Fálkinn - 14.12.1964, Blaðsíða 55
TÓNABÍÓ SÝNIR:
TARAS
BUIBA
Jólamynd Tónabíós að þessu sinni er Taras Bulba. Myndin
er byggð á skáldsögu Nikolja Gogols. Atburðirnir gerast í byrjun
sextándu aldar, þegar tyrkneski herinn œðir inn í Evrópu. Þeir
stefna herjum sínum til vesturs og nálgast landamæri Póllands.
Pólski prinsinn Grigory hefur á hendi forustu hersins og bíður
ósigur fyrir Tyrkjum og vill ekki grípa til varaliðs síns, þar sem
hann á von á liðstyrk Kósakka. Þeir koma á síðustu stundu og
sigra Tyrkina. Kósakkarnir berjast fyrir frelsi lands síns, en Pól-
verjarnir vilja halda sléttunum og nota þær sem varnarbelti gegn
Tyrkjum. Kósakkahetjan Taras Bulba lendir í stríði við menn
Grigorys, þegar hann sér hvað þeir ætla sér. Herstyrkur Pólverja
er miklu meiri en kósakkanna. Kósakkarnir brenna því bæi sína
og flýja til fjalla í þeim tilgangi að ráðast síðar á Pólverjana,
þegar þeir sjá sér fært.
Síðari hluti myndarinnar gerist nokkrum árum seinna og segir
frá hefndum kósakkanna. Þar koma við sögu tveir synir Taras
Bulba þeir Andrei og Ostap og Natalía dóttir pólska landsstjórans.
Áður en kósakkarnir ná rétti sínum gerast ýmsir atburðir og sigur-
inn verður Taras Bulba ekki eins sætur og hann hafði gert sér
vonir um.
Það mun hafa valdið aðstandendum þessarar myndar nokkrum
erfiðleikum að finna hentuga staði til að kvikmynda á. Þeir reyndu
víða fyrir sér t. d. í Júgóslavíu, Grikklandi, á eyjunni Ródos og í
Mexíkó. Að lokum fundu þeir staðinn, Salta í Argentínu. En þótt
staðurinn væri fundinn, var margt enn óleyst. T. d. þurfti að sauma
um 12 þúsund búninga og ráða þúsundir stadista. Að lokum voru
þó allir erfiðleikar úr sögunni og myndatakan gat hafizt. Hún
stóð í rúma fjóra mánuði, og þegar henni lauk, er sagt, að lengd
filmunnar hafi verið um 90 kílómetrar. Kostnaður við kvikmynda-
tökuna mun hafa numið eitthvað um 300 milljónum íslenzkra króna.
Leikstjóri myndarinnar er J. Lee Thompson. Hann tók til við
þessa mynd eftir að hafa stjórnað myndinni Byssurnar í Navarone
sem sýnd var við miklar vinsældir í Stjörnubíó fyrr á þessu ári.
Thompson hefur fengizt við margt, var m. a. siglingafræðingur og
sprengjuvarpari í brezka flughernum á styrjaldarárunum. Þá hóf
hann að skrifa leikritið „Murder Without Crime“ sem hlaut góða
dóma á frumsýningu. Seinna var það leikrit kvikmyndað og
skrifaði Thompson sjálfur handritið að þeirri mynd og stjórnaði
henni. Sú mynd þótti mikill sigur fyrir Thompson.
Þeir sem fara með aðalhlutverkin í myndinni eru allt þekktir
leikarar. Yul Brynner fer með hlutverk Taras Bulba. Við höfum
hér séð flestar myndir þær sem hann hefur leikið í, m. a. Konung-
urinn og ég, sem færði honum Oscarsverðlaunin 1956 Nú síðast
mun myndin Bræðurnir Karamazov hafa verið sýnd hér.
Tony Curtis fer með hlutverk Andrey Bulba. Það er óþarfi
að kynna Tony nánar því hann er vel þekktur hér. Christine Kauf-
mann leikur Natalíu, dóttur pólska landsstjórans.
T -.#• -
t ■■ . ^
HAFNARFJARÐÁRBfÓ
SÝNIR:
Hafnarfjarðarbíó sýnir að þessu sinni sem jólamynd,
Fröken Nitouche, danska mynd sem byggð er á hinni
vinsælu óperettu.
Það er óþarfi að kynná efni þessarar vinsælu óperettu,
þar sem hún hefur tvívegis verið sett á svið hér; fyrst
í Iðnó og seinna í Þjóðleikhúsinu. í bæði skiptin var
það Haraldur Björnsson sem leikstýrði og Sigrún Magnús-
dóttir og Lárus Pálsson sem fóru með aðalhlutverki-..
Annelise Reenberg heitir sú sem leikstýrir þessari
mynd. Hún er lærður ljósmyndari og við fyrstu mynd-
irnar sem hún vann að var hún kvikmyndatökumaður.
Seinna fór hún svo að fást við leikstjórn og stundum
hefur hún verið hvortveggja í senn leikstjórinn og
kvikmyndatökumaðurinn. Hún hefur einu sinni hlotið
kvikmyndaverðlaunin dönsku, Bodil-verðlaunin.
Það er Dirch Passer sem fer með hlutverk söngkennar-
ans við klausturskólann og óperettuhöfundarins. Það
væri að bera í bakkafullan lækinn að fjölyrða hér um
Dirch og hans list, svo margar mynda hans hafa verið
sýndar hér hin seinni árin. Stundum hefur mönnum
þótt nóg um, en hvað um það — Dirch hefur oft sýnt
ágætan leik og komið mönnum til að brosa.
Það er Lone Hertz sem fer með hlutverk Cliariotte.
Lone er ung og vaxaíidi leikkona og fyrir leik sinn í
þessari mynd hlaut hún ágæta dóma i dönskum blöðum.
Af fyrri myndum, sem við höfum séð hana í, má nefna
Sælueyjan. Það er Katy Bödtger sem syngur hlutverk
Charlotte í myndinni.
Af öðrum leikurum má nefna Ebb Langberg, Hans
Kurt. Else Marie, Malene Schwartz, Poul Hagen, Ove
Sprogöe.
FÁLKINN 55