Fálkinn - 24.10.1962, Blaðsíða 39
— Hefur verið keppt í judo hér á
landi?
— Jú, einu sinni er hægt að segja,
og þó var það kannski frekar sýning
en keppni. Hingað kom danskur meist-
ari, Bernhard Paul (1. dan.) og dvald-
ist i einn mánuð. Hann keppti einn
gegn átta mönnum.
— Og hvernig fór?
— Hann hafði það.
— Æfir kvenfólk judo?
— Jú, mikil ósköp. í fyrra æfðu sex
hjá okkur, en árið þar áður voru þær 20.
— Segðu okkur að lokum: Hvert er
álit þitt á íslenzku glímunni. Heldurðu
að hún eigi sér lífsvon eða að judo
muni útrýma henni?
— Ég mundi telja það mikinn skaða,
ef við hættum að leggja stund á íslenzku
glímuna. Það getur farið vel saman
að æfa bæði judo og íslenzka glímu.
Ég get sagt ykkur til gamans, að einu
sinni reyndi ég íslenzka glímu við er-
lenda judo-menn — en fékk því miður
slæma útkomu. Þótt ég beitti okkar
glímutökum, virtust þau ekki trufla
þá neitt. Svo ólíkar eru þessar tvær
glímur, þótt þær séu á margan hátt
skyldar. Ég mundi segja að íslenzku
glímunni ólastaðri, að judo væri fjöl-
þættari og hefði meiri þjálfunarmögu-
leika.....
NESTLE hárlagn-
ingarvökvinn held-
ur hári yðar í
í'jslum skorðum.
NESTLE er úr
fyrsta flokks
efnum.
NESTLE hárlagn-
ingarvökvann
getið þér bœði
hrist í hárið og
greitt hann í
það.
SÖLUUMBOÐ:
— Fyrirgefið, eruð þér ma’ður-
inn, sem átti að vekja klukkan
sjö til að ná í lestina.
— Já.
— Þá getið þér sofið áfram, lest-
in er farin.
— Hvað ertu að borða?
— Gamlan skófatnað.
___ ????
— Já, sviðalappir.
— Húsið, sem ég keypti af yð-
ur er fullt af músum. Hvernig á
ég að fara að því?
— Þér skuluð bíða átekta og
vera rólegur, — ef fyrrverandi
eigandi gerir ekki kröfur til þeirra,
þá getið þér talið yður eiga þœr.
— En hvað þú ert fín, mamma,
þú ert alveg eins og kvikmynda-
stjarna.
— Finnst þér ekki pabbi þinn
fínn líka.
— Jú, hann er alveg eins og
veitingaþjónn.
en sjáið þér til. í þetta
skipti skal ekkert hindra mig frá,
að segja yður meiningu mína um
framkomu yðar, herra minn, þér
eruð sá mesti and...
— Þetta er sonur þinn — það
get ég séð, — hann líkist þér upp
á hár.
STERLIIVG H.F.
Höfðatúni 10 — Sími 13649 — 11977