Fálkinn - 23.11.1964, Qupperneq 38
NÝJAR BÆKUR
Karlotta Lövenskjöld
Selma Lagerlöf er óefað ein-
hver allra vimælasti rithöfund-
ur á Norðurlöndum, frægð
hennar stóð með mestum blóma
á öndverðri þessari öld, og
hún hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels árið 1909. Verk Selmu
er óþarfi að kynna fyrir ís-
lenzkum lesendum af eldri kyn-
slóðinni, þar sem fjölmörg verk
hennar hafa verið þýdd og
þeim tekið með miklum fögn-
uði, þar á meðal höfuðverk
hennar Gösta Berlings saga og
Jerúsalem.
Karlotta Lövenskjöld er
hluti af sagnabálki um verm-
lenzka aðalsætt, og hefur
fyrsti hluti þessarar „þrísögu"
komið áður í ísl. þýðingu undir
nafninu Reimleikinn á Heiðar-
bæ, en sagan um Karlottu er
önnur í röðinni. Þýðandi bók-
arinnar, Arnheiður Sigurðar-
dóttir, segir í formála, að sagan
sé „lofsöngur til hversdagslífs-
ins — vitnisburður um sigur
skynsemi og raunhyggju yfir
öfgum og draumórum.“ Þriðja
sagan í þessum sagnaflokki
nefnist Anna Svard.
Flestar sögur Selmu Lagerlöf
f jalla um það, hvernig góðsemi,
raunsýni og dugnaður bera
sigurorð af eigingirni, þröng-
F.ýni og trúaröfgum — og þar
er Karlotta Lövenskjöld engin
undantekning. Þykir kannski
gamaldags yrkisefni á atómöld,
en skáldtök Selmu Lagerlöf
eru slík, að gömul hugtök öðl-
ast nýtt gildi, og henni tekst
jafnan að sneiða hjá væmni.
Sögur hennar eru ekki reyfar-
ar, heldur "káldskapur.
Karlotta Lövenskjöld er 259
blaðsíður að stærð, gefin út af
Setbergi og kostar kr. 274,30.
Misvindi
Á síðasta ári gaf Almenna
bókafélagið út greinasafn eftir
Snæbjörn Jónsson, og nefndist
það Vörður og vinarkveðjur.
Nú kemur út annað greinasafn
Snæbjarnar, að þessu sinni
undir titlinum Misvindi, um
það segir Snæbjörn: „Safn það,
sem hér birtist, er að nokkru
leyti ólíkt hinu fyrra, því hér
koma nú nokkur dæmi ádeilu-
greina minna.“
38 FÁLK.INN
Snæbjörn Jónsson er afkasta-
mikill greinahöfundur, enda
hafa greinar eftir hann birzt í
Snæbjörn Jónsson.
íslenzkum blöðum og tímarit-
um í nærfellt hálfa öld, og ber
þetta safn þess ærin merki, að
víða er komið við. Hér eru
greinar um kristindóm, spírit-
isma, bókagerð, blaðamennsku,
en sennilega verða samt mann-
lýsingar Snæbjarnar, sem eru
ófáar í þessu safni, eftirminni-
legastar lesendum.
Misvindi er gefið út af ísa-
foldarprentsmiðju, er 240 bls.
að stærð og kostar kr. 295,40.
Endurminningar
Bernharðs
Fyrir þremur árum komu út
hjá Kvöldvökuútgáfunni á Ak-
ureyri Endurminningar Bern-
harðs Stefánssonar alþingis-
manns, myndarlegt rit og á
ýmsan hátt skorinort. Náðu
þær endurminningar fram til
ársins 1944. Nú hefur Bernharð
bætt við síðara bindi minninga
sinna, og nær það frá 1944,
þar til er hann varð sjötugur.
Bernharð leggur á það áherzlu
í formála sínum fyrir þessu
bindi, að bókinni sé ekki ætlað
hlutverk stjórnmálasögu, hér
sé á ferðinni persónulegar end-
urminningar, þótt að sjálfsögðu
verði ekki hjá því komizt hjá
stjórnmálamanni að víkja tölu-
vert að þeirri refskák. Hann
segist og setja sér það mark
„skrifa það eitt, sem ég vissi
sannast og réttast.“ Bókin er
forvitnileg, einkum vegna þess
er um stjórnmálin er ritað.. Hér
er mikill skortur rita um ís-
lenzk stjórnmál, og enda þótt
hér verði varla krafizt hlut-
lausrar frásagnar, er engu að
síður girnilegt að kynnazt vett-
vangi stjórnmálanna innan frá,
Bernharð Stefánsson.
frá bardagamönnunum sjálfum.
Bókin er 252 blaðsíður að
stærð, gefin út af Kvöldvöku-
útgáfunni og kostar kr. 284,85.
Steingrímur
Thorsteinsson
Hannes skáld Pétursson hef-
ur sent frá sér bókina Stein-
grímur Thorsteinsson, líf hans
og list, og fyllir hún skarð,
sem lengi hefur staðið autt. Við
höfum hvergi nærri kannað
menningararf okkar frá síðari
öldum sem skyldi, og fyrir þá
sök eina er mikill fengur að
bók Hannesar. Hún er ekki
vísindarit í ströngum skilningi,
brýtur ekki einstaka þætti í
list Steingríms til mergjar,
heldur sinnir hún skáldinu og
manninum í heild, rekur ævi
hans, skýrir viðhorf hans til
Hannes Pétursson.
listar og lífs og fjallar víða
rækilega um skáldskap hans.
En umfram allt færir bókin
Steingrím nær nútíma íslend-
ingnum um leið og eykur skiln-
ing ökkar á íslénzkri menri-
ingu á 19. öld. Gildi bókarinnar
er fyrst og fremst fólgið í þeirri
heildarmynd, sem hún birtir af
Steingrími Thorsteinssyni og
samtíð hans.
Bókin er prentuð í prent-
smiðjunni Odda, gefin út af
Menningarsjóði, en Hörður
Ágústsson hefur annazt útlit
hennar.
Bókin kostar kr. 369,25.
Heildarútgáfa á
verkum Steins Steinars
Kvæðasafn og greinar er
nafn á nýrri heildarútgáfu á
verkum Steins Steinars í um-
sjá Kristjáns Karlssonar, og er
þetta í fyrsta sinn, sem verk
Steins birtast öll saman, bæði
í bundnu og óbundnu máli.
hins vegar er skammt síðan
Hannes Pétursson safnaði rit-
gerðum Steins saman í snotra
bók, er bar titilinn Við opinn
glugga. Urðu þessar ritgerðir,
sem margar hverjar höfðu ekki
birzt á prenti fyrr, mörgum
fagnaðarefni, og þá fyrst mátti
sjá, hversu mikill stílisti
Steinn var á óbundið mál.
Engu að síður er skemmtilegt
að fá nú verk Steins öll á einn
stað, ásamt mjög snoturri rit-
gerð um skáldskap hans eftir
Kristján Karlsson, en þar segir
hann m. a.: „Fáir menn horf-
ast jafn-staðfastlega og sjálfs-