Fálkinn - 14.12.1964, Page 46
eðlilegum ástæðum er orðið
minna nýjabragð að dagbók-
um Jakobs H. Líndals, þegar
NÝJAR RÆKUR
Tregaslagur
Nýlega er komin í bókaverzl-
anir ný ljóðabók eftir Jóhannes
úr Kötlum, og nefnist hún
Tregaslagur, en Jóhannes hef-
ur verið mjög afkastamikill
upp á síðkastið, og nægir þar
a nefna bókina Óljóð, sem
kom út 1962.
Tregaslagur skiptist í þrjá
hluta. Fyrsti hlutinn nefnist
Á mörkum tveggja heima og
hefur að geyma 15 ljóð, annar
hlutinn heitir Talað við sjáifan
sig, og birtast þar 20 ljóð, en
í síðasta hlutanum, sem ber
nafnið Stef úr glataðri bók,
eru 21 ljóð. Höfundur tekur
fram, að þessi síðasti þáttur sé
tengdur „þeim minum góða
horfna vini sem nefndur er í
©inu ljóðanna,“ en það er Árni
Hallgrímsson.
Jóhannes úr Kötlum.
Víða kveður við. nýjan tón í
þessari nýju Ijóðabók Jóhann-
esar, og er það undrunarefni
margra, hversu honum tekst að
birta nýja hlið á skáldskap
sínum með hverri bók sinni.
Tregaslagur er 143 blaðsíður
að stærð, gefin út af Heims-
kringlu og kostar kr. 294,00.
Þættir um íslenzkt
mál
Bók Almenna bókafélagsins
fyrir ágústmánuð eru Þættir
um íslenzkt mál, en þeir voru
áður fluttir í erindaflokki út-
varpsins um íslenzka tungu,
sem haldinn var á útmánuðum
1963. Ritstjóri bókarinnar er
Halldór Halldórsson prófessor,
en hann segir meðal annars í
formála:
„Þættir þeir um íslenzkt mál,
sem hér birtast, eru frá hendi
höfunda hugsaðir sem alþýð-
leg fræðsla um íslenzka tungu
og þróun hennar. Hér er ekki
um það að ræða, að birtar séu
nýjar athuganir eða niðurstöð-
ur nýrra rannsókna, þótt að
vísu sé í sumum þáttanna ýmis-
legt, sem ekki hefur verið
áður fram tekið eða sett fram
á 'þann hátt, sem hér er gert.
Þetta bið ég lesendur að at-
huga, svo að þeir búist ekki
við öðru né meira en ætlað er.
Bókin er ?em sé hugsuð sem
aiþýðlegt, fræðslurit.“
Bókin Þættir um íslenzkt
mál geymir 8 þætti, en höfund-
ar þeirra eru Hreinn Benedikts-
son, Jón Aðalsteinn Jónsson,
Jakob Benediktsson, Halldór
Halldórssori, Ásgeir Blöndal
Magnússon og Árni Böðvars-
son. Aftast er skrá yfir helztu
rit um íslenzka tungu. Bókin
er 202 blaðsíður að stærð.
Horft á Reykjavík
Árni Óla sendir nú frá sér
fjórðu bók sína um Keykja-
vík, sem hann nefnir Horft á
Reykjavík, en titlar hinna
þriggja, sem áður eru komnar,
eru Fortíð Reykjavíkur (1950),
Gamla Reykjavík (1954 og
Skuggsjá Reykjavíkur (1961).
Jafnframt fylgir hinni nýju
bók nafnaskrá yfir allt ritsafn-
ið, sem orðið er geysimikið að
vöxtum. Undirtitill bókarinnar
er sögukáflar, og eru þættirnir
36 talsins og fjalla um hin
margvíslegustu efni, er varða
Reykjavík fyrr og nú.
Höfundinn, Árna Óla, er
óþarft að kynna, hann er
þegar orðinn þekktari en svo
fyrir bækur sínar og grein-
ar, ekki hvað sízt fyrir skrif
sín um Reykjavík, en þar má
hann heita sérfræðingur og
hefur enginn gert höfuðstaðn-
um þvílík skil sem hann. Er
ekki að efa, að hin nýja bók
Arni Óla.
hans verður þakksamléga þegin
af öllu því marga fólki, sem
les bækur Árna og ann þjóð-
legum fróðleik.
Horft á Reykjavík er gefin
út af ísafoldarprentsmiðju, er
401 bls. að stærð, prýdd fjölda
mynda og kostar kr. 379,00.
IUeð huga og
hamri
Með huga og hamri, Jarð-
fraeðidagbækur og ritgerðir,
nefnist nýútkomin bók eftir
Jakob Líndal, Sigurður Þórar-
insson bjó til prentunar og rit-
aði formála. Þar segir hann
meðal annars:
„Sú bók, sem hér kemur fyr-
ir aimenningssjónir, hefur að
geyma nær allt það, sem Jakob
H. Líndal skrifaði á íslenzku
um jarðfræði lands síns. Meiri
hluti bókarinnar er dagbækur
hans, sem hann sjálfur nefnir
jarðfræðidagbækur. Þær elztu
eru aðeins til í uppkasti og eru
þær án ár eða dagsetninga, en
munu vera frá sumrunum
næstu fyrir 1938. Frá og með
sumrinu 1938 eru dagbækurnar
hreinritaðar, en hreinritunin
virðist gerð að loknum ferða-
lögunum ár hvert. Síðasta dag-
bókin er frá sumrinu 1944. Af
Jakob H. Líndal.
þær nú loks koma fyrir al-
menningssjónir en þegar þær
voru skrifaðar. En þær eru enn
brunnur fróðleiks um jarðfræði
og staðhætti þeirra svæða, sem
þær fjalla um, og þær varpa
skýru ljósi á vísindamanninn
Jakob H. Líndal og vinnu-
brögð hans. Ásamt ritgerðun-
um eru þær óbrotgjarn minnis-
varði glöggskyggni og vísinda-
legum hugsunarhætti þessa
hógværa bónda.“
Með huga og hamri er 410
blaðsíður að stærð, gefin út af
Menningarsjóði og kostar krón-
ur 379,80.
Taminn til kosta
Guðrún A. Jónsdóttir, sem er
höfundur bókarinnar Taminn
til kosta, hefur skrifað eina
skáldsögu áður, Helgu Hákon-
ardóttur, er kom út hjá bóka-
forlaginu Norðra.
í kynningu á bókinni er sagt
m. a. að þetta sé alþýðleg bók
í góðri merkingu. „Skáldkonan
er glöggskyggn á tilfinningar
og ástríður manna og áhrif
þeirra á líf þeirra og mótun.
Hún hefur næmt auga fyrir
fegurð íslenzkrar náttúru og til-
brigðum hennar, er orðauðug
og orðsnjöll og gædd ríkri frá-
sagnargleði, ásamt tilfinningu
fyrir því, sem líklegt er til
dramatískra áhrifa ...“
Guðrún A. Jónsdóttir er bú-
sett 1 Borgarnesi, fædd 1908
að Ásbjarnarstöðum í Stafholts-
tungum.
Bókin er 298 bls. að stærð,
gefin út af ísafoldarprent-
smiðju og kostar kr. 253,00
FALKINN