Fálkinn - 24.10.1962, Blaðsíða 6
VATNS OG HÖGGVARIN ÚR
3€ikið úrval
FRAIMCH IHICHELSEN
ÚRSMIÐAVINNUSTOFA
Laugavegi 39 — Reykjavík.
Kaupvangsstræti 3 — Akureyri.
Ef eitthvað þarf að lúwna
þá lintir UIIU allt
\ y
UMtU línt þtfkhja allir
Einkaumboð:
H. A. Tulinius, heildverzlun
6 FÁLKINN
Stjörnuspá og
hjónaband.
Herra ritstjóri. — Það, sem
knýr mig til að skrifa ykkur
er ekkert spaug, hvorki meira
né minna en heill hjónabands-
ins. Þannig er mál með
vexti, að ég eða við hjónin
fyllum þann hóp, sem kaupir
blað yðar reglulega og hing-
að til hef ég í alla staði verið
mjög ánægður með þetta blað
allt þar til fyrir skömmu.
Svo er, eða svo var, mál
með vexti, að eitt sinn í sum-
ar höfðum við Steini vinur
minn planað veiðiferð austur
fyrir fjall eina helgina. Þetta
virtist allt vera í stakasta
lagi, og yður má sjálfum ljóst
vera að slíkar ferðir eru ekk-
ert til að gera veður út af —
eða svo hélt ég. En þá dynur
þetta yfir mig eins og þruma
úr heiðskíru lofti. Þannig var
nefnl., að í Flkanum, er út
kom fyrir þessa áðurnefndu
helgi, var sagt í stjörnu-
spánni, — konan mín les hana
alltaf fyrst — að ég mundi
lenda í skemmtilegu ástaræv-
intýri um þessa væntanlegu
helgi. Og þar með var draum-
urinn búinn. Ég fékk sem sé
ekki að fara. Við þetta varð
ég að sætta mig að svo
komnu máli, þótt mér félli
það ekki sem bezt.
Nú er næst þar frá að segja,
að sumarið líður svo sem við
er að búast og eina helgina
skreppum við Steini, vinur
minn, austur yfir Fjall í
veiði. Þetta var ákaflega
skemmtileg ferð og í alla staði
vel heppnuð hvað veiði snerti.
Það vil ég taka hér fram, að
ekki vildi ég fara að Hvoli á
dansleik, þótt Steini væri eitt-
hvað að tala um það.
Nú er það næst í þessu máli,
að í næsta Fálka á eftir, stend-
ur í stjörnuspánni, að stúlk-
an, sem ég hafi kynnzt um síð-
ustu helgi muni verða mjög
á vegi mínum. Það var og.
Þetta verkaði eins og sprengja
inn á mitt heimili. Allt fór
upp í loft og ég settur á bedda
fram í eldhúsi um nætur, en
var beðinn rxm að halda mig
sem mest utan heimilis um
daga. Þetta bjargaðist þó að
lokum með sæmilegum hætti
og átti tengdafaðir minn þar
drjúgan hlut að máli.
En, herra ritstjóri, það er
engu líkara, en yður þarna í
blaði yðar sé að einhverju
leyti í nöp við mig, því að
þegar þetta er allt um garð
gengið, þá springur stóra
bomban. Nú ekki alls fyrir
löngu dembið þér því yfir
mig í stjörnuspánni, — og það
með drýldni og semingi, að
stúlkan frá í sumar muni
reynast mér ákaflega eftirlát
og jafnvel verða konan mín.
Og nú er ég kominn á bedd-
ann aftur og hjónaskilnaður
fyrir dyrum.
Viljið þér nú ekki, ritstjóri
góður, taka aftur fyrri um-
mæli og segja, að þetta sé allt
á misskilningi byggt. Að öðr-
um kosti neyðist ég til að
segja upp blaðinu og höfða
mál á hendur yður, því ég
hef nægar sannanir fyrir sak-
leysi mínu.
Virðingarfyllst,
Einn ofsareiður.
Svar:
Fyrst viljum viö leiörétta
þann misskilning, sem kemur
fram lijá bréfritara, aö ]baö sé
ritstjórinn sjálfur, sem spái í
stjörnurnar. Stjörnuspámaöurinn
segir, aö stjörnuspár beri aö
taka eins og veöurspár og ],aÖ
sé mest undir manninum sjálf-
um komiö, livernig spáin rœtist
Annars pykir okkur bréf h ins
ofsareiöa bera vott um, hve trú
á stjörnuspá er almenn hér á
landi, en viö getum huggaö hann
meö því aö þar sem spáö er
ástarœvintýrum, er einkum átt
viö ungt fólk eöa þá ógift, þó
aö hitt komi líka fyrir aö giftar
konur og kvæntir menn lenda í
smávegis ævintýrum. Viö ráö-
leggjum því „ofsareiöum“, aö
segja blessaöri konunni sinni frá
þessu og reyna aö sjötla málin.
— Hins vegar ku þaö styrkjn
bakiö aö sofa smátíma á bedda.
Dyggðir á Skaganum.
Úrklippusafnið nýtur geysi-
legra vinsælda og blaðinu
berast tugir bréfa með þeim.
Stundum senda hagyrðingar
okkur vísu um klippurnar og
hér er ein slík:
Laxveiðiundrið um landið er
frægt.
því lýst var með fjálglegum
orðum,
en kvennanna þokki og
kartöfurækt
voru kostir á Skaganum
forðum.
Dulvin.