Fálkinn


Fálkinn - 24.10.1962, Síða 30

Fálkinn - 24.10.1962, Síða 30
liveiijijóAiii í Framhald af bls. 26. inn. Að þessum 2 umf. loknum er mynstrið prjónað (nema á 6 fremstu 1., sem eru alltaf prj. sl.). Prjónið beint þar til síddin er 10 cm.., þá er fellt af fyrir handveg í hliðinni 3 1. og síðan 1 1. lausar. Prjónið beint þar til hand- vegurinn er nál. 8 cm., þá eru garða- prjónslykkjurnar 6 settar til geymslu og síðan fellt af fyrir hálsmáli 1X3 1., 2X2 1. og 3X1 1. Þegar handvegurinn er nál. 10 cm. er fellt af fyrir öxl 3X4 1. og 5 1. Á þennan boðung eru gerð hnappagöt um leið og prjónað er á þennan hátt: Prjónið 3 1. af garðaprjónskantinum, fellið af 2 1., prjónið út umf. og fitjið svo upp 2 1. í næstu umf. fyrir ofan þær, sem voru felldar úr. Búið til fyrsta hnappagatið nál. 1% cm. frá brún, setjið næstu 3 hnappagöt með jöfnu millibili. En það 5. og síðasta á að vera á hálslín- ingunni, þegar hún er Vz cm. breið. Hægri boðungur prjónaður sem speg- ilmynd af þeim vinstri, nema hnappa- götunum er sleppt. Getur oft verið betra að prjóna þennan boðung á undan, svo hægt sé að mæla nákvæmlega fyrir hnappagötunum. Ermar: Fitjið upp 40 1. á prj. nr. 2Vz og prjónið IV2 cm. brugðingu (1 sl. 1 br.). Sett á prj. nr. 3 og prjónið 2 umf. slétt, aukið jafnt út í fyrri umf. svo 47 1. séu á. Prjónið mynstrið þar til síddin er 2V2 cm. Nú er fellt af fyrir ávala 1 1. í byrjun hverrar umf., þar til 17 1. eru eftir, sem felldar eru af í einu. Frágangur: Saumið axlarsaumana saman, takið upp nál. 67 1. frá réttunni í hálsinn á prj. nr. 2V2 (6 1. hvorum megin taldar með). Prjónið brugðningu (1 sl., 1 br.). Búið til seinasta hnappa- gatið eftir V2 cm. Fellt af þegar líningin er IV2 cm. breið. Peysan saumuð saman og hnappar á hægri boðung. Buxnasamfestingurinn: í hann þarf nál. 175 g. af garni. Framstykkið: Byrjað milli fóta. Fitjið upp 13 1. á prj. nr. 3 og prjónið 2 umf. slétt og síðan mynstrið. Hallinn fyrir skálmina búinn til á þann hátt að auka út um 3 1. í byrjun fyrstu 20 umf. og 16 1. í byrjun næstu 2 umf. Prjónið því- næst mynstrið beint á öllum 105 L, þar til síddin er nál. 22 cm., mæld á miðju, þá er allt sett á prj. nr. 2V2 og prjónuð brugðning (1 sl., 1 br.) í mittið, tekið úr í 1. umf. svo 55 1. séu á. Þegar brugðn- ingin er 2Vz cm. er mynstrið aftur prjón- að á prjóna nr. 3, en þegar prjónaðir hafa verið 2 cm. eru 5 fyrstu og síðustu 1. prjónað sl. á öllum umf., svo myndist garðaprjónskantur hvorum megin. Og í 3. hverri umf. er ein 1. tekin úr hvor- um megin innan við garðaprjónskant- inn. Þegar 43 1. eru eftir er haldið áfram, án þess að tekið sé úr, og nú eru 31 1. í miðjunni prjónaðar sem garðaprjón auk kantanna. Það er því aðeins 1 1. hvoru megin innan við garðaprjónskant- ana, sem er prjónuð sem sléttprjón. Þegar 8 umf. hafa verið prjónaðar á þennan hótt, eru 21 1. í miðjunni felldar af í næstu umf. og síðan lokið við að prjóna hvora hlið fyrir sig. Þegar prjón- aðir hafa verið 4 cm. er prjónað 2 cm. garðaprjón á öllum 11 L. Fellt af. Bakið: Prjónað eins og framstykkið. 30 FÁLKINN Frágangur: Saumað saman í hliðun- um og skrefinu. Hnappar og hneslur saumað á axlarsprotana. Takið upp frá réttunni nál. 80 1. á hvorri skálm, skipt jafnt á sokkaprjóna nr. 2Vz og prjónið brugðninga í hring (1 sl., 1 br.). Fellt laust af eftir 5 cm. Brotið í tvennt inn að röngunni. Saumað fast. Tilliiinii’ eftir .. . Framhald af bls. 11. hefur sveitin aðgang að öðrum bílum svo sem Guðmundar Jónassonar og Sig- urgeirs Geirssonar. Þá er Fjarskiptadeild. Hún sér um talstöðvar og að önnur skyld tæki til fjarskipta séu í lagi. Auk þess þjálfar hún meðlimi leitarflokka í meðferð þessara tækja. Meðlimir þessarar deild- ar eru útvarpsvirkjar. Þá eru það leitarflokkarnir, sem sam- anstanda af 10 til 15 meðlimum. Hlut- verk þeirra er sjálf leitin á landi. Þeir eru þjálfaðir með ýmsum hætti sam- eiginlega með hinum deildunum. Með- limir þessara flokka eru menn í ýmsum störfum, trésmiðir járnsmiðir, lögreglu- menn, skrifstofumenn, verzlunarmenn, verkamenn o. s. frv. Æfingar eru hálfsmánaðarlega. Þar er kennd og æfð Hjálp í viðlögum sem læknir sveitarinnar, Úlfar Þórðarson, kennir. Þá er kennt að ganga frá slös- uðum mönnum, hnútar og annað þess háttar. Meðferð áttavita og það sem að því lýtur. Þá er kennt hvað beri að gera þegar komið er að flugvél. Hvar beri að reyna inngöngu og hvað gera skuli þegar inn er komið. Sveitin hefur í þessu augnamiði teikningar af þeim vélum sem hérlendis eru í umferð. Þá eru meðlimum sýndar vélarnar. Er það gert í samvinnu við flugfélögin og varn- arliðið á Keflavíkurflugvelli. Þegar útkall er og hringt er í mann og hann beðinn að mæta er ætlast til, að hann hafi tilbúinn allan nauðsynleg- an útbúnað og mat til sólarhrings. Þeg- ar út á flugvöll er komið hefur hver flokkur sinn skáp þar sem allur hans útbúnaður er geymdur. Það tekur mjög stuttan tíma að koma þessu í bílana og um það bil tuttugu mínútum eftir að fyrsta hringing hefur átt sér stað, get- ur leitin verið hafin. Þá er það skipulagsnefnd leita. Henn- ar hlutverk er að stjórna sjálfri leit- inni, ákveða hvaða svæði skuli leitað og þess háttar. Þá eru starfandi deildir víða úti um land. Á Akureyri, Hellu á Rangárvöll- um, Eyjafjalladeild og svo í Vík í Mýr- dal. Þær eru í nánu sambandi við stjórnina í Reykjavík, en hún sér þeim fyrir kennslu og útbúnaði. Þá hefur sveitin lagt kapp á að hafa samvinnu við menn á ýmsum stöðum á landinu, sem vegna þekkingar sinnar á staðhátt- um geta tekið að sér að vera leiðsögu- menn. Þótt öll vinna sem af hendi er lát- in í sambandi við þessa sveit sé sjálf-

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.