Fálkinn


Fálkinn - 18.11.1963, Page 19

Fálkinn - 18.11.1963, Page 19
Ó! Hann leit á hana stórum augum. Ó! sagði hann aftur, í þetta skipti heldur lægra. — Hvað er þetta? Vissuð þér ekki að hann væri kvæntur? — Jú, jú, sagði Bill Truslow. Jú, það vissi ég auðvitað. Það er ábyggilega þess vegna, sem mér fannst við hafa sézt áður, bætti hann við í flýti. Norma Maxson hnyklaði hinar dökku augabrýr sínar dá- lítið. Hvers vegna var hann orðinn svona þögull? Aðeins af því að ,,bráðin“ hans hafði reynzt vera gift kona? Eða hafði hann haldið að eiginkona Eric Maxson væri lítil og ósjáleg? Ef til vill var það ástæðan, hugsaði Norma gröm. En hún sagði mjög rólega: — Leit hann út fyrir að hafa það gott, síðast þegar þér sáuð hann? — Já, já, ágætt, sagði Bill Truslow einlæglega. Hann býr hjá Pete og Molly Cavanagh, en það vitið þér auðvitað. Stórt gamalt hús nálægt Sloane Square. Ég borðaði hjá þeim fyrir nokkrum vikum. Hann hikaði. — Ætlið þér líka að búa þar? Það var eitthvað í rödd hans, sem kom Normu til þess að líta upp. Það var eins og eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera í húsinu í grennd við Sloane Square, eitthvað, sem Truslow vissi, en hún ekki — Já, ég ætla mér það, sagði hún snöggt. Molly hefur oft skrifað mér og boðið mér að koma, allt síðan Eric flutti til þeirra. Hann er búinn að búa Framh. á bls. 42. FÁLKINN 1 )

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.