Tímarit iðnaðarmanna


Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Blaðsíða 38

Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Blaðsíða 38
Jólahefti Tímarits iðnaðarmanna 1941 HU LDR: RlIfHF JÖLIM Gunnhildur liúsfreyja á Efra-Núpi stóð úl við gluggann á svefnhúsi sínu og horfði þegj- andi út í logndrífuna, sem féll til jarðar, þétt og þögul. Æ, já — maður réði ekki við neitt, fremur en þessi litlu, livítu snjófis, er jörðin dró að sér, viðstöðulaust. Einhverntíma liafði hún nú látið sig dreyma um annað, fyrir hana Snjólaugu, en þetta. En til hvers var að fást um það — tímarnir voru breyttir. Nú réðu foreldrarnir engu um giftingu barna sinna. En ekki gat liún séð, að hjónaböndin færu yfirleitt betur en þegar hún var ung og vænum manni gefin af góðum foreldrum, eins og þá tíðkaðist. Síður en svo. Þá þótti það skyldugt, að sá, er festa vildi sér konu, hefði einhverja staðfestu — ætti eitthvað og vildi. En mí — nei, það var bezt að vera ekki lengur að standa bér og kvelja sig á þessum hugsunum. Dagsönnin beið — og hún hafði löngum rej'nzt henni læknir allra meina. Gunnliildur sleit sig frá glugganum sín- um og gekk með tign og ró fram í gegnum stúlknaherbergið og karlstofuna, ofan stig- ann og út í eldhúsið. En þó að hún tendraði eldinn, heyrði hið gamalkunna ánægjuhljóð kaffiketilsins og tæki rösklega höndum til eins og annars — fékk hún ekki af sér hrint þeim hugsanaþunga, er livílt liafði yfir henni frá því, að hún lauk upp augunum þennan hljóða vetr- armorgun. Snjólaug, eina dóttirin, sem var ó- gift eftir heima, hafði trúað henni fyrir þvi, að hún ynni barnakennara sveitarinnar einum manna, og hefði ástæðu til að ætla, að hann bæri sama hug til hennar. Og andlit hennar hafði Ijómað af gleði, þó að hún væri feimin og stillt, þegar liún trúði móður sinni fyrir þessu, kvöldinu áður. Nú svaf liún vært í fá- vizku sinni, örugg um alll, því að móðir henn- ar liafði ekki lýst neinni vanþóknun yfir þess- um tíðindum, heldur sagt, að nú skyldu þær fara að sofa — það væri orðið framorðið. Og Snjólaug hafði risið upp af rúmstokknum, lagt arniana um háls móður sinnar og kysst hana innilega. Svo hljóp hún berum fótum vfir í sitt rúm og augnabliki síðar svaf hún værl undir æðardúnssænginni. Blessað barnið. Ilún liafði svo sem ekki áhyggjurnar. Öðru máli gegndi með Gunnhildi. Hún vakti þangað til þreytan lokaði augum hennar, eftir langa and- vöku. Og nú gat blessuð vinnan engu af lienni létt, það fann liún glöggt. — Hún rifjaði upp fyrir sér allt, sem liún hafði lieyrt um þennan unga barnakennara og ættmenni lians. Það var nú ekki stórt. Faðir lians liafði verið dugandi sjómaður og drukknað ungur, móðirin gifzt aftur og eignazt fjölda barna, sonurinn orðið að sjá um sig sjálfur. Einhvernveginn hafði liann baslazt áfram, gengið í Kennaraskólann og náð prófi — góðu prófi, sagði Snjólaug, en livað var að marka það? En svo var nú ekki allt húið. Hann hafði frá barnæsku verið sólg- inn í að föndra — ekki við þarflegar smíðar. Ja, nei, nei — heldur allskonar útskurð í tré og guð veit livað — Snjólaug hafði talað um einliver ný efni linóleum nefndi hún vist eitt 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.