Fréttablaðið - 12.11.2009, Side 4
4 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
3 kr.
afsl.
af el
dsne
ytislít
ranu
m
2 kr.
(1,5
%) af
sl. í f
ormi
Vilda
rpun
kta Ic
eland
air
Allta
f með
Stað
greið
sluko
rtinu
:
20–25% aukaafsláttur
af ýmsum vetrarvörum og skyndibita
með Staðgreiðslukorti
Sæktu um Staðgreiðslukortið á olis.is, á næstu Olís-stöð eða í síma 515 1141
Við höldum með þér!
HEILBRIGÐISMÁL Talið er nauðsyn-
legt að banna ungmennum innan
átján ára að nota ljósabekki vegna
hættu sem þeim stafar af notkun
þeirra.
„Geislavarnastofnanir Norður-
landa hafa áður sent frá sér ráð-
leggingar þar sem mælt var gegn
notkun ljósabekkja, sérstaklega hjá
ungu fólki,“ segir Þorgeir Sigurðs-
son hjá Geislavörnum ríkisins sem
ásamt systurstofnunum sínum í
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi leggja
til ljósabekkjabann fyrir börn og
unglinga.
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðis-
ráðherra segir að í ráðuneytinu hafi
verið fylgst náið með aðdraganda
nýju samþykktar Geislavarnastofn-
ananna. „Það er verið að kanna
hvaða leiðir þarf að fara til þess að
verða við þessum tilmælum. Spurn-
ingin er hvort lagabreytingu þurfi
eða hvort reglugerðarbreyting er
nóg,“ segir Álfheiður sem bætir
við að rannsóknir sýni ótvírætt að
ljósabekkir valdi húðkrabbameini
og hættan slík að til greina komi
að takmarka einnig aðgang eldra
fólks að bekkjunum. „Í mínum huga
þarf að minnsta kosti að vara mjög
sterklega við notkun ljósabekkja.“
Þorgeir minnir á að virt alþjóð-
leg krabbameinsstofnun í Frakk-
landi skilgreindi í sumar ljósabekki
sem krabbameinsvaldandi. Lönd á
borð við Frakkland, Spán, Skotland,
Belgíu og Portúgal hafa þegar sett
aldursmörk á notkun bekkjanna.
Sama gildir um sex af sjö fylkjum
Ástralíu.
Geislavarnir ríkisins segja að
áðurnefndum aldurshópi sé sérstök
hætta búin af ljósabekkjum því sól-
bruni á þessu æviskeiði auki hætt-
una á því að viðkomandi einstakl-
ingur fái illkynja sortuæxli síðar
á lífsleiðinni. Slík mein séu talin
alvarlegust allra húðkrabbameina.
Þorgeir segir að sólbaðstofueig-
endur hafi gjarnan borið við að fólk
sólbrynni síður í ljósabekkjum en í
sólbaði. „Rannsókn sem Lýðheilsu-
stöð gerði sýnir hins vegar að fólk
brennur allt eins í ljósabekkjum og
ungt fólk varar sig síður á þeirri
hættu en þeir sem eldri eru,“ segir
hann.
Geislavarnir ríkisins gáfu út
sérstaka viðvörun vegna notkunar
ljósabekkja á árinu 2005. Þorgeir
segir að síðan hafi nokkuð dregið
úr notkun bekkjanna meðal full-
orðinna en minna hjá yngsta fólk-
inu. Samkvæmt síðustu mælingum
fór um fimmtungur barna á aldr-
inum tólf til fimmtán ára einhvern
tíma í ljós næstu tólf mánuðina þar
á undan. Í aldurshópnum sextán
til nítján ára var hlutfallið nærri
fimmtíu prósent.
. gar@frettabladid.is
Ljósabekkir bannaðir börnum
Geislavarnir ríkisins vilja að ungmennum innan átján ára sé bönnuð notkun ljósabekkja og heilbrigðis-
ráðuneytið vinnur að undirbúningi þess. Hugsanlegt að takmarka einnig notkun eldra fólks á bekkjunum.
Í LJÓSUM Ungu fólki er svo mikil hætta búin við sólbruna að heilbrigðisráðuneytið undirbýr nú að sett verði átján ára aldurstakmark á notkun ljósabekkja.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
9°
7°
7°
12°
9°
8°
6°
6°
24°
14°
25°
12°
21°
1°
14°
15°
4°
Á MORGUN
8-15 m/s, hvassast syðst.
LAUGARDAGUR
Stífur vindur NV-til og
við SA-ströndina.
6
8
6
4
3
4
4
5
5
7
2
17
11
8
7
7
5
7
6
13
15
10
6
6
4
4
5
6
4
4 2
5
STREKKINGS
VINDUR Veðrið
verður ekkert
sérlega skaplegt
næstu dagana
og heldur stífar
austlægar áttir
ríkjandi. Hvassast
verður sunnan-
lands og með
ströndum landsins.
Úrkoman verður að
mestu bundin við
austanvert landið
en ætlar þó ekki að
verða mikil.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
Rangt var farið með nafn verslunar
sem Hrefna Björk Sverrisdóttir rekur
í Noregi í blaðinu í fyrradag. Nafn
verslunarinnar er ER.
LEIÐRÉTTING
FÉLAGSMÁL „Hann var í fylgd með
einum manni til miðnættis, en
eftir það var hann einn á ferð,“
sagði svissneski blaðamaðurinn
Attilla Szenogrady þegar Frétta-
blaðið hafði samband við hann.
Szenogrady var viðstaddur
þegar kveðinn var upp dómur í
Zürich í máli Pálma Jónssonar
gegn framkvæmdastjóra nektar-
staðarins Moulin Rouge í Zürich.
Szenogrady segir dómsúrskurð-
inn ekki gerðan opinberan fyrr en
eftir tvo til þrjá mánuði.
Í frásögn Szenogradys, sem
birtist í svissneska netmiðlin-
um „20 minuten online“, segir að
þrjár rússneskar konur hafi verið
í fylgd Pálma. Hann hafi keypt
handa þeim hverja kampavíns-
flöskuna á fætur annarri.
Við réttarhöldin kom fram að
67 þúsund frankar voru teknir
af kreditkorti Knattspyrnusam-
bands Íslands þessa nótt, þar
af níu þúsund frankar, eða ríf-
lega milljón krónur á núverandi
gengi, áður en hann kom á Moulin
Rouge. Nærri helmingurinn, eða
um 30 þúsund frankar, hafi verið
tekinn af kortinu undir lokin, á
rúmlega tveggja klukkustunda
tímabili frá 4.30 til 6.40.
Szenogrady segir í grein
sinni að framkvæmdastjórinn
hafi verið sýknaður af ákærum
Pálma. Hins vegar hlaut hann
skilorðsbundinn fangelsisdóm
fyrir skjalafals og skattsvik, sem
koma ákærum Pálma ekkert við.
- gb
Svissneskur blaðamaður staðfestir að Pálmi hafi verið einn á ferð eftir miðnætti:
Úttektir dreifðust á fleiri staði
SUÐUR-AFRÍKA, AP Vísindamenn í
Suður-Afríku segjast hafa upp-
götvað áður óþekkta tegund
af risaeðlum. Þeir telja eðluna
týnda hlekkinn á milli risaeðla og
smærri afkomenda þeirra.
Steingervingafræðingurinn
Adam Yates, sem starfar við Wit-
watersrand-háskóla í Suður-Afr-
íku, kynnti niðurstöður rann-
sóknar sinnar á blaðamannafundi
í Jóhannesarborg í gær ásamt því
að sýna nokkur beina eðlunnar.
Hún hefur fengið heitið Aardonyx
Celestae.
Samkvæmt kenningu Yates og
teymis hans voru eðlur af þess-
ari tegund uppi fyrir tvö hundr-
uð milljón árum. Þær voru jurta-
ætur sem gengu á afturfótunum
og voru 1,7 metrar á hæð. - jab
Ný risaeðlutegund kynnt:
Týndur hlekk-
ur fundinn
SVONA LEIT HÚN ÚT Steingervingafræð-
ingurinn David Yates kynnti risaeðluna á
blaðamannafundi í Suður-Afríku í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UMFERÐARMÁL Skrifað verður
undir samstarfssamning
Umferðarstofu og sveitarfélaga
á Suðurnesjum um bætt umferð-
aröryggi í dag. Gerð verður
umferðaröryggisáætlun og sem
flestir virkjaðir til þátttöku.
Reykjanesbær hefur þegar
skrifað undir sams konar sam-
komulag en önnur sveitarfélög á
Suðurnesjunum fylgja nú í kjöl-
farið. Sérstök áhersla verður
lögð á öryggi óvarinnar umferð-
ar, gangandi og hjólandi, og þá
verður horft til umhverfis skóla,
leikskóla, félagsmiðstöðva og
íþróttamannvirkja.
- kóp
Sveitarfélög á Suðurnesjum:
Samstarf um
bætta umferð
PÁLMI
JÓNSSON
Næturbrölt
fjármálastjóra
KSÍ átti sér
stað árið
2005. Málinu
virðist hins
vegar ekki enn
lokið.
ÞORGEIR
SIGURÐSSON
ÁLFHEIÐUR
INGADÓTTIR
GENGIÐ 11.11.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
226,6297
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,84 124,44
206,3 207,3
186,13 187,17
25,011 25,157
22,226 22,356
18,182 18,288
1,3776 1,3856
198,49 199,67
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR