Fálkinn - 23.11.1964, Side 6
Predikarinn og púkinn
Svo sem þér sáið,
munuð þér uppskera.
Svo bezt að gæsin
t mist ekki í spilið.
Mandy Rice
Einu sinni var þessi stúlka og vin-
kona hennar Christine Keeler mikið
umtalaðar ekki aðeins í sínu heima-
landi heldur og víða um lönd. Mönn-
um er þetta mál enn svo minnisstætt
að óþarfi er að rifja það upp nánar.
Þessi stúlka heitir Mandy Rice
Davis. Það síðasta sem við fréttum
af henni var að hún var að hefja
kvikmyndaleik en hvernig það hef-
ur gengið vitum við því miður ekki.
það er baksvipur þeirra sem er myndað-
ur og þarna sjáum við hluta af öllum þeim
skara af ljósmyndurum sem venjulega
fylgir þeim.
Mikið er búið að
skrifa um þessa
drengi frá Liver-
pool og mikilli
skriðu hafa þeir
komið af stað. Enn
halda þeir vinsæld-
um sínum þótt eitt-
hvað sé þær farnar
að réna. Og það er
mikið búið aðskrifa
um þessa drengi og
birta af þeim mynd-
ir. Þeir hafa leikið
í sinni fyrstu kvik-
mynd og hér gekk
hún vikum saman
enda ekki nema von
þar sem menn fóru
allt að þrjátíu sinn-
um að sjá goðin. Og hér birtum við enn
eina myndina af drengjunum frá Liver-
pool. Hún er að því leyti óvenjuleg að
The
Beatels
sá bezti
Þessi orðaskipti áttu sér nýlega stað í
landajrœðitíma hér í einum skólanum.
— Hvar er Brasilía? spurði kennarinn.
— í Asíu, svaraði nemandinn.
— Veiztu ekki hvaðan kafjið kemur?
— Jú, frú Kaaber.
Frá Söru
Churchill
Sara dóttir Winston Churc-
hill hefur fengið það orð á sig
að skvetta duglega í sig endr-
um og eins og á þá til að vera
all athafnasöm.
Nýlega var hún í Róm og
datt þá duglega í það eins og
sagt er. Hún var að drekkja
sorgum sínum vegna þess að
hinn ítalski vinur hennar
Mauro del Vecchio hafði stung-
ið hana af. Vecchio hefur um
þriggja ára skeið verið trúfast-
ur vinur Söru og að sögn verið
henni nokkurs konar antabus.
En þetta fór allt vel því nokkr-
um dögum seinna kom Vecchio
í dagsljósið aftur og allt féll í
ljúfa löð.
Hér fylgja tvær myndir, sú
til vinstri er tekin fyrir utan
einn næturklúbb í Róm meðan
Vecchio var í felum en hin er
tekin eftir að hann kom í dags-
ljósið.
Anna Magnani
Það er orðið nokkuð langt síðan við
höfum séð Önnu Magnani á hvíta tjaldinu.
1955 fékk hún Oscar-verðlaunin fyrir leik
sinn í myndinni The Rose Tatto, þar sem
hún lék á móti Burt Lancaster. Síðasta
myndin sem hún lék í var Herrenpartie,
en ekki getum við upplýst hvenær hún
verður á ferðinni hér. Þessi mynd er tekin
af leikkonunni þegar hún var í Róm að
heimsækja tvítugan son sinn Luca en hann
hefur verið lamaður frá barnæsku.
FALKINN