Fálkinn


Fálkinn - 23.11.1964, Qupperneq 35

Fálkinn - 23.11.1964, Qupperneq 35
ijegluforingi lýsti þeim sem hofgyðjum djöfulsins. Starfs- fólk þeirra birtist ef til vill í einhverju þorpi sem venjulegt ferðafólk. Það var á hnotskóg eftir ungum laglegum stúlkum á aldrinum 13 til 17 ára, komst að því hvar þær bjuggu og gerðu síðan systrunum aðvart sem síðan leigðu sér glæpa- menn til að ræna þeim. Síðan var systrunum ekið rakleitt á b úgarðinn. Þar voru þær klæddar úr hverri spjör og neyddar til að drekka ólyfjan sem örvaði kyn- hvöt þeirra. Sjö feta negra h olsvörtum var sigað á þær s >m baldnastar þóttu. Hann s tálmaði kviknakinn inn til þeirra. Síðan settu systurnar s úlkunum tvo kosti, annað hvort að láta að óskum þeirra e 5a verða háðar duttlungum negrans. í mjög fáum tilfell- um neituðu stúlkurnar sam- viinnu eftir að þær höfðu aug- um litið negrann. í einu hóruhúsanna sem syst- uírnar ráku fann lögreglan 15 Íúlkur á aldrinum 14 til 20 a — í öðru fundust aðeins níu og var sú yngsta 12 ára. fjessum var bjargað. . Systurnar tvær og sex konur aðrar voru ákærðar fyrir hvíta þrælasölu, morð, mannrán og ótal fleiri glæpi og afbrot. Nítján aðrir voru ákærðir fyr- ir morð, mannrán, nauðgun og ofbeldi. Jósefína, stúlkan sem hafði orðið til þess að ljóstra upp um glæpahringinn komst til fullrar heilsu á ný. Hún öðl- aðist fjör sitt að nýju og nú er hún senjóra Guerra. Réttar- höldunum yfir systrunum lauk með því að þær voru dæmdar til dauða og síðan voru þær hengdar opinberlega á aðal- torginu í León. DOINl CAIUILLO . . Framhald af bls. 23. stuttu hrósræðu, náði vélfræð- ingurinn í honum yfirhendinni. Hann leiddi einn vélfræðinginn afsíðis og fór að segja honum frá galla, sem komið hefði fram í olíudælu. Vélfræðingurinn hlustaði þolinmóður en yppti síðan öxlum, þar sem hann gat ekki veitt betra svar. Til allrar hamingju kom Petrovna þarna að von bráðar og bauðst til þess að túlka. Henni reyndist það þó harla erfitt, því að henni voru vél- fræðiorðin ekki tiltæk. — En hann skildi aðalatriðið, sagði hún við Peppone. — Hann segir að þeir hafi veitt þessu athygli og bíði nú eftir leyfi frá æðri stöðum til þess að breyta þessu í framleiðslunni. Vélfræðingurinn hló við og sagði eitthvað meira, en stúlk- an hleypti brúnum og hikaði við. Loks sagði hún án þess að líta á Peppone: — Hann segir að leyfið komi ef til vill á næsta ári. Hún gerði sig nú líklega til þess að ávarpa allan hópinn, en fé- lagi Scamoggia gekk í veg fyrir hana. — Félagi, sagði hann og lét skína í skjannahvítar tennur, sem vel hefðu sómt sér í Holly- woodkvikmynd. — Ég áttaði mig ekki vel á þessum síðustu tölum um framleiðsluaukning- una. Viltu ekki vera svo góð að endurtaka þær fyrir mig? Verkstjórinn hóf talnalestur- inn að nýju, og félagi Petrovna túlkaði. Scamoggia kinkaði áhugasamur kolli, eins og hon- um fyndust þessar tölur mjög merkilegar, og loks tók hann í hönd verkstjórans og hristi hana ástúðlega. — Þakka þér innilega fyrir, sagði hann og horfði á félaga Petrovnu. — Þú veizt ekki, hve mikla ánægju þú hefur veitt mér. — Hefur þú sérstaklega mikinn áhuga á landbúnaðar- vélum, félagi? spurði hún. — Nei, en mér þykir svo gaman að heyra þig tala. — Þetta var hreinskilnisleg játning, og svipur félaga Petr- ovnu harðnaði ofurlítið. — Félagi. .. hóf hún máls og ætlaði að veita honum hæfi- lega áminningu. En hún hafði aldrei komið í Trastevere-hverf- ið í Róm eða horft í eins heit augu og sjónir Scamoggia. Hún sagði ekki meira. R. var mjög rússnesk borg að öllu yfirbragði. íbúar henn- ar voru um hundrað og fimm- tíu þúsund. Bifreiðar voru fáar og umferð lítil á strætum. Gisti- húsið var lítið og fátæklegt, og Don Camiilo hafnaði í held- ur óhrjálegu herbergi. Hann Framh. á næstu síðu. FAlimini'J 35

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.