Fálkinn


Fálkinn - 16.11.1964, Side 17

Fálkinn - 16.11.1964, Side 17
Mikil ólga vegna hinnar ný|u kvikmyndar Ingmars Bergmans, sem ber nafnii ÞÖGNIN Hann bætir við að list allra alda hafi sýnt þessa hluti óhikað. Hins vegar hefur kvikmyndalistin Orðið fyrir því, að þessir hlutir eru bannfærðir, hvað henni viðkemur. Þessu verður að breyta í því skyni, að kvikmyndalistin nái jöfnum þroska og aðrar listgreinar. Bersýnilega hefur sænska kvikmyndaeftirlitið gert þessi orð að sínum. „Það er ekki hlutverk eftirlitsins að gelda listaverk,” sagði Torsten Ek- lund dósent, sem situr í nefndinni ásamt með Vivica Starfeldt Barthel skáldkonu og barnalækn- inum dr. Per Nordenfeldt. Þau bera ábyrgð á því að „Þögnin“ kom óklippt fyrir augu Svía. „Sænska kvikmyndaeftirlitið vill spyrna við ofbeldi, kvala- losta og ruddaskap og öðrum eyðandi öflum í sál mannsins. En samdrátt kynja skoðum við ekki sem glæp eða ódæði. Kynkvöt er skapandi lífsafl. Við klippum ekki myndir Bergmanns, við gætum alveg eins vel brotið hluta af grísku höggmyndunum eða skorið niður Shakespeare." Þessi úrskurður nefndarinnar hefur að sjálfsögðu vakið ýmsar deilur í Svíþjóð. Sumir halda því fram, að djörfustu atriði myndarinnar séu sýnd af svo miskunnarlausu raunsæi og atburðirnir séu látnir gerast í svo mikilli „nálægð“, að varla geti verið um listræna nauðsyn að ræða. Jafnframt er á það bent, að fordæmið geti leitt til þess, að fólk geri ekki greinarmun á verkum, sem framleidd eru til að fullnægja dýrseðli mannsins, og hinum, sem sköpuð eru sem listaverk. Formaður eftirlitsnefndarinnar, Erik Skoglund, sem var í leyfi, þegar þessi úrskurður var felldur af starfsbræðrum hans, hefur viðurkennt: „Það verður að draga markalínu milli kláms og listaverka. Raunsæ, eðlileg ástaratriði, hluti af list- rænni heild, geta aldrei skoðazt sem klám. Ef hins vegar þessi atriði eru þjöppuð saman í stutta kvikmynd, horfir málið öðruvísi við.“ Hinn konunglegi embættismaður Bergmann, kærði sig ekki hót um þessar deilur: „Ég pípi á eftirlitið — það er gersamlega þýðingarlaust, sagði hann dönskum gesti. „Eina eftirlitið, sem ég viður- kenni, er samvizka og innri þörf listamannsins sjálfs. Það er eðli listarinnar að þróast án ytri hafta og takmarkana. ,Það er aldrei hægt að setja sönn- um listamanni fýrir eða neyða hann á einn eða annan hátt, jafnvel ekki í smáatriðum.“ Leikkonur Bergmanns þurfti að minnsta kosti ekki að neyða til neins. Ingrid Thulin, sem leikur Ester í kvikmyndinni, hefur lýst því yfir, að hún sé fyllilega samdóma aðgerðum persónunnar, sem hún leikur. Og Lissi Alandh, sem leikur „konu í bíó“ í einu djarfasta atriði myndarinnar sagði: „í fyrstu var ég óstyrk. Smám saman varð mér ljóst samhengið, vissi, að þetta atriði var hlekkur í langri keðju, Framh. á bls. 31. Kvikmyndin ÞÖGNIN segir sögu tveggja systra á ferðalagi. Önnur systirin, Anna, er fráskilin og Lit,i drengurinn, Jóhann, vergjörn. heldur áfram förinnl með Önnu móður sinni, móðursystir hans, Ester, liggur dauðvona eftir á hótelinu.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.