Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Blaðsíða 9
Jólahefti Tímarits iðnaðarmanna 1941
„En er hann sá mannfjöld-
ann gekk hann upp á fjallið. .
og hann lauk upp munni sín-
um, kenndi þeim og sagði:
Sælir eru fátækir í anda,
því að þeirra er himnaríki.
Sælir eru syrgjendur, því að
þeir munu huggaðir verða.
Sælir eru miskunnsamir, því
að þeim mun miskunnað
verða.
Sælir eru hjartahreinir, því
að þeir munu Guð sjá.
Sælir eru friðflytjendur, því
að þeir munu Guðs synir kall-
aðir verða.
Vertu skjótur til sátta ....
Gef þeim, sem biður, og
vertu ekki afundinn við þann,
sem af þér vill lán taka.
Elskið óvini yðar, og blessið
þá, sem yður bölva ...........
Leitið fyrst Guðs ríkis og
hans réttlætis, þá mun og allt
annað veitast yður.
Dæmið ekki, til þess að þér
verðið ekki dæmdir. .. .
Hví sérð þú flísina í auga
bróður þins, en gætir ekki
bjálkans í þínu eigin auga?
Gætið yðar fyrir falskenn-
endum.
Biðjið, og yður mun gefast.
Allt, sem þér viljið að menn-
irnir gjöri yður, það skuluð
þér og þeim gjöra.“
(Fjallræðan, Matt. 5—7).
7
Fjallræðan, málverk eftir Dietrich.