Fálkinn


Fálkinn - 16.11.1964, Síða 14

Fálkinn - 16.11.1964, Síða 14
 íste, íste í stórum skömmt- s um er það sem heldur okkur uppistandandi gömlu konunum f á heitum sumrum hér syðra. Ég lauk úr bollanum og hristi teglasið svo glamraði í ísmolun- um. Það er bezt að láta nýjan skammt í frysti, hugsaði ég með mér, stjakaði hjólastólnum mínum burtu frá skrifborðinu og í áttina að eldhúsinu. En áður en ég var komin hálfa leið var barið að dyrum. Ég sneri stólnum og fór inn í dagstofuna þar sem geislar síðdegissólarinnar streymdu inn um gluggann. Og þarna, á tröppunum fyrir utan, stóð eini ættingi minn á lífi, bróðurson- ur minn, Sidney Comstock. Hann brosti við mér eins og hann væri enn daggeislinn hennar Töttu frænku. Ég trúi ég hafi gripið and- ann á lofti. Ég hafði. ekki séð hann í fimmtán ár. Svo hvæsti ég: — Hvenær var þér sleppt laus- um? Og hvað viltu hingað? Hann smaug inn um gættina eins og áll. — En elsku Tatta frænka! Eru það nú viðtökur! — Þú átt ekki betra skilið hafandi svívirt hreinan skjöld Comstock-ættarinnar! Hvað viltu hingað? — Ég kom bara til að heilsa upp á þig, kæra frænka. Hann litaðist um í herberginu. — Ertu ein? spurði hann var- færnislega. Hvar er Delja? — Hún á frí í dag, svaraði ég og óskaði þess að svo hefði ekki verið. — Hvernig líður gamla skrímslinu og hvernig heilsast sjálfri þér? Hann hlammaði sér á stól andspænis mér og ætlaði að taka um hendurnar á mér en ég kippti þeim að mér. Fyrir ■ ■ Ijr | i ■ n 1B B HP® fkí ■ mm m 11 fei m h Wf §3! Kj ® Pá Im H|i BHK ■ ■ ■ ggj ■ Mm wm. fiæB M| Kfg mS Ell ■BS HLJHI BBL ■ 1 m w Ég hafði ekki brjóst i mér að svipta [iann lífi af því hann hafði verið svo sætt og yndislegt bar«t... mörgum árum hafði Sidney getið sér frægð sem glæpa- maður er hann skaut til bana afgreiðslumann á olíustöð sem neitaði að afhenda kassann. Eftir það gat ég ekki afborið að snerta við þessum höndum. Og Sid sem eitt sinn hafði verið daggeislinn minn. Minningin um þennan hýra cg glaðlega dreng skar mig í 14 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.