grunaði hálft
í hvoru hvert erindi Soffíu væri, en
þá var eftir að vita hvort hann gæti
huggað hana. Það gat þýtt eitt og ann-
að að Billinn skyldi ekki koma um
síðustu jól. Hann gat eins vel legið með
brotna hauskúpu undir torfi í einhverri
rrrýri, rændur eins og hver annarr auð-
vírðilegur farandsali. En hann trúði því
nú varlega, því að satt að segja hefði
hann gaman af að sjá þann náunga,
sem hefði getað barið Bergsvein Bille.
Ef það var eitthvað, sem Bergsveinn
var. maður til, þá var það að slást.
Raunar gat verið, að hann hefði verið
skotinn í bakið . . . en . . . Jón Bönstu
klóraði sér bak við eyrað. Hvað átti
hann að segja við jómfrú Soffíu, þessa
örvæntingarfullu sál?
— Við. setjumst hér, Jón, sagði Soffía.
— Hér getur enginn séð okkur, — er
það?
— Það skyldi maður halda, sagði Jón
og svipaðist um eftir steini.
Þetta var hér um bil eins og á sokka-
bandsárunum með stefnumótum og alls
konar fjasi og þrasi.
Soffía tók vasaklút úr tösku sinni og
breiddi yfir þúfu áður en hún settist,
nokkuð sem Jón sá strax, að var bara
fyrir þá, sem voru af virðulegu slekti.
58 FÁLKINN
Hún tók upp visið strá og fór að
vöðla því saman og brjóta það og Jón
svipaðist um eftir einhverju til að dunda
sér við, fann mosa og neri honum milli
handanna.
— Nú er langt síðan þið komuð frá
vígvellinum, Jón Bönstu, sagði Soffía.
— Það hefur haldizt friður í sjö ár
núna í þessum mánuði.
— Sjö löng friðarár, stundi hún, tók
sig síðan á og bætti við: — Við meg-
um þakka guði fyrir að sverðið fær
að hvíla í friði. En tíminn getur
stundum verið langur að líða, þegar
friður ríkir. En fyrir ykkur, sem voruð
hermenn, hlýtur það að vera dýrlegt
að fá að vera í friði og spekt.
— Stríðið tók enda, sem betur fer.
Jón Bönstu sat og minntist margs frá
stríðsárunum, sem ljómi fjarlægðarinn-
ar hafði smátt og smátt færst yfir.
Og þarna sátu þau langa hríð þegj-
andi. Hún dró það stöðugt, sem hún
vildi segja.
— Bergsveinn kom ekki um þessi jól,
sagði hún loks.
Fölar kinnar hennar urðu heitar og
rjóðar. Aldurinn hafði ekki færzt yfir
jómfrúna á liðsforingjasetrinu án þess
að skilja eftir sig merki.
— Hann er víst í langferð núna, sagði
Jón.
— Það er víst.
— Hann vantar nokkra silfurdali enn,
gæti ég trúað.
Hann sá, að hún brá knipplingavasa-
klút upp að hvörmum 'hér og að hún
var auðsjáanlega í mikilli geðshræringu.
Jón Bönstu kenndi 1 brjósti um hana.
— Ó, kæri vinur. Það gagnar hon-
um ekkert. Hann eignast aldrei svo
marga silfurdali. Við verðum að segja
honum það. Vilt þú gera það?
Þessu svaraði Jón Bönstu ekki.
— Bergsveinn getur jú ekki verið að
eltast við silfurdali allt sitt líf. Þetta
var bara spaug hjá mínum ágæta föður.
Það hlýtur þú að skilja?