Fréttablaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 12
12 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR Þú færð Cooper dekkin hjá Hjólbarðaþjónustu N1 fyrir jeppa og jepplinga Vinsælustu dekkin STJÓRNMÁL Frjálshyggjufélagið harmar hugmyndir ríkisstjórnar- innar um hækkun tekjuskatts. Í tilkynningu frá félaginu segir að aukin skattheimta hafi bein áhrif á hegðun og frumkvæði þess sem fyrir verður og hún sögð drepa vinnusemi í dróma og sljóvga frumkvæði. Stóraukin skattheimta sé tilræði við fólkið í landinu. Frjálshyggjufélagið bendir stjórnvöldum á að forsætisráð- herra Svíþjóðar hafi lagt til miklar lækkanir á tekjuskatti til að vinna bug á kreppunni þar í landi. Sú leið sé álitleg hafi þau raunverulegan áhuga á að leiða þjóðina út úr efnahagsþrenging- unum. - bþs Frjálshyggjufélagið um skatta: Tilræði við fólk LÖGREGLUMÁL Menn í hópi fimm Litháa sem enn sitja í gæsluvarð- haldi vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi hér, þar á meðal mansali, eru þekkt- ir að ofbeldisverkum hér á landi. Fimmmenningarnir voru í gær úrskurðaðir í Héraðsdómi Reykja- ness í áframhaldandi gæsluvarð- hald til 2. desember eða í þrjár vikur til viðbótar, að kröfu lög- reglustjórans á Suðurnesjum. Sumir mannanna eru tengd- ir við árás á óeinkennisklæddan lögreglumann sem var við fíkni- efnaeftirlit á Laugavegi í janúar 2008. Þá veittist hópur manna að honum. Hann var ítrekað sleginn, meðal annars í höfuðið, og spark- að í höfuð hans að minnsta kosti tvisvar eftir að hann var felldur í götuna. Við þetta hlaut lögreglu- maðurinn heilahristing og sár víðs vegar á líkamanum. Þá tengjast sumir þeirra sem inni sitja hrottalegri líkams árás í húsi við Grettisgötu í byrjun júní. Sá sem ráðist var á hlaut lífshættulega áverka af árásinni, sem stóð yfir heila nótt. Hann þurfti að vera um skeið í öndun- arvél. Þriðja líkamsárásin þar sem sumir fimmmenninganna koma við sögu var í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík, einnig í júní. Þá var ráðist á mann og hann illa leik- inn. Hann hlaut brot í andliti og marga langa og gapandi skurði á höfði. Auk þess var hann með ýmiss konar áverka á höfði, brjóstkassa og útlimum. Gæsluvarðhald yfir fimmmenn- ingunum var í gær framlengt um þrjár vikur, eins og áður sagði. Þeir hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Íslendingi sem setið hefur í gæsluvarðhaldi vegna rannsókn- ar lögreglu, var hins vegar sleppt, þar sem ekki var gerð krafa um framlengingu yfir honum. Hann hafði haft ýmis tengsl við fimm- menningana. Meðal annars höfðu þrír þeirra unnið hjá fyrirtæki sem hann rekur. Upphaf þessarar umfangs- miklu rannsóknar má rekja til þess er nítján ára litháísk stúlka kom hingað til lands með flugi frá Varsjá í Póllandi fyrir nokkrum vikum. Hún trylltist á leiðinni í vélinni og var handtekin við kom- una til landsins. Grunur vaknaði um að hún hefði verið flutt til landsins sem fórnarlamb mansals og fóru fram handtökur í fram- haldi af því. Rannsókn lögreglu hefur undið umtalsvert upp á sig og teygir nú anga sína víða. Þekktir fyrir ofbeldisverk hér á landi Nokkrir af Litháunum sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarf- semi eru þekktir að ofbeldisverkum hérlendis. Gæslu- varðhald þeirra var framlengt um þrjár vikur í gær. FYRIR DÓM Mennirnir fimm voru leiddir fyrir dómara í gær, sem féllst á kröfu lög- reglustjórans á Suðurnesjum um framlengingu gæsluvarðhalds þeirra. LÖGGÆSLA Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráð- herra, hefur sett á fót vinnuhóp. Hann skal kanna hvaða mögu- leikar séu fyrir hendi innan gild- andi laga og alþjóðlegs samstarfs til að efla eftirlit með útlending- um og tryggja að verið sé að nýta þær heimildir sem til staðar eru til þess að uppræta skipulagða glæpastarfsemi hér á landi. Þá er bæði átt við þá útlendinga sem njóta réttar um frjálsa för sam- kvæmt samningnum um Evr- ópska efnahagssvæðið og þá sem ekki njóta þess réttar. Meðal ann- ars verður skoðað hvort unnt sé að taka upp tímabundið vegabréfs- eftirlit eða ókerfisbundið eftir- lit bæði á landamærum og innan þeirra og er hópnum falið að koma með tillögur um úrbætur. Í vinnuhópnum eiga sæti Sig- ríður Björk Guðjónsdóttir, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, sem jafnframt er formaður hans, Guð- brandur Guðbrandsson, lögreglu- fulltrúi hjá ríkislögreglustjóra, Þorsteinn Gunnarsson, forstöðu- maður hjá Útlendingastofnun, Jóhann Karl Þórisson, aðalvarð- stjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, og Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögreglu- þjónn hjá lögreglustjóranum á Suð- urnesjum. - jss Dómsmálaráðherra vill nýta þær heimildir sem til staðar eru: Vinnuhópur gegn glæpastarfsemi DÓMSMÁLARÁÐHERRA Ragna Árnadótt- ir hefur skipað fimm manna vinnuhóp. SKEMMTA SÉR Í ÖLPUNUM Nokkrir krakkar í skíðabænum Laux í frönsku Ölpunum notuðu tækifærið og skemmtu sér á skíðum þegar svæðið var opnað eftir mikla snjókomu. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.