Fálkinn - 14.12.1964, Síða 50
HVAD GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl:
Þú hefur löngun til að koma hinum stór-
kostlegu hugmyndum þinum á framfæri.
Einhver eldri persóna getur reynzt þér
hjálpleg og lagt inn góð orð fyrir þig hjá
yfirmönnum þínum.
Nautiö, 21. apríl—21. maí:
Gamall vinur þinn kemur langt að til að
heimsækja þig. Þú ættir einnig að nota
tímann til að ljúká jólainnkaupunum. Láttu
ekki óvænt leiðindaatvik spilla jólagleði
þinni, þú hefur tækifæri til leiðréttingar
síðar.
Tvíburarnir, 22. maí—21. júní:
Ef þú lætur undir höfuð leggjast að leið-
rétta misskilning þann, sem orðið hefur,
geturðu átt á hættu að það komi fram á
atvinnu þinni. Fjölskylda þin mun gera
sitt til að aðstoða þig.
Krabbinn, 22. júni—23. júli:
Þú ættir að flýta þér að koma af því,
sem þú hefur að gera fyrir jölin, en leggðu
þó ekki of hart að þér. Skipuleggðu starfið
vel og leyfðu börnum þínum eða öðrum
ástvinum að taka þátt í því með þér.
Ljóniö, 21,. júlí—23. ágúst:
Þú hefur nú tækifæri til að gera það
góðverk, sem veita mun þér gleðileg jól.
Reyndu að njóta sem bezt ánægjunnar við
undirbúning jólanna, en láttu nágrannana
ekki blanda þér í deilur.
Meyjan, 21,. ágúst—23. sept.:
Vertu þess minnugur, að þetta er sá timl
ársins, sem þú átt að undirbúa og starfa aí
með gleði. Ef einhverjir fjölskyldumeðllm-
ir þinir eiga i erfiðleikum, þá skaltu um-
fram allt reyna að hjálpa þeim.
Vogin, 21,. sept.—23. okt.:
Þú ættir að leggja áherzlu á að koma
hlutunum I rétt horf I stað þess að bíða
eftir, að það gerist að sjálfu sér. Gamall
fjölskylduvinur gæti reynzt þér hjálplegur
og gefið góð ráð. Vertu sem minnst á ferð-
inni.
Drekinn, 21,. okt.—22. nóv.:
Þú ættir að skipuleggja sem bezt þá daga,
sem eftir eru til jóla, og þá ekki sízt, hvað
peningunum viðkemur, það gæti orðið
nokkuð stutt í þeim, ef ekki er gætt vel að.
Taktu ekki fé að láni.
BogamaÖurinn, 23. nóv.—21. des.:
Þetta ætti að verða þér ánægjuleg vika,
enda hefur þú unnið til þess, að svo megi
verða. Notaðu því tímann til að skrifa vin-
um þínum jólakveðjur. Þú ættir einnig að
komast að sem beztu samkomulagi við
maka þinn eða félaga.
Steinr/eitin, 22. des.—20. janúar:
Þú hefur ýmsar góðar hugmyndir á prjón-
unum til að gera jóladagana ánægjulega,
og þú ættir að reyna að vinna sem bezt úr
Þeim. Reyndu að forðast óþarfa áhyggjur,
því að einhver náinn vinur þinn mun reyn-
ast þér vel eins og oft áður.
Vatnsberinn, 20. janúar—19. febrúar:
JReyndu að koma sem fyrst af því, sem
Þú þarft að verzla fyrir jólin, þá hefur þú
betri yfirsýn yfir hlutina. Það gæti orðið
nokkur breyting á högum þínum í þessari
viku, en vinir þínir munu verða þér hjálp-
legir.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Mánudagurinn er tilvalinn til að verzla,
en þú verður að viðurkenna, að létt skap
þitt veldur þvi, að þú eyðir heldur miklu.
Seinni hluti vikunnar mun verða nokkuð
erfiður og valda hindrunum.
FLOTEX plast-nylon teppi eru falleg og sterk
Glæsilegt franskt litaval með ótal blæbrigðum eftir
því hvemig ljósið fellur á það.
Sólarljósið vinnur ekki á litum þess.
FLOTEX er hægt að ryksuga og þvo. Af því nást auð-
veldlega allir blettir, ávaxtasafi, blek o. fl.
FLOTEX einangrar hita og hljóð, því fylgir kyrrð og
hlýja.
FLOTEX er alltaf eins og nýtt
FLOTEX á öll gólf.
FLOTEX-UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI
Brautarholti 20. Símar 21999 og 32847
FRANSK-ÍSLENZKA
VERZLUNARFÉLAGIÐ
50
FALKINN