Fálkinn - 24.10.1962, Page 7
Hagyrðingar mættu gjarnan
senda okkur vísur eSa gam-
ankviðlinga um leið og þeir
senda botna í vísnasam-
keppnina. Ef okkur berst
snjall gamankviðlingur mun-
um við borga góð ritlaun fyrir
hann.
Skemmtilegar
ferðasögur.
Kæri Fálki. — Ég hef haft
mikið gaman af þessum
ferðasöguþáttum frá Haiti eft-
ir þennan Ole Rosendahl. Það
er rithöfundur, sem er að
mínu skapi. Hann hefur
kímnigáfu —- það er ekki hægt
að segja um þá marga — og
svo ágæta frásagnargáfu og
glögg einkenni fyrir sérkenn-
um fólks. Ef þér viljið gera
mér — og vonandi fleirum —
lesendum til geðs þá ættuð
þið að kosta kapps um að
birta fleiri slíka þætti.
Með beztu kveðju.
«
Bílstjóri.
Svar:
Þaö er erfitt aö fá góða feröa-
söguþætti frá fjarlœgum þjóöum.
en viö viljum benda bréfritara
á aö lesa greinar Brlends Har-
aldssonar, sem skrifar fyrir
Fálkann greinar um fjarlæg lönd
og ibúa þeirra.
Gömul og góð vísa.
Kæra pósthólf. — Mig lang-
aði til þess, að þið birtuð fyrir
mig vísu, en ég kann ekki
nema fyrstu hendinguna. Hún
er svona: ,,Þó að kali heitan
hver, . . .“ Svo langar mig til
að vita eftir hvern hún er.
Gógó.
Sva.r:
Það er okkur mikil ánœgja
aö birta þessa vísu, sem eignuð
hefur verið Vatnsenda-Rósu.
Þó aö kali heitan lwer
hylji dali jökull ber
steinar tali og allt hvað er
aldrei slcal ég gleyma þér.
Gamli góði Clark.
Kæri Fálki. — Get ég eitt-
hvað gert að því, þótt ég
væri ofsahrifin af Clark sál-
uga Gable? Ég veit, að þið
svarið þessari spurningu
neitandi, af því að þið vitið
hve sumar konur eru veikar
fyrir sætum leikurum. Ó hann
vár svo kjút hann Clark.
Finnst ykkur ekki synd, að
myndir með honum skuli
ekki koma oftar í bíó? Það
finnst mér og það þykir hin-
um stelpunum í sauma-
klúbbnum líka, — fyrirgefðu
að ég kalla okkur stelpur, —
uss við. erum allar yfir þrí-
tugt, og ein meira að segja
að verða fertug og næstum
orðin amma. Ég vona, að þið
birtið þetta ekki því að þetta
eru einkamál, sem ekki eiga
að fara lengra, þótt þau séu
skrifuð aftan á blessaða kross-
gátuna ykkar. Svo finnst mér,
að þið ættuð að birta grein um
hann Clark Gable og konurn-
ar hans fimm og litla sæta
strákinn, sem hann átti rétt
áður en hann dó. Setjið mynd
af honum á forsíðu. Ó hann
er svo kjút. Ég er alveg
kreizí í hann.
Abba-labba-lá með sjö tær.
Svar:
Viö vonum, aö Abba-labba-lá
fyrirgefi okkur, aö viö birtum
liiö skemmtilega bréf hennar.
Annars eru þær orönar svo
margar greinarnar, sem fólk er
aö biöja okkur um að birta, aö
þaö er ekki nokkur leiö aö veröa
viö beiöni þess. Blaöiö mun
þræöa hinn gullna meöalveg og
reyna aö veröa viö óskum flestra,
svo aö lesendur geti álltaf veriö
ánægöir meö efni blaösins. Aftur
á móti viljum viö hvetja fóll:
aö skrifa okkur um hugöarefni
sín og segja okkur sitt álit á
hlutunum.
Langt í strætisvagn.
Heill og sæll, Fálki góður.
— Það er sjaldan, sem ég
sezt niður og tek mér penna
í hönd, enda hef ég öðru að
sinna við húsmóðurstörfin.
Ástæðan til þess að ég skrifa
ykkur er su, að ég bý í einu
úthverfa bæjarins, sem einna
helzt verður útundan hvað
þægindi snertir. Það er kallað
Blésugróf í daglegu tali en
á kortinu heitir það Breið-
holtshverfi. Ég bý nokkuð
ofarlega í þessu hverfi og
það, sem ég ætlaði að minna
á, er að strætisvagn stanzar
svo langt frá, að maður er
korter að ganga þangað og
yfir bersvæði er að fara, svo
að þið getið nærri hvernig er
að ganga þetta í köldum
vetrarveðrum. Húsin, sem
þarna standa eru nokkuð
mörg og ná alveg að stíflunni
við Árbæ. í þessum húsum
býr töluverður hópur manna
og er það all bagalegt, að
strætisvagn skuli ekki ganga
nær. Með beztu þökk fyrir að
koma þessu á framfæri.
Húsmóðir.
NÝTÍZKU
HÚSGÖGN
ELDHOSSETT
FALLEG
VÖNDUÐ
ÖDYR.
SENDUM UM
ALLT LAND.
HNOTAN
HIJSGAGNAVERZLUN
Þórsgötu 1 — Sími 20280.
• Byrjið daginn með DIAL
• Endið dagiirn með DIAL
Heildsölub. KRISTJÁN Ó. SKAGFJORÐ
REVKJAVÍK
FÁLKINN 7