Fálkinn - 17.04.1963, Qupperneq 11
Þremenningarnir( sem einna mest komu
við sögu björgunarinnar: Tómas Þor-
valdsson, formaður björgunarsveitarinn-
ar, Árni Magnússon, skytta og Sigurð-
ur Þorleifsson, formaður Slysavarnafé-
lagsins í Grindavík.
sérstaklega Guðmund um að hafa bíl
tiltækan til að flytja áhöldin og menn-
ina að strandstað.
Taka menn nú við að undirbúa leið-
angurinn. Tómas fer til Sigurðar Þor-
leifssonar formanns Slysavarnafélags-
ins, er var við vinnu. Skipta þeir með
sér verkum. Sigurður sér um að hafa
símasamband við Reykjavík. Reynir
hann að fá sem nákvæmastar upplýs-
ingar um stöðu skipsins og fær því
framgengt að vakt verði á símstöðinni.
Tómas fer aftur á móti til áhaldahúss-
ins og vinnur að því að allt sé til staðar
á brottfarartíma.
Þegar hann kemur að áhaldahúsinu
eru Guðmundur og Árni þar fyrir og
hafa þeir vakið menn í nokkrum hús-
um. Innan skamms er allt tilbúið til
brottfarar og er menn hafa sett tækin
á bíl Guðmundar, kemur Sigurður með
þær upplýsingar, að Clam væri að reka
á land einhvers staðar á milli vitanna
á Reykjanesi. Leggja þá 8 menn af stað
á bíl Guðmundar. Þá er klukkan 7.10.
En Grindvíkingar höfðu fljótt brugðizt
við. 30 menn eru mættir, þegar björg-
unarsveitin leggur af stað út á nesið.
Mannaðir eru í skyndi fleiri bílar.
Fer hver bifreiðin af stað eftir því hve
fljótt menn eru tilbúnir. Alls eru þetta
5 vörubifreiðir og 2 jeppar aka eins
hratt og vegurinn leyfir út á nesið. í
fyrstu gengur ferðin allgreiðlega, enda
leiðin góð út í Staðarhverfi, en er veg-
inum þar sleppir, taka við ruddir,
þröngir troðningar yfir mela ýft hraun,
gljúpa sanda og hverasvæði.
Verða menn að taka ytri afturhjólin
af vörubifreiðunum til þess að þær
komist leiðar sinnar. Gengur það verk
fljótar fyrir sig en menn hafa búizt við.
En ferðin sækist samt seint, enda þótt
leiðangursmenn hafi öll segl uppi.
Miðja vega nær önnur jeppabifreiðin
fyrsta vörubílnum og notar þá Tómas
Þorvaldsson tækifærið og biður Gamalí-
el Jónsson að fara á undan í jeppanum
og kanna greiðfærustu leiðina að
strandstaðnum. Gamalíel er allra
manna kunnastur hér um slóðir, þekkir
allar leiðir út í nesið og meðfram
ströndinni.
Áfram er haldið og loks eftir rúman
klukkutíma komast leiðangursmenn að
Reykjanesvita. Þá er Gamalíel, þegar
kominn þangað eftir að hafa fundið
beztu leiðina að strandstað. Hann hefur
þær fréttir að færa, að Clam sé strand-
að um það bil 1500 metra frá Valahnúk.
Heldur björgunarsveitin rakleiðis á
strandstað og er komin þangað klukkan
8.40 að morgni.
Á olíuskipum er venjulega ekki val-
inn maður í hverju rúmi. Oftast nær
eru skipverjar af mörgum þjóðernum,
stundum lítt vanir sjómennsku og
stundum menn, sem lögreglan hefur
þurft að losna við úr landi. Það þarf
því góðan stjórnanda, helzt eitthvert
hörkutól, til þess að hafa hemil á skip-
verjum.
Eins og áður hefur verið skýrt frá,
voru skipsmenn af Clam af ólíku þjóð-
erni. Ekki vitum við til þess, að um
borð hafi verið misindismenn eða þorp-
arar, en um leið og strandið varð, hef-
ur ofsahræðsla gripið um sig meðal
Sigurjón Ólafsson vitavörður. Hann kemur mjög við sögu strandsins. Myndin
er tekin uppi í vitanum.
FÁLKINN 11