Fálkinn


Fálkinn - 17.04.1963, Qupperneq 13

Fálkinn - 17.04.1963, Qupperneq 13
— Mikið, ef þeir rífa ekki nótina á hrauninu, segir Tómas. Við ökum niður að höfninni. Þar hitt- um við þá Sigurð Þorleifsson og Árna Magnússon. — Var nokkuð eftir af Clam? spyr Sigurður. — Ja, við fundum eina stöng, sem var til þess að halda uppi kojunum, seg- ir Tómas. Það siglir síldarbátur inn í höfnina. Hann hefur sennilega rifið nótina þessi, segi ég. — Já, Guðmundur Þórðarson kom inn í gær og bætti nótina á bryggjunni, segir Sigurður, en hann er hafnarvörð- ur í Grindavík. Og hann gengur niður eftir bryggjunni, eftir að hafa kvatt okkur. Árni Magnússon fer upp í frysti- hús, þar sem hann er vélstjóri, og Tómas Þorvaldsson þarf að sinna út- gerð sinni. Þeir kveðja okkur með virkt- um. ★ Við ökum brott úr þessu vinalega þorpi. Strákur hleypur í veg fyrir bíl- inn og við skrúfum niður rúðuna og spyrjum af hverju hann hlaupi fyrir bíla, hvort hann viti ekki að það sé hættulegt. — Voru þið að fara út á nes? spyr strákur — Já, svörum við. — Funduð þið nokkuð úr Clam? — Nei, en það sér í vélina í stór- straumsfjöru. ★

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.