Fálkinn


Fálkinn - 03.05.1965, Side 38

Fálkinn - 03.05.1965, Side 38
KVENÞJ ÖÐIN IIITSTJÖItl: KltlSTJANA STTIIVGIIÍIIfSDÓTTIR EKKI SVONA 1. Nei, ekki fleiri en eitt skozkt mynstur í einu. Það er nóg að vera í skozku pilsi, en ef þú setur upp húfu með annars konar skozku mynstri og berð tösku með enn einu mynstr- inu, þá verður útkoman í hæsta máta óróleg, eins og sjá má. 2. Fíngerð blúndublússa á ekki vel við gróft skozkt pils. 3. Marglit perlufesti og mislit armbönd — ænei, sjáðu bara, hvað þetta er afkáralegt. 4. Og farðu ekki í fínu skóna þína með háu pinna- hælunum. SVONA 1. Já, þetta er einhver munur. Nú getur efnið í pilsinu notið sín. Einlit gróf- gerð ullarpeysa fer prýði- lega við það. 2. Þykkir ullarsokkar í sama lit og peysan geta verið klæðilegir. 3. hárbandið er líka. í sama lit. Einföld snyrtileg greiðsla. 4. Flatbotna gönguskór þurfa ekki að vera neitt durnalegir. 5. Enga skartgripi nema kannski litla gyllta keðju um úlnliðinn eða stórgerða nælu á brjóstinu. Nú er út- koman látlaus og sportleg, ágætur síðdegisfatnaður. Veiðimanna- brauð og rækju- ostabrauð Veiðimannabrauð (handa 10 manns). 1 heimabakað hveiti- brauð 150 g smjör Sinnep, sítrónusafi 10 sneiðar ostur 10 sneiðar skinka 10 sneiðar tómatar eða agúrka. Skerið brauðið í um 20 sneiðar, þó þannig að brauð- ið hangi vel saman. Krydd- ið smjörið með sinnepi og sítrónusafa. Smyrjið aðra hverja skoru eins vel og hægt er með smjörinu. Setj- ið ost- og skinkusneið saman í ósmurðu skorurnar. Látið agúrku eða tómatsneiðar standa upp úr brauðinu. Brauðið sett á málm- pappír, sem vafinn er frekar þétt að brauðinu, svo að það er eins og í móti. Brauð- ið sett inn í heitan ofn 225° í nál. 6 mínútur, eða þar til smjörið hefur bráðnað og skinka og ostur er orðið volgt. • • • • • Framh. á bls. 42. Rækjuostabrauð. Gott er að bera hrátt salat með brauðinu. 38 F/LKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.