Fálkinn


Fálkinn - 24.10.1962, Side 28

Fálkinn - 24.10.1962, Side 28
Ileiðarlegt fólk Framhaid af bls. 13. Gripirnir eru nákvæmlega jafnmargir og getið er um í skránni. Jeppesen kinkaði kolli. — Enn sem komið er, get ég ekki sagt að gripirn- ir hafi beinlínis hjálpað mér, en þeir valda mér ósegjanlega mikilli gremju, þar sem þeir liggja þarna í jafn snyrti- legum umbúðum og þeir voru, þegar þeim var rænt úr verzlun gullsmiðsins. Ég held, að við ættum að hætta að hugsa um hlekkinn, sem vantar, við megum ekki einblína of mikið á eitt- hvað, sem er ef til vill ekki til. Og nú skulum við bregða okkur fimm ár aft- ur í tímann. Það leið nokkur tími, þangað til Flindt gerði sér grein fyrir því, hvað það var, sem vinur hans og samstarfs- maður átti við. En að lokum samþykkti hann hugmyndina. Lögreglumennirnir tveir unnu í nokkra daga að því að rannsaka ýmislegt, sem gerzt hafði fyr- ir fimm árum. Þeir fundu margt, sem vakti áhuga þeirra. En það var efnarannsóknastof- an, sem kom raunverulega skriði á mál- ið. Efnafræðingur, sem hafði mikla þekkingu á gimsteinum, benti Jeppesen á, að nokkrir steinanna væru falsaðir. — Vissir þú það, spurði Flindt undr- andi. — Nei, svaraði Jeppesen. — Það var ekki það, sem ég átti við, þegar ég sagði að mér gremdust gripirnir. Það var, að þeir skyldu liggja svo snyrti- lega, hver í sinni öskju. Venjulega gefa innbrotsþjófar sér ekki tíma til að búa svo vel og vandlega um þýfið. Annað hvort hendir hann því niður í tösku, eða stingur því í vasa sína. — Áttu við, að við eigum að heim- sækja Karl Bovense aftur? — Bráðum. Ég á aðeins eftir að ná tali af manni, sem var afgreiðslumaður hjá Karli Bovense, þegar innbrotið var framið. Ef til vill hefur hann frá ein- hverju að segja ... Flindt gramdist dálítið, að Jeppesen skyldi ekki vilja segja honum allt, sem honum bjó í huga. En þannig var það oftast. Jeppesen var getspakur og hafði auðugt ímyndunarafl, og það bar oft undraverðan árangur. En hinn þétt- holda Jeppesen skipti heiðrinum alltaf bróðurlega milli sín og vinar síns, svo að Flindt lét gremju sína ekki í ljós. Seinna um daginn bað Jeppesen Flindt að koma með sér til Karls Bo- vense. Karl Bovense var hár og glæsilegur maður, verzlun hans, sem var í hjarta borgarinnar var einnig mjög glæsileg. Hann var tæplega fimmtugur að aldri, dökk augu hans voru greindarleg, og hár hans var hrafnsvart og þykkt. Föt hans báru því vitni, að þar fór duglegur kaupsýslumaður, sem hafði á fáum ár- um unnið sér orðstír sem einn af mestu kaupsýslumönnum borgarinnar. Gullsmiðurinn bauð gestunum til skrifstofu sinnar, og hann lokaði dyrun- um á eftir þeim. — Get ég aðstoðað ykkur á einhvern hátt? spurði hann kurteislega. Jeppesen kom strax að kjarna málsins. — Já, þér getið sagt okkur á hvern hátt þér björguðuð yður úr fjárhags- vandræðum þeim, sem þér voruð í fyrir fimm árum, sagði hann. Karl Bovense varð greinilega móðg- aður. — Ber mér nokkur skylda til að skýra lögreglunni frá því? Ég fæ alls ekki skilið hvers vegna þér eruð að skipta yður af því. — Ég geri það af því að ég veit, að þér gerðuð það méð því að fremja tryggingasvik. Nokkrir steinanna í skartgripum þeim, er þér tilkynntuð að stolið hefði verið, voru sviknir. Þér fenguð tryggingaféð greitt, sem væru þeir ósviknir. Játið þér? Augnaráð Karl Bovense varð flökt- andi. — Þetta .... þetta getur ekki verið rétt. Ætlið þér að halda því fram, að ég verzli með svikna steina? Jeppesen hristi höfuðið. — Nei, herra Bovense, það var greinilega sérfræð- ingur, sem hafði skipt um steina, og sviknu steinarnir báru þess vitni, að þeir komu frá yðar eigin smíðastofu. Ég leyfi mér að halda því fram að skart- gripirnir hafi verið fluttir beint frá verzlun yðar til hússins við Vinarveg 85, og það hafi ekki verið hreyft við þeim síðan. Gullsmiðurinn fölnaði. Svitinn spratt út á honum og hann leitaðist örvænting- arfullur við að finna leið út úr ógöng- unum. Að lokum gafst hann upp. — Ég játa það. Ég féll fyrir freisting- unni þá, ég var á barmi gjaldþrots. Það var heimskulegt af mér að segja trygg- ingarfélaginu, að steinarnir hefðu allir verið ósviknir, en ég fékk bætur fyrir þá sem slíka...... Jeppesen kinkaði kolli. — Þakka yður fyrir, þetta var skynsamlegt af yður .... •—■ Ég mun sjálfur gera út um málið við tryggingafélagið .... ég þekki for- stjórann..... Það lifnaði aftur yfir gullsmiðnum, en það stóð ekki lengi, því Jeppesen tók nú aftur til máls: — Það er eitt atriði enn, herra Bo- vense. Þér sögðuð mér, að þér könnuð- ust hvorki við nafnið Ingeline Poulsen né heimilisfangið Vinarvegur 85. Þér munið eftir því, er það ekki? — Já......Gullsmiðurinn vætti var- irnar og horfði taugaóstyrkur á leyni- lögreglumanninn. — Það var þarna, þeg- ar þér hringduð til mín..... — Einmitt, en það var ekki satt. Af hverju sögðuð þér ekki sannleikann. Gullsmiðurinn hristi höfuðið með ákafa. — Nei, það var alveg satt. Ég man hvorki eftir þessu nafni né heim- ilisfanginu. — Jú, það hljótið þér að gera. Ég hef talað við einn fyrrverandi af- greiðslumann hjá yður, og hann sagði að hann hefði oft verið sendur með vörur að Vinarvegi 85, til frú Poulsen. Af hverju skrökvið þér til um það? Gullsmiðurinn lét fallast í stól. — Ég hlýt að hafa gleymt því, sagði hann, og rödd hans skalf. — Það er svo langt síðan..... — Munið þér nú eftir því? — Já, nú, þegar þér minnist á það..... — Hvers konar vörur voru það, er þér senduð frú Poulsen? Skyndilega spratt Karl Bovense á fætur, fölur sem nár, og æpti: Það voru ekki þeir skartgripir, er þið funduð þar, ef það er það, sem þér álítið..... Jeppesen hristi höfuðið. — Nei, ég álít það alls ekki. Þér fóruð nefnilega sjálfur með þá gripi þangað, kvöld nokkurt eftir að skyggja tók. Ég get meira að segja sagt yður hvaða mánað- ardag það var, því að þér fenguð borg- VELJIÐ CERTINA og þér eignizt úr sem þér getið treyst. Certina úrin eru gangviss og þau eru falleg, höggþétt, vatns- þétt og hafa óbrjótanlega fjöður. Árs ábyrgð fylgir. CERTINA 28 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.