Fréttablaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 12. nóvember 2009 3
Þrjátíu og tveir innlendir hönn-
uðir sýndu á tískuvikunni í
Karachi, höfuðborg Pakistans,
sem lauk í gær. Atburðurinn var
haldinn þremur vikum á eftir áætl-
un en frestunin varð vegna þess ótrygga
ástands sem ríkt hefur í landinu. Auk þess þótti
það viðeigandi virðing við yfir 300 manns sem lát-
ist höfðu í árásum herskárra talibana í október að
fresta tískuvikunni.
Ætlunin var að kynna erlenda hönn-
uði á sýningunni en ekkert varð úr því
af öryggisástæðum. Skipuleggjendur
héldu þó ótrauðir áfram og árangurinn
varð glæsileg sýning á því besta sem Pakistan hefur upp á að bjóða í
tískuheiminum. Vitanlega var ekki mikið um bert hold á tískupöllunum
en fötin miðuðust heldur við hefðbundinn klæðnað múslima sem hylja
vel líkamann. Sumir létu þó gömul viðmið ekki stoppa sig en eitt er víst
að litadýrðin var í fyrirrúmi svo og hönnunargleðin. solveig@frettabladid.is
Tískusýning í
skugga átaka
Engir erlendir hönnuðir eða fyrirsætur tóku þátt í tísku-
vikunni í Pakistan sem er nýlokið. Ástæðan var ótryggt
ástand landsins en herskáir öfgamenn hafa gert
mannskæðar árásir á landið á síðustu mánuðum.
Karlatískan var einnig
sýnd á pöllunum í
Pakistan.
Ný nálgun að hefðbundinni slæðu
múslimaheimsins eftir Athar Hafeez .
Samfestingur eftir
hönnuðinn Adnan
Pardesy.
Litríkur kjóll
eftir Deepak
Perwani.
Farmers market setur á markað
buxur úr íslenskum náttúru-
afurðum.
Aðsniðnar dömubuxur úr lambs-
leðri og laxaroði, sem er sútað
í verksmiðju Sjávarleðurs á
Sauðárkróki, eru nýjasta afurð
Farmers market. Buxurnar hafa
fengið nafnið Sporður en vörur
fyrirtækisins bera allar íslensk
bæjarnöfn.
Hönnunarfyrirtækið Farmers
market var stofnað haustið 2005
af Bergþóru Guðnadóttur hönn-
uði og Jóel Pálssyni tónlistar-
manni. Markmið þeirra er að
nýta náttúruleg hráefni og fram-
leiða vörulínu af fatnaði og fylgi-
hlutum sem hefur sterka skír-
skotun til
íslenskrar
arfleifðar og
menningar.
Buxurn-
ar, sem eru
samsettar
úr fimmtíu
stykkjum,
þarf að sér-
panta. - ve
Leðurbuxur
með laxaroði
Buxurnar eru
samsettar úr
fimmtíu stykkj-
um.
MYND/FARMERS
MARKET
Glæsilegur
búningur
eftir Fahad
Hussayn.
Litríkur og þjóðlegur klæðnaður
eftir Athar Hafeez.
2 ÁRA AFMÆLI
20% afsláttur af öllum vörum.
Bjóðum upp á veitingar milli 17 og 19 fimmtudaginn 12. nóvember.
Tískusýning. Happadrætti. Nýtt kortatímabil.
Vertu velkomin.
HANSKADAGAR
System kr. 33.900,-
Flex Max kr. 27.900,-
Flex kr. 22.900,-
FLOTT
Í VETUR...