Fálkinn - 23.11.1964, Qupperneq 28
KÍNVERSKIR MYNDOFNIR
HANDSAUMAÐIR PÚÐAR OG
VÍROFNIR
HVAÐ GERIST ÞESSA VIKU
GÆSADÚNN — SÆNGUR
ENDURNÝJUN SÆNGUR OG KODDA
FLJÓT AFGREŒJSLA
HÖFUM EINNIG EINKASÖLU Á
REST-BEST KODDUM
Póstsendum
um land allt.
DÚN- OG FIDURHREINSUN
I VATNSSTÍG 3
(örfá skref frá Laugavegi) sími 18740.
Bmíu og ódvrusín fiíanlegar liillui*
■ geymslur vörulagera o. fl.
Leitið upplýsinga.
LANDSSMIÐJAN
Sími 20680.
Hrúturinn, 21. marz—20. avril:
Nú er tækifæri til að endurnýja gamlan
og góðan kunningsskap. Þú ættir einnig að
leggja drög að skynsamlegum áætlunum
fyrir framtíðina. Eiginmenn, bjóðið þið kon-
unum út á skemmtun um helgina, þið mun-
ið njóta þess líka.
Nautiö, 21 avríl—21. maí:
Það er mjög líklegt, að þú sjáir árang-
ur samvizkusemi þinnar á vinnustað i þess-
ari viku. Þú skalt umfram allt reyna að
komast hjá deilum við maka þinn. Nýjar
hugmyndir um tekjuaukningu munu koma
fram.
Tvíburarnir, 22. maí—21. iúní:
Nokkurrar öfundar yfir velgengni þinni
gætir meðal samstarfsmanna þinna, láttu
það ekki á Þig fá, en haltu þinu striki. Þú
munt þurfa að vera nokkuð mikið á ferð-
inni í vikunni, en farðu gætilega.
Krabbmn, 22. júní—28. júlí:
Þér hættir til að hafa of mörg járn í
eldinum þessa dagana. Þú ættir að reyna að
komast að einhverri niðurstöðu. Forðastu
að blanda þér inn í málefni nágrannanna,
því þú gætir dregizt inn í harðvítugar
deilur. Vertu sem mest heima við.
Ljóniö, 2i. júli—23. áaúst:
Þú ættir ekki að eyða of miklum tima
í verzlunum núna, því þér hættir til að
eyða um efni fram og kaupa jafnvel það,
sem þú hefur ekkert með að gera. Ferða-
iag eða skemmtun um helgina gæti leitt
af sér smá ævintýri.
Meyjan. 2í. áaúst—23. sevt.:
Peningarnir einir leysa ekki úr þeim
vandamálum, sem þú hefur við að glíma.
Sýndu samstarfsvilja þinn bæði heima og
á vinnustað. Þú ættir að gæta heilsunnar
betur en að undanförnu.
Voain, 2h. sevt.—23. okt.:
Nokkurs misskilnings kann að gæta i
sameiginlegum fjármálum. Gerðu þitt til,
að það lagist. Þú hefur tækifæri til að
koma einkamálum þínum vel fyrir. Hugs-
aðu þig um tvisvar, áður en þú skrifar
undir samninga eða skuldbindingar.
Drekinn. 2U. okt.—22. nóv.:
Fjölskylda þín þarf á allri þinni um-
hyggju að halda. Þú ættir að taka Það _ró-
lega og styrkja fjölskylduböndin og sýna
góðgirni þína í verki. Bjóddu vinum þinum
heim um helgina.
Boaamaöurinn, 23. nóv.—21. des.:
Þú ættir að skipuleggja dagleg störf þín
betur. Þetta getur orðið nokkuð skemmti-
leg vika. Þú munt kynnast nýju fólki, og
sýndu nú félagslyndi þitt til að vel rætist
úr þeim vinskap.
Steinaeitin, 22. des.—20. janúar:
Þessi vika mun verða full af skemmti-
legum málefnum, og mun ýmislegt nýtt
verða uppi á teningnum, en gleymdu þér
samt ekki í draumum þínum um auð og
metorð. Notaðu heldur þessar góðu afstöð-
ur til að ná einhverjum árangri.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. fébrúar:
Þér bjóðast ný tækifæri og sum þeirra
fyrir atbeina vina þinna, en þú ættir að
vera mjög varkár í þeim málefnum, sem
snerta fjármálin. Láttu vini þína vita um
sum áform þín, en ekki öll.
Fiskamerlciö, 20. febrúar—20. marz:
Komdu hugmyndum þinum á framfæri,
þær gætu gert þér kleift að komast betur
áfram. Forðastu deilur við maka þinn eða
félaga. Hann getur orðið þér hjálplegur
til að koma fram áformum um auknar
tekjur.
28
FALKINN