Tímarit iðnaðarmanna


Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Síða 47

Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Síða 47
Jólahefti Tímarits iðnaðarmanna 1941 Pílviðurinn við Stjórnarráðshúsið Hann var fluttur vorið 1929 frá skrúðgarð- inum við gamla Tliomscnshúsið (nú Smjörhús- ið Irma), þar sem nú stendur Aðalbílastöðin. Mun D. Thomsen kaupmaður hafa flutt plönt- una frá útlöndum og gróðursett liana i garð sinn um aldamótin. Nú stendur pilviðurinn þar, sem áður var hestasteinn þeirra landshöfðingj- anna Hilmars Finsens, Bergs Thorbergs og Magnúsar Stepbensens. Virðist hann kunna mæta vel við sig og ber lauf sitt langt fram eftir baustum. Þessi mynd var tekin síðastlið- inn fyrsta vetrardag. Stjórnarráðshúsið er ekki síður merkileg bygging. Það var uppliaflega byggt sem fanga- liús cða einskonar letigarður og tekið til þeirra nota 1764. En 1819 var því breytt í bústað fvrir stiftamtmanninn og liafa allir stiftamtmenn og landshöfðingjar búið þar síðan, þar til 1904 að stjórn innanlandsmála fluttist þangað. Síðan bafa allar stjórnarráðsskrifstofurnar haft þar aðsetur, þar til að ráðherrarnir urðu 5, árið 1939. Urðu þá tvær þeirra að flytjast í Arnar- hvolsbygginguna. Iiúsið er blaðið úr grásteini og límt með dönsku kalki. Kvisturinn að vestan var settur á það 1866, en að austan 1917 og því liefir marg- oft verið breytt að innan. Eins og gefur að skilja, hefir fjöldamargt gerzt í þessari litlu, en ramgerðu byggingu, sem haft liefir djúp áhrif á þjóðlífið. Það sögu- legasta og afdrifarikasta hefir þó e. t. v. gerzt þar síðustu missirin.

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.