Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1965, Side 11

Fálkinn - 03.05.1965, Side 11
„ÞETTA ER FRISTIJNDAFITL” viðtal við Harald Guðbergsson, teiknara, um hina nýju myndasögu sem hefst í þessu blaði. I þessu blaði hefst ný myndasaga eftir sögnum af Sæmundi inum fróða, en hinn góðkunni teiknari Har- aldur Guðbergsson hefur gert hana. Þegar Haraldur kom til okkar með fyrstu myndirn- ar, notuðum við tækifærið og spurðum hann nokkurra spurninga í tilefni sögunnar og fer samtalið hér á eftir: — Hvenær hófst þú þinn myndlistarferil, Haraldur? — Það má segja að hann hafi byrjað þegar ég var á Reykjalundi, en þá var Gunnar Gunnarsson, listmál- ari, fenginn til að leiðbeina í teikningu og málun. Það byrjuðu nokkuð margir í tímum hjá honum, nokkrir heltust úr lestinni eins og gengur, en ófáir héldu samt áfram. — Og síðan fórstu í Hand- íðaskólann? — Já, ég var víst sá eini sem gerði það, en þar var ég í tvo vetur og hafði þá Sig- urð Sigurðsson og Sverri Haraldsson að aðalkennur- um. Og síðan? — Síðan hef ég verið við þetta þegar tími hefur unn- izt til. — En hvenær fékkstu á- huga á að teikna myndasög- ur? — Hann hefur verið nokk- uð lengi fyrir hendi. Ég byrjaði á því að krota upp persónur yfir kaffibolla og smátt og smátt varð heild úr krotinu. Ása-Þór var fyrsta viðfangsefnið. — Og nú er hann fastráð- inn hjá Lesbók Morgun- blaðsins? — Já, og vinnufélagi minn, Knútur Magnússon, á sinn þátt í þeirri ráðningu, en hann hvatti mig til að koma sögunni á framfæri. — Svo Knútur er máske meðeigandi í Ása-Þór? — Við skulum nota hans eigin orð um þá hlið máls- ins, en Knútur sagði, að ef ég teldist faðirinn að þessum fígúrum, þá gæti hann talist afinn. — Þið vinnið á legsteina- verkstæði, hvernig fer það saman, að gera grafskriftir á daginn og grínmyndir af Sæmundi inum fróða á kvöldin. — Ætli þessi myndasaga verði ekki grafskriftin yfir þjóðsagnaáhuga íslendinga? — Hvenær heldurðu að sá tími komi að íslenzkir teiknarar geti haft mynda- sögutilbúning að aðalstarfi? —Eins og málum hefur verið háttað, hefur útlitið satt að segja verið heldur svart, en máske væntanlegt sjónvarp skapi þeim tæki- færi. — Ertu með fleiri mynda- sögur í bígerð? •— Af nógu er að taka, enda eru íslenzkar þjóðsög- ur og fornsögur ótæmandi verkefni, hvort heldur er í léttum eða alvarlegum dúr. En þar sem markaðurinn er svo naumur og greiðslan er aldrei nægileg til að gera verkefninu virkilega góð skil, verða þau því miður að vera frístundafitl. — Svo við víkjum að myndasögunni sjálfri, þú virðist fara nokkuð frjáls- lega með efnið? — Já, að vísu, en ég læt söguþráðinn halda sér. Það mætti segja að þetta væri myndasaga af Sæmundi in- um fróða, með tilbrigðum. Ég man ekki eftir þessum fugli í sögunni, eða hvaða fugl er þetta? — Spurðu mig ekki að því, ég er ekki fuglafræðing- ur. ★ ★ Hóxo EtM ÍM oc toeitf IÍ0M A HVERII/W Df4l IHN Vrt vewnn 0« RkTTi SKcn-flpa.nl/vi/rt fllRT. ÍU MÞ'MXILOI tH ■ S£R, SErt SK'ÍI.AM// ■ HÍLT, M HAAW ÍKVIOI elífi fl/U/H, se« j'iBfl<T*fl CSKK </TAF flÉ/rtj Tfrt ai/nr fín'J IÁR irfflflnw* * ‘ari IUV WiAOAim VIIJU. AD KÍUKI Htn SKbltoU, VH-DlJ HVt« JEAtAT.fMBA Á StRFKÁ AOCAHCn SEtmTVfúr jÆL. ÚR HOMUM- Éffs EINU Sim VOSU MÍ» ÍSLEUOINqflH I ÍMIfTflJ/fÓLfl: ttlfUR RgiMtO//, SírtUVOUR FRbei oq HÁLre/m HU/IIUSoH FÁLKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.