Fréttablaðið - 12.11.2009, Side 10

Fréttablaðið - 12.11.2009, Side 10
10 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR SAFNAMÁL Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður Framsóknarflokks- ins, vill að Náttúruminjasafnið fái inni í Þjóðmenningarhúsinu, þar sem safnið hóf starfsemi sína á 19. öld. Siv gerði málefni safnsins að umtalsefni á Alþingi í gær og í umræðum kom fram eindreginn vilji þingmanna til að ráða bót á húsnæðisvanda safnsins. Siv beindi þeirri spurningu til Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í fyrir- spurnartíma á Alþingi í gær hvort unnið væri að því að leysa húsnæðisvanda Náttúruminja- safns Íslands, sem er eitt þriggja höfuð- safna lands- ins. „Nú er svo komið að safnið er í kössum og það er ólíklegt að við munum byggja nýtt húsnæði undir safn- ið eins og ástandið er í samfélag- inu í dag. Þess vegna er spennandi að vita hvort ekki er hægt að setja safnið upp í húsnæði sem þegar er til staðar. Þá beini ég augum mínum til Þjóðmenningarhúss- ins,“ sagði Siv. Menntamálaráðherra tók undir að nauðsynlegt væri að leysa úr húsnæðisvanda safnsins og búið væri að endurvekja starfshóp á vegum ríkis og borgar í því augna- miði. Hún sagði fyrirspurn Sivjar sannarlega eiga erindi enda hefði aldrei verið almennilega búið að Náttúruminjasafninu. Hún tók þó ekki undir hugmynd um að Þjóð- menningarhúsið yrði nýtt undir safnið enda væri húsið í fullri notkun. „Ég get hins vegar sagt að við erum tilbúin að skoða ýmsa möguleika til þess að nemendur og aðrir fái sem fyrst aðgang að náttúruminjum landsins og góðum og fræðandi sýningum um þessi efni.“ Fréttablaðið fjallaði um málið í byrjun september. Helgi Torfa- son safnstjóri sagði þá að á stutt- um tíma hefðu málefni Náttúru- minjasafnsins þróast frá því að reisa ætti glæsilegt safnahús, til þess að nú yrði líklega ekki starf- rækt safn á næstu árum. Þetta kæmi ljóslega fram í niðurskurði á fjárlögum þar sem framlög til safnsins væru skorin niður um fjórðung. Með setningu laga um Náttúru- minjasafn Íslands 2007 lauk hlut- verki þess sem sýningarsafns á vegum Náttúrufræðistofnun- ar. Því var svo lokað vorið 2008. Höfuðsöfn eru skilgreind í Safna- lögum. Þau eru Þjóðminjasafn Íslands, Listasafn Íslands og Nátt- úruminjasafn Íslands. svavar@frettabladid.is Þingkona vill náttúruminjar færðar í Þjóðmenningarhús Menntamálaráðherra telur nauðsynlegt að leyst verði úr húsnæðisvanda Náttúruminjasafnsins. Siv Frið- leifsdóttir spyr hvort Þjóðmenningarhúsið komi til greina. Starfshópur ríkis og borgar vinnur að málinu. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Blómaskeið sýninga á náttúruminjum var frá 1908 til 1960 þegar safnið var hér til húsa, í Safnahúsinu eins og það var nefnt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR KRINGLUNNI Sími 568 9400 | www.byggtogbuid.is Heimilistækjadögum lýkur um helgina Allt að 50% afsláttur af ÖLLUM heimilistækjum Nýtt kortatímabil DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir að skalla lögreglumann, sem var við skyldustörf í Bankastræti, í ennið. Maðurinn játaði sök fyrir dómara í gær. Annar maður var einnig ákærður fyrir ofbeldi gegn lög- reglumanni við skyldustörf. Hann mætti ekki við þingfestingu máls- ins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fyrrnefnda manninum var gefið að sök, auk árásarinnar á lög- reglumanninn, að hafa haft á sér 4,4 grömm af amfetamíni, sem lögregla fann á honum við leit. Nokkru síðar tók lögregla mann- inn með amfetamín og marijúana. Þá var maðurinn ákærður fyrir að hafa í nokkur skipti stolið elds- neyti fyrir rúmlega fimmtíu þús- und krónur. Hann játaði stuldinn. Hinn, sem ekki mætti, var ákærður fyrir að hafa veist að lögreglumanni með ofbeldi á sama stað og tíma og félagi hans. Hann sló á hendur lögreglumannsins, á vinstri vanga hans og reyndi að slá og sparka í hann. Þá kleip maður- inn ítrekað í læri og hendur lög- reglumannsins, eftir að hann hafði verið handtekinn. Hann er jafnframt ákærður fyrir að hafa verið með amfetamín á staðnum, svo og fleiri fíkniefna- brot. Þá er hann ákærður fyrir tvö þjófnaðarbrot. - jss Tveir menn ákærðir fyrir margvísleg brot: Réðust á tvo lögreglumenn LÖGREGLAN Mennirnir réðust á sama stað og tíma á tvo lögreglumenn. FÓLK Þekktustu vísindamenn þjóðarinnar á sviði heilsu, læknisfræði, næringar, íþrótta og fleiri greina eru í hópi frum- mælenda á einni viðamestu ráð- stefnu um forvarnir og lífsstíl sem haldin verður á Grand hóteli í Reykjavík um helgina. Þetta er umfangsmesta ráðstefna af þessu tagi sem haldin hefur verið hér á landi. Á meðal mála sem rædd verða er möguleiki Íslands á því að verða alþjóðleg heilsuparadís í framtíðinni. Heiðursgestur er Nóbelsverð- launahafinn dr. Louis Ignarro, prófessor í lyfjafræði við Lækna- háskóla UCLA í Bandaríkjunum. Undirbúningur ráðstefnunnar hefur staðið yfir í hálft ár en þar verður fjallað ítarlega um helstu sjúkdóma mannsins og hvernig þeir tengjast lífsstíl hans. - jab Heilsuparadísin Ísland: Rætt um for- varnir og lífsstíl KJÖTKVEÐJUHÁTÍÐ HEFST Í Rínarhér- uðum Þýskalands hefst kjötkveðjuhá- tíð ár hvert hinn 11. nóvember, nánar tiltekið klukkan ellefu mínútur yfir ellefu, eða á sömu mínútu og fyrri heimsstyrjöldinni lauk árið 1918. Þessi var mættur í búningnum. NORDICPHOTOS/AFP SJÁVARÚTVEGSMÁL Landssamband smábátaeigenda (LS) ætlar að beita sér fyrir stofnun aflaráð- gjafarnefndar sjómanna. Nefndinni er ætlað að gera rökstudda ráðgjöf um heildar- afla byggða á reynsluheimi sjó- manna sem veitt yrði samhliða ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Ætlunin er að samhliða upplýs- ingagjöf sjómanna verði byggð- ur upp gagnagrunnur í samvinnu við háskólasamfélagið sem með árunum geri nefndina færari um að meta burðarþol fiskistofn- anna. Aðalfundur LS kaus þriggja manna nefnd til að vinna að mál- efninu. Nú þegar hafa Sjómanna- samband Íslands og Félag skip- stjórnarmanna tekið jákvætt í stofnun nefndarinnar. - shá Reynsla sjómanna kortlögð: Sjómenn stofna til aflaráðgjafar ÞÝSKALAND, AP Rússneskur inn- flytjandi var fundinn sekur um að hafa stungið barnshafandi konu til bana í sumar og var dæmdur í lífsstíðarfangelsi fyrir ódæðið í Dresden í Þýskalandi í gær. Maðurinn heitir Alexander Wiens og er 28 ára. Konan, sem hét Marwa al-Sherbini og af egypsku bergi brotin, kærði Wien í sumar eftir að hann gerði grín að þjóðerni hennar. Þegar mál þeirra var tekið fyrir í Dresden í júlí réðst hann á hana með hnífi og stakk hana átján sinnum. Al- Sherbini var komin þrjá mánuði á leið er hún lést. Mikil öryggis- gæsla við dómshúsið í gær. - jab Fékk sextán ár fyrir morð: Myrti ólétta egypska konu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.