Fréttablaðið - 12.11.2009, Síða 24
24 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
Siður er að senda jólakort
til vina og ættingja með
ljósmynd af fjölskyldunni
eða börnunum. Að senda
sextíu slík kort getur hlaup-
ið á bilinu ríflega 8.000
krónur til 15.000 krónur eft-
ir því hvaða leið er farin.
Þegar sex vikur eru til jóla eru
eflaust margir farnir að leiða
hugann að ýmsu sem tengist und-
irbúningi hátíðarinnar. Margir
senda jólakort til ættingja og vina.
Þeir sem eiga börn hafa gjarnan
mynd af þeim á kortunum og leyfa
þannig velunnurum að fylgjast
með ungviðinu.
Samkvæmt óformlegri könnun
Fréttablaðsins kosta sextíu kort
með mynd á bilinu 4.000 til 11.000
krónur komin í frímerkt umslag
og eru þau ódýrustu heimagerð
með framkallaðri ljósmynd en þau
dýrustu, dýrasti möguleikinn á til-
búnum kortum hjá þeim verslun-
um sem upp á það bjóða. Við þetta
bætist svo kostnaður við frímerki
sem er 70 krónur stykkið.
Ýmsar leiðir eru færar þegar
búið er til jólakort með mynd.
Ein sú allraeinfaldasta er að velja
mynd af fjölskyldunni eða börn-
unum, sem er kannski algeng-
ara. Þegar jólamyndin í ár hefur
verið valin þá er hægt að fara inn
á vefi verslana og fyrirtækja sem
bjóða upp á prentuð jólakort með
fjölbreytilegu útliti. Næsta skref
er að velja kortið sem fellur að
smekk fjölskyldunnar. Þá er hægt
að fara að fikta í textanum en flest
fyrirtækin bjóða upp á að textinn
sé einnig prentaður, ekki bara hin
klassíska jólakveðja. Þá fá ætt-
ingjar og vinir sannarlega sömu
jólakveðjuna en verkið er auðunn-
ið og þægilegt.
Fréttablaðið hafði samband við
Hans Petersen, Odda, Samskipti
og Ljósmyndavörur ehf. við gerð
þessarar greinar og komst að því
að verð á kortum með mynd fer
eftir fjölda korta sem er pantað-
ur. Lágmarkspöntun eru tíu til tut-
tugu kort. Sérstaklega var kannað
hvað sextíu kort kosta og var verð
á þeim fjölda á bilinu 7.500 krónur
til 10.740 krónur hjá þessum fyrir-
tækjum, dýrast hjá Odda, en ódýr-
ast hjá Ljósmyndavörum og Sam-
skiptum, en þar á reyndar eftir
að bæta við umslögum þannig að
verðið er ekki sambærilegt.
Einnig er úrval á útliti og korta-
stærðum mismunandi og ljóst að
fólk þarf að skoða vefina til að
finna hvaða kort að sínum smekk.
Þess má geta að ekki er búið að
setja upp jólakortavefinn hjá
Ljósmyndavörum ehf. Yfirleitt
tekur nokkra daga að fá kortin
afgreidd.
Önnur og ódýrari leið sem
hægt er að fara er að láta fram-
kalla myndir og líma þær á heima-
gert kort úr kartoni. Hjá verslun
Eymundsson í Hallarmúla fengust
þær upplýsingar hjá Önnu Jensen
að þar væri hagkvæmt að kaupa
pakka með 50 blöðum í A4 stærð
sem skorin í tvennt gefa efni í 100
samanbrotin kort. Slíkur pakki
kostar 1.640 krónur, þannig er
stykkið af kortinu strípuðu á
rúmlega 16 krónur. Umslög af
ódýrustu gerð kosta svo 385 krón-
ur 25 stykki. Þannig er tiltölulega
einföld leið að líma mynd inn í
kortið, skreyta forsíðuna og skrifa
textann einnig inni í. Hún bendir
þó á að mynd í stærð 10x15 pass-
ar ákkúrat inn í svona kort sem
sumum þykir ekki nógu fallegt.
Anna segir kortagerðafólk
þegar farið að huga að jólunum
og viða að sér efni. Hún bendir
fólki sem gerir kortin sín sjálft á
að passa upp á að þau passi í hefð-
bundin umslög, stór umslög geti
verið ansi dýr og þannig hleypt
verðinu upp.
Óformlegur verðsamanburður
Fréttablaðsins leiðir í ljós að þessi
kort eru töluvert ódýrari en kort
verslananna en þau kosta vita-
skuld miklu meiri vinnu.
Verð á frímerkjum fyrir jóla-
kort innanlands eru 70 krónur og
er síðasti öruggi skiladagur þeirra
19. desember.
sigridur@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um tölvugerð
jólakort með mynd:
www.samskipti.is
www.hanspetersen.is
www.ljosmyndavorur.is
www.oddi.is
Heimagerð jólakort með
ljósmynd mun ódýrari
UPPÁHALDS JÓLASKRAUTIÐ Margir stilla jólakortum upp til að gestir og gangandi geti
virt þau fyrir sér. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
■ 60 heimatilbúin kort með mynd og í ódýru umslagi, 4.150**
■ 60 kort og myndir, kaupandi þarf sjálfur að líma myndina
inn, 7.500 krónur í Hans Petersen (Verð í fyrra, ekki komið
nýtt verð).
■ 60 kort hjá Hans Petersen, neytandi velur útlit í tölvunni og
pantar í gegnum hana, 7.800 krónur, með umslögum.
■ 60 kort hjá Samskiptum, ýmiss konar útlit og stærðir. Verð á
bilinu 7.500 til 8.500 krónur, án umslaga.
■ 60 kort hjá versluninni Ljósmyndavörum, verð á bilinu 7.500
kr. til 8.400 kr. með umslögum.
■ 60 kort hjá Odda, verð á bilinu 9.540 kr. til 10.740 kr. með
umslögum.
■ 60 frímerki innanlands, 4.200 kr.
* Upplýsingar eru ekki tæmandi og ekki var um formlega
verðkönnun að ræða heldur hringt í fyrirtækin og heimasíður
þeirra skoðaðar.
** Verð á kartoni og umslögum er fengið hjá Eymundsson,
miðað við 100 kort. Hér vantar hins vegar efniskostnað
vegna penna, líms og skrauts á kortin.
VERÐDÆMI Á 60 JÓLAKORTUM MEÐ MYND*
JÓLAKORT Efniviður til heimagerðra korta fæst til dæmis í
ritfangaverslunum. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Shell hefur nú bæst í hóp olíufélaga sem
birta aðeins algengasta verð á eldsneyti á
heimasíðu sinni. Þetta telja Neytendasam-
tökin bagalegt og gagnrýna á heimasíðu sinni, www.ns.is.
Greint er frá því að N1 hafi tekið upp þennan sið fyrir
nokkrum árum og Olís einnig. Nú hafi Shell bæst í þennan
hóp og birti ekki lengur verð á einstökum stöðvum og birti
einnig algengasta verðið.
Neytendasamtökin segja þróunina slæma, því með þessu séu stóru olíufé-
lögin að draga úr verðupplýsingum og þar með möguleikum neytenda til að
fylgjast með verði.
Það skal tekið fram að Atlantsolía, Orkan og ÓB birta verð á öllum stöðvum
sínum á heimasíðum sínum.
■ Neytendasamtökin gagnrýna skort á upplýsingum:
Shell birtir bara algengasta eldsneytisverð
Fimm svefnherbergja íbúð í Hong Kong seldist nýverið á hæsta fermetraverði
sem um getur í heiminum að því er norska dagblaðið Aftenposten greinir frá.
Fermetraverðið var ríflega 12 milljónir íslenskra króna og íbúðin, sem er 572
fermetrar, kostaði því ríflega sjö milljarða króna. Íbúðin er í fjölbýlishúsi sem er
eins og gefur að skilja í glæslegri kantinum. Sex hæðir eru bílastæði, ein hæð
er undir klúbb og 39 eru með íbúðum. Íbúðin umrædda er til að mynda með
eigin útisundlaug og líkamsræktarsal. Þess má geta að íbúðin á hæðinni fyrir
ofan verður brátt seld og vonast eigandinn eftir 17 milljónum á fermetrann.
■ Hvað kostar?
Dýrasta íbúð í heimi
Metnaðarfullir kortagerðarmenn geta viðað að
sér þekkingu á ýmsum námskeiðum í nóvember.
Næstkomandi þriðjudag verður eitt slíkt haldið í
Garðheimum. Það hefst klukkan sjö og stendur í
klukkutíma. Námskeiðið kostar 1.000 krónur og
felst í sýnikennslu og fræðslu. Boðið er upp á kaffi
og afslátt á vörum meðan á námskeiði stendur.
Verslunin Föndra stendur fyrir kortagerðarnám-
skeiði 17. og 24. nóvember. Það kostar 3.500 kr. en
efni er innifalið. Í Garðheimum verður og námskeið í aðventu- og hurðakransa-
gerð laugardaginn 21. nóvember og sunnudaginn 22. nóvember frá eitt til tvö.
■ Námskeið sem tengjast jólaskreytingum:
Kortagerð og kransar
Útgjöldin
> Verðþróun kílóverðs af hveiti frá árinu 2005, miðað
við verð í ágústmánuði hvers árs.
„Ég sker alltaf
niður sveppi með
eggjaskera, það
svínvirkar. Þá er
snilld að setja
hráa laukinn undir
kalt vatn áður
en maður brytjar
hann niður svo
maður tárist ekki.
Það virkar alltaf.
Ég lærði líka um daginn að setja kalt
vatn beint ofan í pottinn þegar maður
er búin að sjóða spagettí, þá festast
þau aldrei við pottinn. Af hverju vissi
ég þetta ekki fyrr? Hef alltaf verið
að lenda í vandræðum með fast
spagettí.“
HÚSRÁÐIÐ
VÆTI Í PAPPÍRNUM
■ Magnús Hlynur Hreiðarsson, garð-
yrkju- og fréttamaður á Selfossi, lumar
á aðferðum sem virka í eldhúsinu.
2005 2006 2007 2008 2009
74 kr.
86 kr. 85 kr.
112 kr.
144 kr.
Heimild: Hagstofa Íslands.
„Sófi Einars Benediktssonar sem ég fékk á eina
krónu er tvímælalaust bestu kaupin mín um
ævina,“ segir Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur.
Hún sá sófann fyrst þegar hún fór í viðtal í
menntamálaráðuneytinu fyrir um tólf árum
og var boðið að setjast í hann. Hún féll fyrir
sófanum, sem er þriggja sæta, og var boðið
að kaupa hann. „Maðurinn sem ég talaði
við vildi ekki gefa mér hann en
sagðist myndu selja mér hann fyrir
eina krónu.
Elísabet telur sófann hljóta að
vera um hundrað og fimmtíu ára
gamlan. Hann hafi verið fallegur
í ráðuneytinu á sínum tíma en
nú sé hann slitinn og lúinn.
„Þetta er nú orðið rónasófi,“
bendir Elísabet á.
Þrátt fyrir góða kosti telur
Elísabet sófann jafnframt verstu
kaup sín. „Ég fékk einu sinni
bólstrara í heimsókn til að
kíkja á hann. Bólstrun hefði
kostað tvö hundruð þúsund.
Það var of dýrt fyrir mig og
því velti ég því fyrir mér að
gefa hann útrásarvíkingum,
þeir hefðu efni á að gera hann
upp. En ég var feimin við það
og sit uppi með sófann,“ segir
Elísabet sem um árabil hefur
staðið frammi fyrir því að eiga
illa farinn og snjáðan sófa sem
hún vill ekki eiga á sama tíma
og hún fær bestu hugmyndirn-
ar þegar hún sest í hann. „Við
sófinn erum í tilfinningasam-
bandi,“ segir hún.
NEYTANDINN: ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR RITHÖFUNDUR
Sófi Einars Ben sá besti og versti
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki