Fréttablaðið - 12.11.2009, Side 18

Fréttablaðið - 12.11.2009, Side 18
18 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR VIÐSKIPTI Gengi breska pundsins lækkaði um eitt prósent gagnvart helstu viðskiptamyntum landsins í gær eftir að Mervyn King, seðlabanka- stjóri í Eng- landsbanka, sagði lágt gengi geta dregið landið upp úr efnahagslægð- inni. Ummæli seðlabanka- stjórans féllu á blaðamannafundi í tilefni af útgáfu ársfjórðungsskýrslu um bresk efnahagsmál í gær. King sagði verðbólguþróun mesta óvissuþáttinn í efnahagsspá bankans. Þó væri gert ráð fyrir að hún myndi að mestu liggja undir tveggja prósenta verðbólgumark- miði bankans næstu þrjú ár. - jab MEÐ KARTÖFLUKRANS Stjórnarand- stæðingur á Indlandi skreytti sig með harla óvenjulegum kransi, gerðum úr kartöflum, á mótmælasamkomu gegn hækkandi matvælaverði í Nýju Delí um helgina. NORDICPHOTOS/AFP Íslandsbanki og Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík bjóða fjármálanámskeið sem eru opin öllum. Næsta námskeið verður haldið í dag kl. 17-20 í húsakynnum Háskólans í Reykjavík og er aðgangur ókeypis. Fjármálanámskeið í dag OPNI HÁSKÓLINN í háskólanum í reykjavík Nánari upplýsingar og skráning fer fram á islandsbanki.is eða í síma 599 6319. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 9 -2 0 0 2 BANDARÍKIN, AP John Allen Muhammad sagði ekki orð áður en hann var tekinn af lífi í fang- elsinu Greensville í Virginíu í fyrrinótt. Hann er talinn hafa myrt tíu manns í Washing- ton-borg og nágrenni haustið 2002, en hlaut dauðadóm fyrir eitt morðanna. Tuttugu og sjö manns höfðu safnast saman í aftökusalnum til að fylgjast með, þar á meðal hópur ættingja þeirra sem Muhammad myrti. Sumir þeirra ræddu við fjölmiðla og lýstu ánægju sinni með líflátið. „Mér líður betur. Ég á auðveldara með að anda,“ sagði Nelson Rivera, en eiginkona hans, Lori Ann Lewis-Rivera, var ein þeirra sem Muhammad myrti haustið 2002. „Ég er ánægður vegna þess að hann á ekki eftir að særa fleiri.“ Öðrum hefði þó fundist betra að Muhammad hefði sagt eitthvað á dauðastund- inni. „Ég hefði kosið að hann hefði einhvern tímann í ferlinu tekið ábyrgð og sýnt iðrun,“ segir Bob Meyers. „Við fengum ekkert slíkt í kvöld.“ Meyers er bróðir Deans Harolds Meyers, mannsins sem Muhammad fékk dauðadóm fyrir að myrða. Fyrir utan var hins vegar mættur hópur andstæðinga dauðadóma, sem mótmælti aftökunni. Einn þeirra bar skilti, sem á stóð: „Við minnumst fórnarlambanna, en ekki með því að drepa fleiri.“ Muhammad myrti tíu manns úr launsátri á þriggja vikna tímabili þegar hann ferðað- ist um svæðið ásamt ungum pilti, Lee Boyd Malvo, á bifreið sem var útbúin þannig að hann gat skriðið aftur í skottið og skotið þaðan út á fólk, án þess að vekja athygli. Malvo var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir hlutdeild sína í morðunum. Enn er ekki alveg ljóst hvað vakti fyrir Muhammad. Malvo segir hann hafa ætlað að krefjast 10 milljóna dala frá stjórnvöldum. Þetta fé hafi hann ætlað að nota til þess að reisa hryðjuverkaþjálfunarstöð fyrir heimil- is laus börn í Kanada. Fyrrverandi eiginkona Muhammads er hins vegar sannfærð um að hann hafi ætlað sér að myrða hana. Með því að myrða fleiri en hana eina hafi hann ætlað að draga úr líkum á því að grunur félli á sig. gudsteinn@frettabladid.is John Allen Muhammed var þögull á dauðastundinni Nærri þrjátíu manns fylgdust með þegar leyniskyttan John Allen Muhammad var tekinn af lífi í Banda- ríkjunum í fyrrakvöld. Ættingjar fórnarlamba hans fögnuðu. Hópur andstæðinga dauðadóma mótmælti. ÆTTINGJAR MUHAMMEDS Á BÆN Muhammed myrti tíu manns í október 2002 ásamt ungum pilti, Lee Boyd Malvo, sem var dæmdur í ævilangt fangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MERVYN KING Veikt pund gott fyrir Bretland: Býst við lítilli verðbólgu REYKJAVÍK Framsóknarmenn ætla að kjósa á milli frambjóðenda á lista flokksins fyrir borgar- stjórnarkosningarnar í vor á sér- stökum kjörfundi laugardaginn 28. nóvember. Þegar hefur verið auglýst eftir frambjóðendum og rennur frest- ur til að tilkynna framboð út á miðnætti á laugardag. Allir félagsmenn í framsókn- arfélögunum í Reykjavík hafa atkvæðisrétt á kjörfundinum. Óskar Bergsson er eini borg- arfulltrúi framsóknarmanna í Reykjavík. - bþs Framsókn í höfuðborginni: Kosið á listann VIÐSKIPTI Tveir fyrrverandi sjóð- stjórar vogunarsjóða hjá banda- ríska fjárfestingarbankanum Bear Stearns voru sýknaðir af ákærum um sviksamlegt athæfi í Bandaríkjunum í fyrradag. Þeim var gefið að sök að hafa falið slæma fjárhagsstöðu sjóðanna. Sjóðirnir fjárfestu á banda- rískum fasteignalánamarkaði og fóru á hliðina samhliða verð- falli á markaðnum. Staða þeirra kom ekki í ljós fyrr en bankinn JP Morgan krafðist aukinna veða fyrir lánum. Bear Stearns varð gjaldþrota á vordögum 2008. Við rannsókn á falli bankans kom í ljós að sjóðirn- ir voru báðir mjög skuldsettir. - jab Sjóðstjórar sýknaðir vestra: Töpuðu á fast- eignamarkaði ÁNÆGÐUR MEÐ NIÐURSTÖÐUNA Annar fyrrum sjóðstjóranna var glaður í bragði þegar hann kom út úr dómshúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP JOHN ALLEN MUHAMMAD Leyniskyttan sést hér með lögfræðingum sínum þegar dómurinn var kveðinn upp. Ég hefði kosið að hann hefði einhvern tímann í ferlinu tekið ábyrgð og sýnt iðrun. BOB MAYERS BRÓÐIR EINS FÓRNARLAMBA MUHAMMAD

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.