Fálkinn - 14.02.1966, Qupperneq 33
• Aika
Framh. af bls. 30.
maðurinn við borðið, „er þetta
mín pöntun? Ég bað ekki um
chow mein.“
„Hæ,“ hrópaði hermaður í
næsta bás, „það hlýtur að vera
mín pöntun. Ég er búinn að bíða
heilt ár.“
Aika bað rauðbirkna manninn
afsökunar hálfvandræðaleg, og
lagði matinn á borðið hjá her-
manninum. „Chow mein kjúkl-
ing?“ spurði hún.
„Rétt er,“ sagði hermaðurinn,“
það er kominn tími til. Þið hljót-
ið að hafa ungað honum út eftir
að ég kom hingað.“ Svo leit
hann upp og brosti. „Það er allt
í lagi ungfrú, ég er ekkert að
flýta mér.“
Aika baðst enn afsökunar og
hneigði sig hæversklega en hrað-
aði sér svo fram í eldhúsið og
sótti te fyrir Chiang. Skref henn-
ar virtust nú fjaðurmagnaðri en
áður og göngulagið hressilegra.
Þegar hún stóð við borð Chiangs,
horfðu þau hvort á annað. Hvor-
ugt þeirra mælti orð. Það var
aftur kominn roði í andlit henn-
ar; augu hennar, sem fyrir
stuttri stundu höfðu verið rauna-
leg og gljáalaus, Ijómuðu nú
eins og stjörnur. Chiang horíði
1 þau, og las þar hugsanir henn-
ar eins skýrt og hún hefði hróp-
að þær til hans: „Þú ert kom-
inn! Þú ert kominn til mín!“
Eitt tár var að byrja að læðast
niður vanga hennar. „Það sama
og venjulega, herra Chiang?"
spurði hún.
„Já, það sama og venjulega,"
sagði Chiang og brosti til henn-
ar.
C. Y. Lee.
• Þegar konan
Framh. af bls. 15.
niður í hugsunarhætti barn-
anna. Þú getur verið einmana
innan um þína nánustu eða
hæstánægð alein; það fer al-
gerlega eftir því hvernig þú
ert innréttuð andlega. Ég á
tvær systur sem ég tala oft við
og sand af vinum, en oft finnst
mér bezt að vera ein heima
þegar ég er ekki í vinnunni.
Stundum skrepp ég á skíði um
helgar, og það er alveg draum-
ur, stundum ligg ég og hlusta
á grammófóninn eða les í bók,
og stundum mála ég.“
HÚN málar abstrakt myndir
sem glóa og glitra af lita-
gleði og hlustar á jazz. Áður
var hún módel í útlöndum, en
rekur núna sína eigin snyrti-
stofu. Hún klæðir sig sam-
kvæmt nýjustu tízku og þolir
vel að hafa pilsfaldinn langt
fyrir ofan hné. „Það getur auð-
vitað hugsazt, að allt í einu
hitti ég mann sem ég fell flöt
fyrir,“ segir hún, „en mér ligg-
ur við að vona ekki. Ég er
hrædd um, að húsmóðurlífið
passi ekki við mig. Bara að
hugsa til þess að þurfa að búa
til mat að minnsta kosti tvisvar
á dag, upphugsa nýja og nýja
rétti og eyða löngum tíma í
hreingerningar og uppþvotta,
fer alveg með mig. Að vera
bundin heima yfir starfi sem
manni dauðleiðist finnst mér
hryllileg tilhugsun, og þurfa
svo að biðja manninn sinn um
hvern eyri sem maður þarf á
að halda, jafnvel til gjafa
handa honum sjálfum ... nei,
það freistar mín ekki. En kona
sem giftir sig og eignast börn
getur ekki hlaupið frá öllu
saman til að stunda þá vinnu
sem henni fellur betur, þótt
hún hafi efni á að borga fyrir
húshjálp og barnagæzlu. Það
er ætlazt til af henni, að hún
sé óeigingjörn og aðlögunar-
hæf, og þykir raunar sjálf-
sagður hlutur, en það er stað-
reynd, að margar menntaðar
nútímastúlkur eiga afskaplega
erfitt með að sætta sig við
hjónabandið þegar út í það er
komið.“
„Já, mörgum stúlkum finnst
þær hafa það miklu betra með
því að giftast ekki,“ segir Fjóla,
„og þær hika við að fórna t. d.
fjárhagslegu sjálfstæði sínu
fyrir giftingarhringinn. En þess
ber líka að gæta, að fá störf
eru þannig, að konur verði
ekki leiðar á að vera í þeim
alla ævi. Það er öðruvísi fyrir
karlmanninn sem reiknar með
því frá byrjun að vera fyrir-
vinnan og starfa utan heimilis-
ins. Ég get hugsað mér, að lista-
konur fái nóga fullnægingu í
að sinna köllun sinni og þarfn-
ist ekki eins félagsskapar karl-
manns, en það þýðir ekki að
bera á móti því, að fyrir venju-
lega konu er það eðlilegra líf
að giftast og eiga börn.“
„Ef hún eignast börn, já,“
segir Rósa. „En sé einlífið óeðli-
legt, þá finnst mér barnlaus
hjónabönd þó enn óeðlilegri.
Og ekki er konan síður bundin
ef hún á engin börn. Mörg
barnlaus hjón verða óheyrileg-
ir egóistar og binda allt í fastar
skorður hjá sér, kýta sýknt og
heilagt út af einhverjum smá-
munum sem engu máli skipta
og gleyma aðalatriðunum *" 'ir
GÓLFTEPPI
alls konar
WILTON
teppadreglar
margir fallegir litir.
Gangadregíar
alls konar
Teppafílt
Teppadeildin
----1
Kökur yðar og brauð verða bragðbetrí
og íallegri ef bezta tegund af
lyftidufti er notuð
FALKINN
33