Fálkinn - 23.11.1964, Qupperneq 16
HVÍT ÞRÆLA
Ungar stúlkur hurfu í León í
Mexífcó. Lögreglunni bárust bréf frá
kvióafuHum foreldrum. Höfðu stúlk-
urnar strokið, voru þær myrtar eða
var hvít þrælasala á ferðinni?
Frá Plaza de Constitución verzlunarstöðinni í León í Mexíkó
sjást ekki hrörleg hreysin sem eru fátækrahverfi borgarinnar,
beggja megin við járnbrautarlínuna. Þessar ömurlegu húsnefnur
eru út um hvippinn og hvappinn í útjaðri bæjarins en verða
strjálli þar sem járnbrautin liggur út á eyðimörkina. Svo heldur •
einmanaleg brautin áfram unz hún nær E1 Paso í Texas, í 1226
km fjarlægð.
•León de los Aldamos heitir bærinn fullu nafni og hefur íbúa-
töluna 122,726. Á laugardögum mætti halda að flestir þeirra
væru samankomnir á markaðstorginu, æpandi, sveittir og ragn-
andi. Þefurinn tekur af öll tvímæli — sveittir líkamar, reykur og
sterkt krydd.
Á kvöldin er Plaza de Constitución upplýst og tónlistin berst
frá veitingahúsum og kaffihúsum. Leitarljós gælir við súlur
hallar einnar og í skuggsælunni og í skemmtigörðunum reika
senjórítur og leiðast. Þær brosa tælandi til karlmannanna sem
á vegi þeirra verða. Hér er hinn forni spánski siður með dúenn-
una aflagður fyrir löngu. Hverri stúlku er mest í mun að næla
sér í eiginmann og síðan má sannreyna hvort tekjur hans eru
jafn miklar og vonir stóðu til. Aðalatriðið er að giftast.
Þetta desemberkvöld árið 1963 eigraði stúlka um torgið. Hún
nam staðar hvað eftir annað og horfði svöng og græðgislega í
búðargluggana. Það var ekki fyrir mexíkana, það var aðeins fyrir
ameríkana, sem stöldruðu hér stundarkorn áður en lestin flutti
þá síðasta áfangann til Mexíkó City.
Jósefína Montesi var 17 ára, grönn, gljáandi augu og hrafn-
svart hár. Hún vingsaði til mjöðmunum eins- og siður var utan-
bæjarstúlkna sem komnar voru í bæinn að freista gæfunnar.
Skórnir hennar voru útjaskaðir og hælalausir og það voru
olnbogagöt á peysunni sem hún hafði brugðið yfir treyjuna
sína. En hún virtist ekki hafa áhyggjur af því. Hún horfði
áfergjulega á fallegu leðurvinnuna, silfurslegna söðlana sem
León hafði getið sér orð fyrir.
Á myndinni sjáum við enn eina stúlku sem slapp lifandi.
Hún fannst á dauðabýlinu. í herbergjunum hjá henni
fundust aðrar stúlkur bundnar naktar við rúmið og
grátt leiknar.
Tvær stúlknanna sem sluppu lifandi eftir að lögreglan
hafði komið upp um þrælasöluna. Sú til vinstri er 14
óra ög' vár neydd í væridishús 12 ára að aldri.
16
FALKINN