Fálkinn - 14.02.1966, Blaðsíða 5
„En sá lubbi”
gæti maður haldið, að Paul MacCartney væri að segja við
Brian Jones, meðlim Rolling Stones, en sá síðarnefndi bros-
ir aðeins góðlátlega. Það er ekki oft, sem næst mynd af
þessum piltum saman, en það er fróðlegt að bera saman
hársnyrtinguna og klæðnaðinn á þessum tveim fulltrúum
vinsælustu „pop“-hljómsveita í Bretlandi, Rolling Stones
og Beatles.
GLÆSILEG SKRIJGGIJKERRA
Það væri ekki afleitt að reyna þennan, að maður tali
nú ekki um að vera fær um að eigna sér hann. En því
er nú ver, hér er aðeins um sýningarbifreið að ræða. Þessi
ögrandi farkostur er framleiddur af Chevrolet og sá kraft-
mesti, sem verksmiðjan hefur framleitt — þeir vita ekki
einu sinni, hvað hann kemst hratt, því að .. . Góði vertu
ekki að þessu pípi. Eins og það skipti einhverju máli. Það
er olræt, ef tækið kemst á 80 á rúntinum. Þá myndi maður
sko sópa niður nokkrum löggum í leiðinni. Það er bara
verst, hvað tryllitækið er lítið. Það er sko eiginlega ekki
hægt að halda partí í honum.
IVIEIRA SVIIMG
Kæri Fálki!
Ævinlega er gott að eiga
þig að. Ég þekki satt að segja
ekki heppilegri vettvang, til
þess að koma á framfæri, því
sem manni liggur á hjarta.
Sannleikurinn er nefnilega sá,
að vettvangurinn til að koma
sorgum sínum á framfæri er
ákaflega þröngur. Sem sagt:
Guði sé lof fyrir Fálkann.
Ég er fæddur skömmu fyrir
stríð og er af þeirri kynslóð,
sem foreldrarnir gáfust upp á
að ala upp, og á táningsárum
mínum þurfti ég og mínir jafn-
aldrar vissulega að glíma við
tröllaukin vandamál. Þá eins
og nú, var ein tegund tónlist-
ar vinsælust, nú er það Bítið,
þá var það svingið, eða sveifl-
an. Einhvern veginn hefur
sveiflunni verið svo gott sem
útrýmt úr Ríkisútvarpinu. Það
er mikið talað um sérstaka
þætti fyrir gamalt fólk og aðra
fyrir ungt fólk, gamla fólkið
vill harmóniku og unga fólkið
bítlamúsík, en við hin höfum
einhvern veginn dottið niður
á milli í lagavali útvarpsins.
Eini Ijósi punkturinn er
morgunútvarpið þegar Jón
Múli situr við stjórnvölinn, en
það er því miður ekki alltaf og
harla sjaldan í seinni tíð. Sem
dæmi um þá lágkúru, sem út-
varpið er dottið niður í í laga-
vali, mætti nefna sunnudags-
danslögin. Annað eins dóma-
dagsmoð í músíkformi þekkist
áreiðanlega hvergi á byggðu
bóli. Ég hef enn engan hitt,
sem mælir þeim ósköpum bót.
Mætti ég nú í fyllstu einlægni
koma því á framfæri við þessa
ágætu stofnun að hún endur-
skoði afstöðu sina til sveifl-
unnar þannig að við „gömlu“
mennirnir getum af og til látið
hugann reika til liðinna ham-
ingjudaga, þá er við vorum
ungir.
Sveifluunnandi.
Svar:
Ja, livort viö viljum eklci
lcoma þessu á framfæri.
Það var á mjög fínum
heimavistarskóla fyrir stúlk-
ur. Einu sinni spurði ein
kennslukonan forstöðukon-
una, hvort það væri satt að
faðir hennar hefði setið yfir
rollum.
— Já, það er alveg satt.
Og ég erfði starfið eftir
hann.
IJRSLIT í MYNDAÞRAIJT
ÚRSLIT í MYNDAÞRAUTINNI í jólablaði Fálkans
urðu þau að eftirtalin börn hlutu vinning, talin í þeirri
röð er kom þegar lausnirnar voru dregnar út:
Margrét Sigurðardóttir, Ásgeirshúsi, Blönduósi, 11 ára.
Kýs bókina: Anna Lísa 13 ára.
Helgi Friðjónsson, Steðja, Glæsibæjarhreppi, Eyja-
fjarðarsýslu, 10 ára. Kýs bókina: Á flótta með bangsa.
Guðrún Lilja Harðardóttir, Suðurgötu 6, Seyðisfirði.
8 ára. Kýs bókina: Stína.
Guðmunda Reynisdóttir, Álfheimum 56, Reykjavík.
13 ára. Kýs bókina: Anna Lísa 13 ára.
Magnús Þórarinsson, Brennu, Eyrarbakka, 15 ára.
Kýs bókina: Davíð Copperfield.
Særún Helgadóttir, Borgarbraut 35, Borgarnesi. Kýs
bókina: Anna Lísa 13 ára.
Axel Steindórsson, Nautabúi, Lýtingstaðahreppi,
Skagafirði. Kýs bókina: Leitin að loftsteininum.
Sigurður Jakobsson, Varmalæk, Borgarfirði, Kýs bók-
ina: Á flótta með bangsa.
Þóra Fríða Sæmundsdóttir, Goffheimum 16, Reykjavík.
Kýs bókina: Á flótta með bangsa.
Brynja Jóna Hafsteinsdóttir, Eyrarvegi 3, Grafarnesi,
Grundarfirði. 12 ára. Kýs bókina: Anna Lísa 13 ára.
Það barst mikill fjöldi af lausnum. Fálkinn þakkar
öllum þátttakendum, og óskar þeim til hamingju sem
unnu.
FÁLKINN 5