Fálkinn - 16.11.1964, Side 19
ILVOGI
Strandakirkja
berst í bökkum.
Framundan er
beljandi Atlants-
hafið en að
baki sandflæmi,
hraun og heiða-
flákar.
Það hvín ekki
framar í
hverfissteininum
undan beittum
ljánum enda fær
nú grasið að
gróa að vild
á sumum þeirra
kota sem áður
áttu sinn þátt
í byggð Selvogs.
Það er ekki nóg með, að það sé allt þei. 1
land, heldur fjaran líka, og þarna er eng 1
flæðihætta. Að öðrum kosti hefði jörð 1
verið óbyggjanleg. Þá hefði þurft að pa>
raka féð. Þarna voru slægjur engar,
nema túnið, raunar voru þau tvö, eystra
túnið gróið upp af sjófangi.
Og útræði var í Herdísarvík allt f:á
fyrstu tíð og allar götur fram til 1922.
Þar voru sjómenn í veri og þótti slíkt hag-
ræði, að jafnvel Landeyingar sóttu þangí ð
til sjóróðra. Árni sýslumaður Gíslason át Á
jafnan tvö skip í Herdísarvík, og var ve >
stöð hans kölluð Krísuvíkurbúð. En Árni
sat í Krísuvík, og þar er hann grafinn i 3
kirkju, raunar sá eini í kirkjugarðinum
sem hvílir undir steini. Önnur leiði eru
þar gróin og nafnlaus.
í Herdísarvík er fremur veðursælt nema
í norðanátt og þá getur orðið landbrim.
Nú er Herdísarvík í eyði og þögnin
geymir gömlu bæjarrústirnar við veginn,
enginn dyttar lengur að grjótgarðinum,
enda er hann víða hruninn og túnið í
órækt. Þar stendur enn uppi baðstofa í
gömlum stíl og önnur hús úr torfi, fjós,
hlaða og fjárhús. Athygli vegfarandans
beinist þó fyrst að einlyftu timburhúsi,
sem stendur þar í túninu og horfir til
sjávar, nú er búið að negla hlera fyrir
alla glugga og dyrnar eru harðlæstar. Við-
irnir í húsinu eru sorfnir vindum og veðrL
í þessu húsi bjó skáldið Einar Benedikts-
son síðustu æviár sín.
nema 40 manns og ungur þingmaður Árnessýslu
hefur gert að tillögu sinni að sameina hreppinn
Ölfushreppi. Ýmislegt er gert í því skyni að við-
halda jafnvægi í byggð landsins og stuðla að
því að fólki þyki hag sínum betur borgið í
heimasveit en á mölinni. Því þótti Selvogsbænd-
um skjóta skökku við, þegar kaupfélagsstjórinn
á Selfossi neitaði að sækja til þeirra mjólk,
nema þeir hefðu minnst 70 kýr mjólkandi í fjósi.
Taldi hann ekki borga sig að sækja mjólkina
svo langan veg að öðrum kosti. Þó lét hann
sækja mjólk á bæ, sem ekki er nema 14 kíló-
metra frá Selvogi, og fór því fjarri, að þar væru
70 kýr í fjósi. En Selvogsbændur neyddust til
að bjarga sér sjálfir, þeir reyndu á tímabili að
koma þar upp mjólkurbúi sjálfir, en reyndust
of fáliðaðir. Nú byggist búskapur þeirra nær
eingöngu á sauðfjárrækt, enda eru skilyrði til
þess ákjósanleg og raunar óvíða á landinuu
betri.
Ólafur Þorvaldsson bjó síðastur bænda í Her-
dísarvík, sat jörðina frá 1927 til 1933, en varð
þá að standa upp fyrir eigandanum. Einari
skáldi Benediktssyni.
— f Herdísarvík var gott að búa, sagði Ólafur
mér, það er frábær útbeitarjörð, ég hika ekki
við að segja langbezta beitarjörðin á Suðurlandi.
FÁLKINN
13