Fálkinn - 24.10.1962, Page 20
— Ætlið þið ekki að æfa með okkur,
spurði Sigurður Jóhannsson, er við
brugðum okkur í tíma til Judo-deildar
Ármanns í íþróttahúsi Jóns Þorsteins-
sonar við Lindargötu. — Þið verðið að
minnsta kosti að fara úr skónum, bætti
hann við og var horfinn í sömu mund,
enda æfingin hafin fyrir góðri stundu.
Okkur gafst því ekki tími til að svara
því til, að okkur skorti ekki viljann, en
kjarkurinn og kraftarnir væri ef til vill
ekki upp á það bezta. Við læddumst á
tánum eftir ganginum, og að vörmu
spori blasti við okkur birta og víðátta
leikfimisalarins. Gólfið var þakið dýn-
um og þarna var hópur vaskra manna
önnum kafnir við æfingarnar, og nokkr-
ir strákar að auki. Allir voru klæddir
hinum sérkennilega hvíta búningi jap-
önsku glímunnar: hálfsíðum buxum og
síðum jakka með dökku belti.
Við fylgdumst með því sem eftir var
æfingarinnar. Ýmiss konar tök og brögð
voru æfð aftur og aftur, og þegar brugð-
ið var kváðu við skellir, svo að undir
tók í öllum salnum. Okkur þóttu skell-
irnir óvenjulega háir, og skýringuna á
því fengum við hjá Sigurði, er hann
vék sér andartak að okkur:
— Eitt hið fyrsta sem menn þurfa að
læra í judo er að kunna að detta. Byrj-
endur þurfa að leggja sérstaklega
mikla áherzlu á hinar svokölluðu fall-
æfingar. Hávaðinn stafar af því, að
menn slá höndunum aftur um leið og
þeir detta. Æfður judo-maður getur
þannig tekið allt að 90% af fallinu
með höndunum. Þetta getur komið sér
vel í hálkunni á veturna. Maður sem
kann judo á ekki að þurfa að meiða
sig neitt, þótt honum skriki fótur.
Að svo mæltu var Sigurður þotinn til
þess að leiðbeina nemendum sínum.
Litlu seinna heyrðum við hann kalla
,,Osotogari“, en það mun vera heitið á
einu bragðinu.
—-v—
Að æfingunni lokinni gafst okkur
tækifæri til að spjalla örlítið við Sig-
urð á skrifstofu íþróttahússins. Við
vékum fyrst að uppruna þessarar sér-
kennilegu íþróttar, judo.
— Uppruni judo er að mestu leyti
ókunnur, sagði Sigurður. — Hér áður
fyrr voru ýmsar tegundir glímu stund-
aðar í Japan og báru mismunandi nöfn.
En árið 1882 stofnaði Jigoro Kano
Kodokan-skólann. Hann hafði lagt
stund á ju-jutsu hjá ýmsum frægum
:ýx:;ý:;:::ýý:Á
1 \ 1 |f PgaSÍBlÍira
f *,