Fálkinn


Fálkinn - 23.11.1964, Qupperneq 31

Fálkinn - 23.11.1964, Qupperneq 31
suddi þegar við höldum frá Þingeyri inn Dýrafjörð og syrtir í lofti. Nú er farin Gemlufallsheiði í Önundar- fjörð. Það gerir lítilsháttar él á okkur uppi á heiðinni, og nú fréttum við í talstöðinni, að komin sé slydda á Breiðadals- heiði, síðasta og hæsta fjallveg- inn. Nú ökum við fram á D-24 hann er stopp upp á Gemlu- fallsheiði. Stýrið situr fast. — Það er ekki allt unnið við að hafa vökvastýri, segir Gunn- ar, og enn bregður hann sér út, húddið á þeim bláa er rifið upp á gátt, svo hann gapir mót norðri, og þeir hella sér í það að rífa dýnamóinn úr honum. Hér verður hann að sitja um sinn, þar til þeir fá gert við dýnamóinn á ísafirði. Og jafn- skjótt berast fréttir um, að Volvó hafi þrotið erindið á Breiðadalsheiði. Meðan þeir rífa dýnamóinn úr, kallar Þingeyrar Radíó okk- ur upp, séra Stefán hafði verið beðinn um að fylgjast með af- drifum bilsins, sem fór til Patreksfjarðar. Það kemur þá í ljós, að bíllinn hefur ekki komið til Patreksfjarðar á til- settum tíma, og símstöðin á Patreksfirði hafði neitað að hringja á þá bæi, sem liggja við veginn og grennslast fyrir um bílinn. Prestinum er auðheyri- lega mikið niðri fyrir, þegar hann tilkynnir okkur þetta, og jafnframt má heyra, að hann sé ekki af baki dottinn, hann kveðst samstundis hafa sam- band við formann Slysavarnar- félagsins á Patró og fá hann til að ganga í málið. Og séra Stefán setur allt af stað, og árangurinn lætur ekki KAFFI! Kaiiisopinn indœll er* eykur ijör og skapið kœtir. Langbczt jafnan likar mér Ludvig David kaiiibœtir. 0. J0HNS0N I & KAABER H.F. á sér standa. Það er varla lið- inn stundarfjórðungur, fyrr en koma fréttir af bílnum og var hann þá heill á húfi. En hér hefði getað farið verr, því það kemur í ljós, að hann hefur lent út af veginum í Vatnsfirði utanverðum og komst ekki sjálfkrafa upp aftur. En hér fór betur en á horfðist, engin slys urðu á mönnum, og dráttarvél frá Brjánslæk tókst að bisa bílnum aftur á réttan kjöl. Og nú sannfærist ég enn betur um það, sem Gunnar Pétursson sagði, fyrr í ferðinni um prestinn á Þingeyri, þetta er maður, sem ætti að verð- launa. „Þið farið þetta strax aftur!“ Ferðin gengur að óskum, það sem eftir er leiðarinnar, upp snarbrattar hlíðar Breiða- dals, síðasta spölinn í áfanga- stað. Við höfum verið á ferð- inni stöðugt í hálfan annan sólarhring, án þess að nokkur hvíld gæfist. Og þó segir Gunn- ar mér, að í þeta sinn hafi allt gengið snurðulaust, færðin ver- ið með betra móti. í fyrra voru þeir eitt sinn fimm sólarhringa frá Reykjavík til ísafjarðar. Fannfergi, skriðuföll, aurbleyta og vatnsflaumur hafa oft leikið þá grátt, en aldrei gefast þeir upp. Það er ekki með í dags- skipuninni. Breiðadalsheiði er oft erfið, þar fennir á skömm- um tíma, svo vegurinn færist á kaf. Og ofan á náttúruöflin Framhald á bls. 33. Mig langar mjög mikið til að vita hvað stjörnurnar segja um framtið mína. Ég er trú- lofuð og vinn úti. Ég er fædd 1943 kl. 9 um morgun. Með fyrirfram þökk. Helga. Svar til Helgu: Þú hefur, eins og svo margar ungar stúlkur á þínum aldri, allar pláneturnar fyrir ofan sjóndeildarhring eða rísandi, sem kallað er, og hefur þú því tækifæri til að geta notið flestra eða allra þeirra hæfi- leika, sem fyrir hendi eru. Þú ættir einnig að geta náð góðum árangri í flestu því, sem þú tekur þér fyrir hendur. Ég mundi halda, að þú værir fædd örlítið seinna en þú gef- ur upp, því þá kemur Nauts- merkið á geisla sjöunda húss, en það er sólmerki unnusta þíns. Það er nokkuð algengt, að sólmerki eiginmannsins sé á geisla sjöunda húss hjá kon- unni. Kort ykkar eiga að mörgu leyti vel saman. Þið eruð bæði fædd í jarðmerkjum, Venus er einnig í jarðmerkjum, og Marz í loftmerkjum. Þetta bendir til að tilfinningaeðli ykkar sé mjög líkt, og þyrftu því ekki að verða árekstrar út af því, eins og stundum vill verða. Það má búast við því, að þó þú giftir þig, þá hafir þú alltaf löngun til að vinna utan heim- ilis og skapa þér góða aðstöðu í þjóðfélaginu. Einnig í félags- lífinu muntu leitast við að vera leiðandi manneskja. Fiskamerkið á geisla fimmta húss bendir til mikillar frjó- semi og margra barna, en þar sem unnusti þinn er með miður frjósamt merki þar, má búast við, að barnahópurinn verði svona meðalstór. Merki Nautsins á geisla sjöunda húss eykur löngun þína eftir ást, en gerir þig hins vegar nokkuð vandláta á því sviði. Þegar málin eru komin á það stig að verða hjónaband, ert þú einlæg og vilt, að þér sé sýnd full einlægni á móti, og þú munt gera þitt til að hjónabandið endist út ævina. Merki Ljónsins á geisla tíunda húss er mjög hagstætt fyrir öll störf sem leiðbein- andi og kennari. Kennsluhæfi- leikinn er einn aðalkostur þessa merkis. Þér mundi falla betur að vinna eitthvað sjálfstætt heldur en undir stjórn annarra. Það eru mjög hagstæðar af- stöður, með tilliti til hjóna- bands, fyrir ykkur bæði, núna í ár og einnig 1965. Það má búast við, að fjár- hagur unnustans verði ekki sér- lega góður nokkur næstu ár, en það lagast og batnar alltaf, eftir því sem á ævina líður. Þú ættir sem minnst að skipta þér af sameiginlegum fjármálum ykkar, það leiddi bara af sér árekstra. FALKINN 31

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.