Fálkinn


Fálkinn - 23.11.1964, Blaðsíða 33

Fálkinn - 23.11.1964, Blaðsíða 33
Maðurinn og bíllinn ... Framhald af bls. 31. og höfuðskepnurnar þurfa þeir líka að etja kappi við vega- gerðina. Þeir eru ekkert allt of bráðlátir að ryðja heiðarnar, þegar snjóar. Gunnar sagði mér, að hann hafi farið þess á leit við vega- málastjóra um daginn að ryðja Breiðadalsheiðina með ýtu, þá var hún orðin ófær vegna snjóa. Vegamálastjóri tók þeirri málaleitan heldur dræmt: — Það þýðir ekkert að ryðja þetta fyrir ykkur, sagði hann, þið farið þetta strax aftur. Og það er að heyra á Gunn- ari, að svona rökvísi gildi ekki í fjallaferðum vestra, þótt hún þyki fullgóð á skrifstofum syðra. Það hefur bjargað þeim Gunnari og Ebenezer að þeir eigi sjálfir tvær ýtur, sem þeir geta gripið til, þegar í nauðir rekur. Eitt sinn lögðu þeir af stað með þrjá bíla frá ísafirði og þá lá fannfergi á Breiðadals- heiði, með í förinni voru tveir verkfræðingar og þeir hristu sín lærðu höfuð. En Gunnar lét aðra ýtuna fara fyrir fylk- ingunni og draga einn bílinn, jafnframt því sem hún ruddi brautina gegnum samfelldan snjóskaflinn, siðan kom hin ýt- an og dró bílana tvo. Og þannig silaðist lestin yfir heiðina. Það er mikið áhugamál Vest- firðinga, að lokið sé vegarlagn- ingunni inn úr Djúpi, frá Arn- gerðareyri til ísafjarðar. Enn vantar 50 kílómetra til þess, að vegurinn nái saman. Og lítill áhugi hjá þeim, sem stjórna þessum málum. En sá vegur mundi leiða til þess, að fært yrði til ísafjarðar árið um Það er ekki til setunnar boð- ið á ísafirði, þótt menn séu þreyttir eftir ferðina, nú er tekið til óspilltra málanna að afferma bílana og síðan að hlaða þá á ný. Það er eftir engu að bíða, strax skal haldið suður á ný til Reykjavíkur og brátt eru bílarnir hlaðnir ýms- um varningi: selskinn og æðar- dún, filmum, gleri, umbúðum, niðursuðu, og fl. Gunnar gefur sér þó tíma til að líta inn heima hjá sér á Hlíðarvegi 17, cg konan er með heitt á könnunni handa okkur öllum. Sigríður Sigurðardóttir fagnar manni sínum vel og spyr frétta af ferðinni, annars hef- ur hún haft spurnir af honum lengst af. Það er víða hlustað á viðskiptin í loftinu, því marg- ir eiga undir því, að vörurnar berist í tæka tíð. Til dæmis voru forstjórar niðursuðuverk- smiðjunnar orðnir heldur kvíðafullir að fá ekki dósirnar sínar að sunnan. En þótt náð sé áfangastað eftir langa og stranga ferð, er hreint ekki til setunnar boðið því strax næsta kvöld halda fyrstu bílarnir af stað upp á Breiðadalsheiði á ný. Mér verður hugsað til Sísífos- ar í hinni grísku goðsögu er ég fylgist með þungskreiðum full- hlöðnum bílunum leggja á heið- ina, sem þeir komu ofan í gær. Á honum hvíldu þau álög að velta um alla eilífð sama stein- inum upp sömu fjallshlíðina, þegar hann náði brúninni varð hann að láta steininn velta nið- ur hlíðina aftur, síðan gekk hann sjálfur niður á eftir og tók að velta steininum á ný upp á fjallið. Og þannig koll af kolli um aldur og ævi. Þeir hverfa mér sjónum i nætursortann þessir frændur Sísífosar, bíll og maður. Vegur- inn dregur þá, landið og nóttin umlykur þá. 3^11=33 Þetta.er einfalt reikningsdæmi út af fyrir sig, en ókaflega athyglisvert þegar skyrta á í hlut. Nýja nælonskyrtan frá okkur, Terella de luxe, sem kemur nú á mark- aðinn, fæst í þrem ermalengdum innan hvers númers, sem eru ellefu alls. Skyrt- an er því í rauninni fáanleg í 33 -mis- munandi stærðum, en það þýðir einfald- lega að þetta er skyrta, sem passar á alla. Terella skyrtan er hvít, úr mjög vönduðu ensku efni. Og svo ættuð þér þara að sjá hve falleg hún er— gerið það í næstu búðarferð. VÍR terel a. -ss=s5”^^2—- kring, þá væri nóg að ryðja eina heiði í stað sjö. En þessi vegagerð á langt í land, og því verða ísfirðingar enn um sinn að treysta á þá félaga Gunnar & Ebenezer. Hvít þrælasala Framhald af bls. 19. tókst að læsa handjárnum um úlnliðina á henni fyrir aftan bak. Guerra þaut að dyrunum, reif þær upp á gátt og varð nær örvita við þeirri sjón er blasti við honum. Jósefína var bund- in nakin á rúmbálk og yfir henni stóð mexíkani með flösku í annarri hendi en hina hend- ina lét hann hvíla á líkama hennar. Stúlkan virtist með- vitundarlaus. Framh á næstu síði). FALK.I NN 33

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.