Fálkinn - 14.12.1964, Qupperneq 41
Silfurmunir eftir Hrein M. Jóhannsson: fremst
eru ermahnappar, þeir minni eru fyrir kvenfólk-
ið og kosta 200—250 kr. en hinir, sem eru með
hvítum steinum, kosta 700 kr. Minni bókahnífur-
inn kostar 618 kr. en sá stærri með þorskinum
kostar 3.750 kr. — Mikill gripur og eigulegur.
íslenzka silfursmíðin.
Hjá Kornelíusi á Skólavörðustíg er margt
k fallegra muna: handunnir kínverskir listmunir,
skornir í rósavið, sem fluttir eru inn frá Þýzka-
landi; indverskar bronsvörur, skartgripaskrín frá
Japan, og svo má lengi telja. En mitt á meðal
- þessara glæsilegu muna stillir Kornelíus út silfur-
munum Hreins Jóhannssonar og þeir standast sam-
keppnina með prýði.
Útlendingum finnst íslenzk silfursmíði skemmti-
leg og sérkennileg. Þeir eru sérstaklega hrifnir
af íslenzkum steinum, sem flestir eru ættaðir úr
Glerhallarvík. Hreinn er sannfærður um að ís-
lenzka silfursmíðin sé samkeppnisfær á erlendum
markaði hvað gæði snertir, en tollarnir eru Þránd-
ur í Götu.
Kornelíus segir að smekkur fólks hafi mikið
batnað á undanförnum árum og fólk kaupi nú yfir-
leitt vandaða vöru; perlufestar og nælur, sem
selzt hafa vel mörg
undanfarin ár, virð-
ast vera að hverfa
fyrir handunnum
skartgripum.
Það er nýjung, að
kvenfólkið er farið
að spyrja eftir erma
hnöppum úr silfri.
Má telja víst að
silfursmiðum þyki
það góðar fréttir.
Kornelíus Jóns-
son ber Ómega-
úrið upp að eyr-
anu — auðvit-
að er gangurinn
þýður og hárná-
kvæmur.
Mikið að gera hjá Axminster.
Gunnar Finnbogason,
verksmiðjustjóri hjá Axminster:
Það hefur alltaf verið mikið meira að
gera fyrir jólin. Salan jókst að mun fyrlr
mánuði, og nú erum við hættir að taka
pantanir. Það er mest fjölskyldufólk, sem
kaupir teppi fyrir jólin, og flestar pant-
anirnar fara í nýju húsin.
Hér er unnið á vöktum allan sólarhring-
inn og nú starfa hjá okkur 28 manns.
Það hefur aldrei verið meira að gera hjá
okkur en í ár og síðastliðið ár. Við getum
ekki annað pöntunum nema frá Reykja-
vík og Suðurlandi, en aftur á móti höfum
við umboðsmann á Akureyri. Fyrirtækið
hefur starfað í ellefu ár og nú er verið að
byrja á viðbótarbyggingu.
Við höfum á boðstólum milli 30 og 40
mynstur og liti. í dag er eftirspurnin mest
eftir yrjuðum teppum, en fólk kýs helzt
að kaupa svo til einlit teppi, enda er það
hentugast.
Nú kostar fermeterinn af gólfteppunum
595 krónur fyrir utan filt. Menn frá okk-
ur annast allar mælingar, snið og saum.
Efnið í teppunum er íslenzk ull, baðm-
ullarþráður frá Finnlandi og hörþráður
frá Englandi.
Hreinn M. Jóhannsson legg-
ur síðustu hönd á silfur-
kross, sem hann er að smíða
fyrir kvenfélagið Einingu á
Skagaströnd. Silfurkrossinn
á að prýða altari Hólanes-
kirkju.
Gunnar Finnbogason, verksmiðjustj.
svarar fyrirspumum í símann og
reiknar út um Ieið fermetrafjölda
og verð fyrir viðskiptavininn.
Þorleifur Bragi Guðjónsson grípur hér eitt
teppi, sem á að fara til Vestmannaeyja, en
öll teppahrúgan, sem sést á myndinni, á að
fara þangað.
Það er semsagt gott hljóð í Axminster-
mönnum og þeir eru hvergi smeykir við
framtíðina, eða keppinauta.