Fálkinn - 16.11.1964, Qupperneq 43
Ei heldur máninn . . .
Framh. af bls. 39.
eina, sem skildi í raun og veru,
hvernig allt var í pottinn búið.
Hún vissi líka um tilveru þína,
Andrew. Við vorum miklar vin-
konur og eins oft og hún gat
kom hún til okkar. Hún var
þar líka .. . nóttina, sem hún
dó. Alice hélt áfram og rödd
hennar var hljómlaus en stilli-
leg:
— Þegar ég kom til mömmu
var hún í miklu uppnámi. Og
þegar hún var þannig hafði hún
megnustu andstyggð á að fá
sprautuna sem hún fékk á
hverju kvöldi. Þú getur ímynd-
að þér ... hvernig mér leið að
verða beinlínis að gera það
gegn hennar vilja... og ég
vissi, hvað hún óttaðist. Hún
var svo hrædd og hjálpar-
vana...
Án þess að segja orð gekk
Rusty til hennar og rétti henni
glas.
— Drekktu þetta.
Hún hlýddi því og hélt því
næst áfram.
— Þetta var ekki í fyrsta
skipti, sem ég varð að gefa
henni sprautuna gegn vilja
hennar — en þetta kvöld vissi
ég að nú gat ég ekki meira. Ég
man tæpast hvað gerðist. Ég
stillti mig meðan ég var inni
hjá henni, en þegar ég kom
upp til Bettyar missti ég allt
vald á mér og fór að gráta.
Hún reyndi að hughreysta mig
og sagði:
„Vertu ekki hrygg, Alice. Nú
fer ég til mömmu þinnar. Ég
veit hvar allt er og hún er
alltaf vingjarnleg við mig.“
þegar hún kom niður aftur var
ég að nokkru búin að jafna
mig. Ég hafði búið til te og
kveikt á útvarpinu. Betty
þrýsti hönd mína og hvíslaði
að mamma hefði sofnað.
Alice dró djúpt andann áður
en hún sagði meira:
— Þegar ég gekk inn til
hennar morguninn eftir —
tókst mér ekki að vekja
hana . . . hún hafði dáið í svefni.
— En það gat gerzt hvenær
sem var — það hefurðu sjálf
sagt, sagði Andrew.
Rusty horfði beint á Alice.
— Hvers vegna ásakar þú
sjálfa þig? Og hvers vegna
skyldi nokkur ásaka þig?
Framhald í næsta blaði.
Helztu breytingar eru:
Diskahemlar framan (í staS venjulegra
borðahemla).
Ný krómhlíf (grill) framan, með breyttum
stefnuljósum.
Nýtt mælaborð.
Nýtt stýrishjól (safety-steering wheel).
Breyttir aðalljósa- og stefnuliósarofar.
Breytingar ó lit að innan í samræmi við
óklæðislit.
Ný gerð af tauóklæði ósamt nýjum litum
af gervileðri (vinyl).
Enn fullkomnara loftræstikerfi.
Hkim út
KH. KRI5TJAN5SDN H.F.
SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00