Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Blaðsíða 54
Jólahefti Tímarits iðnaðarmanna 1941
Ingólfur Arnarson
landnámsmaður
Líkneski Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli í
Reykjavik, eftir Einar Jónsson, er reist af Iðn-
aðarmannafélaginu í Reykjavík.
Málið átti sér langan aðdraganda. Sveinbjörn
Hallgrímsson og Magnús Grímsson vöktu máls
á því um miðja síðustu öld að reisa þyrfti fyrsta
landnámsmanni vorum einhverskonar minnis-
merki. Jón Árnason bókavörður lireyfði mál-
inu 1868. Sigurður málari vildi, „að gjört yrði
eittlivað íþróttalegt minnismerki um Ingólf á
Arnarhóli“. Halldór Friðriksson hreyfði því í
„Þjóðólfi“, að reisa skyldi hús yfir söfnin i
Reykjavík til minningar um landnám Ingólfs,
og skyldi verkinu lolcið fyrir þúsund ára afmæli
íslands. Árið eftir, eða 12. ágúst 1864, birtist i
sama blaði grein, sem talin er að vera eftir
Sigurð málara, þar sem lagt var til, að reisa
líkneski af Ingólfi á Austurvelli. Kemur þar
fyrst fram liugmyndin um líkneski Ingólfs. Sið-
ar benti Jón Árnason á að reisa það á Arnar-
hóli, og stingur upp á að samskot verði liafin
um land allt til framkvæmda. Eftir þetta var
oft talað um Ingólfsmyndina, en ekkert varð
úr framkvæmdum fyr en Iðnaðarmannafélagið
tók málið að sér. 17. sept. 1906 flutti Jón Hall-
dórsson málið á fundi. Einar Jónsson, mynd-
höggvari, var þá kominn á sjónarsviðið sem
mikill listamaður og farinn að gera drög að
likneski Ingólfs. Nefnd var kosin, fé veitt úr
félagssjóði og fjáröflun hafin. En margir voru
erfiðleikarnir og þó verst sundurlyndi manua
um málið. Það var fyrst i jan. 1923, að hafizt
var handa fyrir alvöru að steypa líkneskið og
undirbúa staðinn á Arnarhóli.
24. febr. 1924 kl. 3 e. li. var líkneski Ingólfs
afhjúpað að viðstöddum miklum mannfjölda.
Formaður Iðnaðarmannafélagsins afhenti lands-
stjórninni það sem gjöf frá Iðnaðarmannafé-
laginu, en forsætisráðherra þakkaði. Um kvöld-
ið liélt Iðnaðarmannafélagið mikla veizlu í liúsi
sinu. Ingólfsmyndin koslaði 40 þús. kr. Lang'-
mestur hluti þess fjár var greiddur úr sjóði
félagsins.
52