Fálkinn - 23.11.1964, Side 40
Efni: Ólitað hörléreft með 12 þráðum á hvern
cm, 2 stk. 11X17 og eitt (botn) 11X3 cm.
Jafnmikið af þéttu en þó þunnu bómullarefni
í fóður, bómullarlengja og stífur. góður pappi.
Áróragarn til að sauma með og snúra í kring.
Sníðið 2 stykki úr pappanum 7X14 og gerið
hornin ávöl. Leggið annað á miðju efnisins og
teiknið útlínurnar, þræðið í línuna. Finnið miðj-
una og byrjið að sauma þar litla krossinn, sem
Fallegt, handhægt
gleraugnahulstur
merktur er með örvum á skýringarmynd-
inni, en örvarnar tákna miðlínur beggja
hliðanna. Hver reitur = 2 þræðir í efninu.
Saumið með tvíþættu áróragarni og
haldið áfram eftir skýringamyndinni, þar
til reiturinn innan þræðingarinnar er út-
fylltur. Klippið svo kantinn nál. 1 cm
frá þræðingu. Dragið pappann léttilega yf-
ir borðbrún, svo að dálítil sveigja komi
á hann á langhliðina og tyllið svo út-
saumnum þráðrétt á pappann. Athugið að
það falli þétt að pappanum. Farið eins að
með bakhlið hulstursins. Leggið svo hálft
lag af bómullarplötu á innri hlið pappans.
Framhald á bls. 42.
Púði með austurlenzku mynstrí
Apamynstur þetta á rætur sínar að rekja til Makusi á brezku Guayana.
Örunum er raðað í reglubundnar raðir og standa til skiptis rétt eða á haus.
Mynstrið er saumað í gróft hvítt hörléreft með rauðu bómullargarni eða í
ólitaðan ullarjava og þá með ullargarni. Saumað er með krosssaum, gert er ráð
fyrir 8 þráðum á hvern 1 cm á báða vegu í efninu. Hvert spor á skýringar-
rnyndinni er yfir 2 þræði í efninu.
Púðinn fulltilbúinn er nál. 28X33 cm. Klippt eru 2 stykki af efni hvert
35X40 cm og það þarf um 8 dokkur af garni. Saumað er yfir 2 þræði og
3 þráðum í nálinni. Það er aðeins saumað á aðra hlið púðans.
Varpið fyrst í kringum efnið og byrjið efst í vinstra horni á mynstrinu
nál. 5% cm frá báðum köntum. Þegar allt
mynstrið hefur verið saumað, eru taldir 14 þræð-
ir frá krosssaumsröndinni og brotið eftir þræði
allt í kring, ætlið 14 þræði í faldinn, klippið
aukaefni í burtu. Bakstykkið á að vera jafnstórt,
faldið bæði stykkin, ath. að klippa hornin á ská,
svo að þau verði ekki of þykk. Leggið réttu
stykkjanna saman og varpið þau þétt saman,
eins ósýnilega og hægt er. Munið eftir opi fyrir
púðann. Pressað á röngunni. Púðinn látinn í og
Iokað ósýnilega fyrir opið.
Hver reitur tveir þræðir.
40
FALKINIM