Fálkinn - 23.11.1964, Page 43
DOIM CAIVIILLO . .
Framh. ai bis. 37.
til þess að ekki kæmi til þess,
að hendur væru látnar skipta.
Þegar hann kom aftur inn í
borðstofuna, reyndi hann að
brosa glaðlega.
— Jæja, þessu er ráðið tii
lykta, sagði hann. — Félagi
Rondella er þakklátur félaga
Oregov fyrir hugulsemina.
Síöan tók Peppone glas sitl
og mælti fyrir skál til heilla
hinum sigursælu Sovétríkjum,
og félagi Oregov endurgalt með
því að mæla fyrir skál friðar
og frelsis til handa ítölskum
verkamönnum úr klóm auð-
valdsins.
— Eigum við ekki að drekka
skál Nadíu? hvíslaði Scamoggia
að Don Camillo.
— Stilltu þig, félagi, svar-
aði Don Camillo.
Kvöldverðurinn endaði í
glaðværð. Rúmri klukkustund
síðar, er Rondello var á leið
til Berlínar, gengu þeir Pepp-
one og Don Camillo til her-
bergis síns.
— Slökktu ljósið, félagi,
sagði Don Camillo. Þú getur
kveikt það aftur,. ef þú vilt,
þegar við erum háttaðir.
— Hvað á það að þýða?
spurði Peppone háðslega
— Prestur getur ekki látið
kommúnistaþingmann sjá sig á
náttklæðunum, svaraði Don
Camillo.
Þegar ljósið var kveikt aftur,
tók Don Camillo minnisbók
sína og skrifaði í hana: Félagi
Walter Rondella snýr aftur til
síns heima. Upphátt sagði
hann:
— Þar féll einn rauðliðinn.
— Engum nema presti er
trúandi til þess að beita slíku
þorparabragði, sagði Peppone.
— Ég vona, að þú reynir ekki
að leika þannig á mig.
— Við verðum að ræða við
þann, sem ég geymi í pennan-
um mínum um það, sagði Don
Camillo hægt.
Hann skrúfaði hettuna af
pennanum og tók úr belg hans
smáhlut, sem reyndist vera
Kristsmynd á silfurkrossi.
— Drottinn minn, sagði Don
Camillo og hóf augu sín til
himins. — Fyrirgefðu mér, að
ég skuli setja handleggi þína
á hjarir, svo og arma krossins.
En ég gat ekki tekið þig með
mér öðrum kosti.
— Amen, þrumaði Peppone
og stakk höfðinu undir sæng-
ina.
Framh. í næsta blaði.
FIOGFAR STRAX-FAR CREITT SlflAR
Loftleiðir bjóða íslenzkum viðskiptavinum sínmn
þriggja til tólf mánaða greiðslufrest á allt að helm ngi
þeirra gjalcla, sem greidd eru fyrir flugför á áætlun-
arflugleiðum félagsins.
Skrifstofur Loftleiða í Reykjavík, ferðaskrifstofurn-
a; og umboðsmenn félagsins úti á landi veita allar
nánari upplýsingar um þcssi kostakjör.
TRYGGIÐ FAR MEÐ FYRTRVARA.
— Fyrirgefið fröken, eigið
þér þennan hund? — Læknirinn segir að ég
verði að fá mér gleraugu . ..