Fréttablaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 6
6 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
IÐNAÐUR Skinn af lömbum sem
drepast við burð eða drepast áður
en þau eru rekin á fjall eru nú nýtt
í nýrri fatalínu Eggerts Jóhanns-
sonar feldskera.
„Íslendingar átta sig ekki alltaf
á því hvað þeir eru með mikil verð-
mæti í kringum sig,“ segir Eggert,
en fatnaðurinn sem hann kynnti
í gær er afrakstur fyrsta ársins í
þriggja ára tilraunaverkefni.
Nýja fatalínan nefnist Born
Again, en verkefnið er unnið í
samstarfi Eggerts, Helgu Björns-
son, fatahönnuðar í París, Lands-
samtaka sauðfjárbænda og Loð-
skinnu á Sauðárkróki. „Fyrsta
skrefið hefur verið stigið í nýt-
ingu á hráefni sem annars hefði
verið hent,“ sagði Eggert feldskeri
á kynningunni í gær.
Skinnum af lömbum sem drepist
hafa áður en hægt hefur verið að
reka þau á fjall hefur jafnan verið
fargað með skrokkunum. Sindri
Sigurgeirsson segir að nú kunni
þó að vera eftir einhverju að slægj-
ast fyrir bændur að leggja sig eftir
því að halda upp á þau. Bændur fá
greiddar 1.250 krónur fyrir skinn-
ið, en þurfa sjálfir að sjá um flán-
ingu og að koma því í sútun. „Það
verður því bara að koma í ljós hvort
bændur geta gefið sér tíma í þetta á
vorin þegar hvað mest er að gera,“
segir Sindri, en telur líklegt að fari
bændur út í þetta þá reyni þeir að
safna saman skinnunum og geyma
í frysti svo að þau úldni ekki.
„Þetta geta hins vegar orðið
dálitlar upphæðir á stóru búi,“
segir hann, en þar sem fæðast milli
13 og 14 hundruð lömb að vori megi
geta sér til að um 50 drepist við
burð eða á fyrstu dögunum eftir
burð.
Jón Bjarnason landbúnaðarráð-
herra, sem var viðstaddur kynn-
inguna á Born Again-fatalínunni
í gær, fagnaði því sérstaklega í
ræðu sinni að hitta þar fyrir gaml-
an nemanda að norðan í forsvari
fyrir vinnsluna á skinninu, Gunn-
stein Björnsson, framkvæmda-
stjóra Loðskinnu. „Það eykur enn
á ágæti þessa starfs að skinnin
eru sútuð og unnin hjá Loðskinni
á Sauðárkróki,“ sagði hann, en
kvaðst annars sem gamall sauð-
fjárbóndi vanur að hugsa til þess
hvernig gjörnýta mætti landsins
afurðir. „Ég er viss um að íslensk-
ir bændur taka þessu vel.“
olikr@frettabladid.is
Fjölskylduspil
á frábæru
tilboði!
Vr. A825 85060692
Fullt verð 5.990 kr.
3.990 kr.
auk 1.000 punkta
x2
TI
LB
OÐ
UMFERÐARMÁL Umferðarslysum á
höfuðborgarsvæðinu hefur fækk-
að um 34 prósent milli áranna 2007
og 2009. Á fyrstu sjö mánuðum
fyrrnefnda ársins urðu 343 slys í
umferðinni á höfuðborgarsvæðinu
en á sama tímabili í ár urðu 228
slys.
Frá þessu er greint í frétt lög-
reglunnar.
Í ársbyrjun 2007 lagði lögregl-
an á höfuðborgarsvæðinu fram
áætlun um fækkun umferðarslysa
sem fól í sér markvissar aðgerðir
í samstarfi við þar til bærar stofn-
anir og fyrirtæki. Lögð var áhersla
á að fækka hættulegum stöðum
og auka sýnilegt eftirlit auk þess
sem stefnt var að auknum gæðum
í rannsóknum umferðarslysa.
Lagði samgönguráðuneytið emb-
ættinu meðal annars til átta mót-
orhjól til eftirlits í umferðinni og
Reykjavíkurborg og Vegagerðin
hafa gert breytingar á gatnakerf-
inu til að auka öryggi og fækka
slysum.
Áfram verður unnið á sömu
braut, að sögn lögreglunnar.
- bþs
Áætlun um fækkun umferðarslysa á höfuðborgarsvæðinu hefur gengið vel:
Slysum hefur fækkað um 34 prósent
ÁREKSTUR Í KÓPAVOGI Góð reynsla er af áætlun lögreglunnar um fækkun slysa.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GLÆSILEG FLÍK Skinnið er léttara en
gengur og gerist með önnur skinn. Í
baksýn má sjá Eggert feldskera.
Nýtir skinn sem hefði
annars verið fargað
Eggert Jóhannsson feldskeri er farinn að nýta skinn af lömbum sem drepast við
burð eða áður en þau eru rekin á fjall. Nýja fatalínan nefnist Born Again og er
meðal annars unnin í samstarfi við Landssamtök sauðfjárbænda.
BORN AGAIN KYNNT Í ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARANUM Landbúnaðarráðherra var meðal
þeirra sem fengu að sjá og finna áferð á jökkum, kápum og fylgihlutum sem unnin
eru úr skinni smálamba sem drepast við burð eða stuttu eftir burð. Skinnin þykja
einstaklega mjúk og falleg og fatnaðurinn hlýr en léttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ertu tilbúin/n til að taka á þig
aukna skattbyrði vegna efna-
hagsástandsins?
Já 20,3%
Nei 79,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á fjármálastjóri KSÍ að segja
af sér?
Segðu skoðun þína á vísir.is
BARNAVERND Barnavernd Reykja-
víkur hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu þar sem umfjöllun fjölmiðla
um málefni barns er hörmuð.
Barnið var sett í skammtíma-
vistun og á að koma í fóstur, en
sú ákvörðun hefur verið kærð til
kærunefndar barnaverndarmála.
Í yfirlýsingunni segir að
starfsmenn Barnaverndar séu
bundnir trúnaði og geti ekki
útskýrt eða varið ákvarðanir
sínar. Yfirferð þessa máls sýni
að unnið hafi verið með bestu
hagsmuni barnsins að leiðarljósi.
Ýmsir, þar á meðal Breiðavíkur-
samtökin, hafa gagnrýnt máls-
meðferðina. - kóp
Barnavernd Reykjavíkur:
Harmar fjöl-
miðlaumfjöllun
VIÐSKIPTI Skilanefnd Landsbank-
ans hefur stefnt eignarhaldsfélag-
inu Gift vegna skulda félagsins við
bankann. Viðræður hafa átt sér stað
um skuldina. Fyrirtaka fór fram í
málinu í gær en var frestað fram í
næsta mánuð.
Samvinnutryggingar, sem stofn-
uðu Gift, voru umsvifamiklar í fjár-
festingum um árabil. Fyrirtækið
tók þátt í kaupum á Búnaðarbank-
anum með S-hópnum svonefnda
árið 2003 og hagnaðist mjög.
Við slit Samvinnutrygginga fyrir
um tveimur árum voru bæði eign-
ir og skuldir færðar yfir til Gift-
ar. Þeir sem tryggðu á tilteknu ára-
bili hjá Samvinnutryggingum áttu
rétt á að fá fjárhæð sem svaraði til
eignahlutar í Gift.
Um mitt ár 2007 var skilanefnd
sett yfir Gift og ákveðið að slíta
félaginu. Það hélt hins vegar áfram
fjárfestingum sínum.
Fyrir hrun átti Gift um eitt pró-
sent í Kaupþingi og í Oddaflugi,
sem aftur átti hlut í Icelandair.
Eignir fyrir hrun voru metnar á
um sextíu milljarða króna.
Ekki liggur fyrir hversu há skuld
Giftar við Landsbankann er. DV
hélt því fram í gær að hún væri
til komin vegna afleiðusamninga
við bankann. Gift er nú tæknilega
gjaldþrota og skuldir taldar vera í
kringum fimmtíu milljarðar króna.
Hugsanlegt er að það geti greitt um
átta prósent af skuldum sínum.
- jab
Landsbankinn fer á eftir skuld hjá tæknilega gjaldþrota fjárfestingarfélagi:
Geta greitt tæp tíu prósent
LÍFLAUST HJÁ GIFT Fundarmenn á
aðalfundi Samvinnusjóðsins og Andvaka
í fyrra. Meðal fundarmanna er Finnur
Ingólfsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KJÖRKASSINN