Fálkinn - 14.02.1966, Qupperneq 4
FYRIR UNGA FÓLKID *
THE BEATLES 1 ( AVI II\ KllliM M
Það byrjaði allt í Cavern
klúbbnum í Liverpool. Þar komu
The Beatles fram og léku kvöld og
kvöld við góðar undirtektir. Síðan
kom Brian Epstein til sögunnar.
Nú, framhaldið þekkja táningarn-
ir betur en nokkurt atriði í mann-
kynssögunni. Myndin er tekin í
umræddum klúbb og eins og sjá
má, hafa Bítlarnir ekki verið tekn-
ir til við að safna hári, enda var
Ringo ekki kominn til sögunnar.
Blökkumanninn kann ég ekki að
nefna, en allt um það, fer auð-
sýnilega vel á með þeim félögum.
☆ BENEDIKT YIGGÓSSON SKRIFAR
Peter
og
Gordon
Um tíma leit út fyrir að þeir yrðu að hœtta að syngja.
Hér er um að ræða tvo unga Breta, Peter Asther, 21 árs og Gordon
Walker, 20 ára.
Á fyrstu plötu þeirra var titillagið A world without love, en það
var samið af þeim Lennon og MacCartney. Lagið komst í fyrsta sæti
bæði í U. S. A. og Bretlandi. Frægðarferill þeirra var hafinn eða svo
héldu menn. En er plata nr. 2 kom út, gerðist það einkennilega, að hún
náði sama og engri sölu í Bretlandi. Þannig fór einnig um næstu plötur.
Vonleysið gagntók Peter og Gordon og þeir létu hafa eftir sér, að ef
næsta plata kæmist ekki á TOPP 20. listann, þá myndu þeir ekki syngja
inn á fleiri hljómplötur. Að vísu gengu plötur þeirra vel í U. S. A., en
þeim varð að sjálfsögðu mest umhugað að endurheimta vinsældir sínar
í föðurlandi sínu.
Á næstu plötu þeirra var gamalt lag í nýrri útsendingu, True love
ways, og viti menn, það rauk strax upp fyrir 10 á vinsældalistanum
og var þar vikum saman. Nú birti yfir sviðinu og félagarnir fylgdu
þessum óvænta, en gleðilega sigri fast eftir og nú var það hið fallega
og ógleymanlega lag To know you is to Iove you, sem varð fyrir valinu
og þá beindist sviðsljósið svo um munaði að brezku piltunum, því
þetta lag náði gífurlegum vinsældum um heim allan. Síðar rak hver
platan aðra og hugmyndin um að hætta söngnum var rokin út í veður
og vind.
4
FALKINN