Fálkinn


Fálkinn - 24.10.1962, Side 10

Fálkinn - 24.10.1962, Side 10
TILBÚNIR EFTIR 20 MÍNÚTUR Myndin hér að ofan er af hinu sögulega Geysisslysi, en upp úr því var flug- björgunarsveitin stofnuð. Hér á móti er sveitin í Almannagjá á leið til hvíta- sunnuæfingar. Myndirnar hér að neðan (talið frá vinstri). Æfing með þyril- vængju af Keflavíkurflugvelli. — „Bjössi kokkur“ (Björn Benediktsson) er fast- ur matsveinn hjá sveitinni. — Æfing í meðferð slasaðra og loks Sigurður Waage varaformaður F. B. S„ sýnir okkur eina af talstöðvum f jarskiptadeildar- innar. og ferðalagið erfitt. Gert var ráð fyrir, að leitarflokkurinn, sem var vel útbú- inn, myndi koma að Sandfelli um kl. 10-—11 í kvöld, en þaðan að þeim stað, sem flugvélin er norðan Kötlugjár, er allt að 4 klukkustunda ganga. Héðan úr Vík lagði Brandur Stef- ánsson af stað á snjóbíl sínum. Hann ætlaði að reyna að komast alla leið á bílnum og leggja upp á jökulinn norð- an af Sólheimum, en þar er jökullinn greiðastur uppgöngu og um 18 km leið frá slysstaðnum. Með honum voru fimm menn. Veðurspá var ekki hag- stæð.“ 20. des. Vík í Mýrdal i gærkvöldi: „Flak bandarísku flugvélarinnar sem fórst á Mýrdalsjökli síðastl. fimmtudag er enn ófundið. Veður hefur mjög haml- að leitinni en einnig tókst mjög illa til við staðsetningu flaksins. Leitarflokkur- inn sem fór upp á jökulinn síðastliðna nótt, fékk þær upplýsingar, að flakið væri norðan Kötlugjár. Svo er ekki. Flakið er í um 1100 m hæð svo sem miðja vegu milli Kötlu og suðurbrúnar Mýrdalsjökuls. í kvöld komu aftur til byggða leitar- flokkar þeirra Magnúsar Þórarinssonar og Ragnars bónda í Höfðabrekku og flokkur sá, sem Jón Oddgeir Jónsson slysavarnarfulltrúi stjórnar. Enn er á jöklinum Brandur Stefánsson og félag- ar hans, sem fóru upp á jökulinn í snjó- bíl. Við þá hefur ekkert samband ver- ið haft enda engin talstöð í bílnum. Þeir munu halda að flakið sé norðan Kötlugjár. í kvöld hefur verið ákveðið að leit- arflokkur sá frá Flugbjörgunarsveit- inni, sem Árni Stefánsson frá Reykjavík stjórnar, en Jónatan Jónatansson verð- ur fylgdarmaður fyrir, fari upp á Mýr- dalsjökul um kl. hálf fimm í fyrra- málið og mun Guðmundur Jónasson fylgja flokknum í snjóbíl sínum. 10 FÁLKINN Hér hefur verið hríðarveður í dag og má búast við að hríðin hafi verið dimm á jöklinum.“ 22. desember. Vík í Mýrdal í gær- kvöldi: „í kvöld er leiðangursmenn undir stjórn þeirra Brands Stefánssonar og Guðmundar Jónassonar áttu ófarna milli 800—900 metra að flaki banda- rísku flugvélarinnar varð á vegi þeirra jökulsprunga sem þeir komust ekki yf- ir. Bílarnir voru þá orðnir benzínlitlir. Leiðangur þeirra Árna Stefánssonar og Jóns Oddgeirs Jónssonar eru komn- ir til byggða. Mun sá síðarnefndi halda til Reykjavíkur á morgun. í dag ollu nokkur óhöpp því, að ekki skyldi vera hægt að komast að flak- inu. Jökullinn er afar slæmur yfirferð- ar og seinfarinn. Benzíntunnum var kastað niður til snjóbílanna, en svo illa tókst til, að léiðangursmenn gátu ekki fundið þær. Þá tafði það leiðangurs- menn og, að annar snjóbíllinn bilaði. Er viðgerð var lokið og leiðangurinn hugð- ist halda áfram mun hann hafa skammt farið, er hann kom að hinni ófæru jök- ulsprungu. Þar ákváðu Guðmundur og Brandur að láta fyrirberast við jökul- röndina í nótt. Benzín höfðu þeir nægi- legt til að geta haft bílana í gangi næturlangt. Veðurstofan spáði nú í kvöld, að í nótt mundi gera stórviðri á Mýrdals- jökli. En í fyrramálið er ráðgert, að Árni Stefánsson fari upp á jökulinn með benzín í svonefndum skriðbíl, ef veður leyfir. Leiðangursmenn munu enn gera til- raun til að komast að flakinu, þótt eng- inn geri sér nú vonir um að þeir, sem kunna að hafa komizt af er vélin rakst á jökulinn, séu enn á lífi. Þar sem flak flugvélarinnar er, eru brattir gilskorningar að því er virðist og erfið uppgangan þangað, því svo er jökullinn allur sprunginn umhverfis flakið og í námunda við það. Árni Stefánsson, sem ég átti samtal við í kvöld, sagði mér, eftir frásögn manna í leiðangri þeirra Brands og

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.