Fréttablaðið - 12.11.2009, Síða 34
LIAM GALLAGHER , söngvari hljómsveitarinnar Oasis, þykir hafa
sérstakan smekk. Hann stofnaði í ár fatamerkið Pretty Green og 7.
nóvember síðastliðinn var frumsýnd haust- og vetrarlína merkisins.
Flestir setja grisjur í samband
við borðtuskur og sáraumbúðir en
Elva Björg Pálsdóttir hefur fundið
leið til að sauma úr þeim föt.
„Ég hef verið að hanna og
sauma síðan ég var lítil og hef alla
tíð haft gaman af því að leika mér
með óhefðbundin efni og endur-
nýta það sem er hendi næst. Mað-
urinn minn, sem er vélstjóri á sjó,
notar grisjur til að þrífa vélarn-
ar og datt mér í hug að prófa að
sauma úr þeim föt. Ég hafði
lengi velt því fyrir mér
hvort það væri hægt en
faðir minn og bróðir eru
einnig sjómenn og hef
ég því oft haft efnið í
kringum mig. Fötin eru
nú aðgengileg á fés-
bók undir nafninu
E-mode og hef ég
þegar fengið góð
viðbrögð,“ segir
Elva.
Hún þvær og
litar grisjurnar
og gerir úr þeim
peysur, kjóla ,
leggings og klúta.
Mér finnst efnið
koma skemmtilega
út þegar búið er að
eiga við það og það er
ótrúlega þægilegt. Það er
hlýtt, enda úr hundrað pró-
sent bómull, en samt svitnar
maður ekkert.“
Í sumar flíkurnar notar
Elva eingöngu grisjur en
henni finnst líka flott að
blanda þeim við annað efni
og hafa til dæmis ermar eða
kraga úr grisju en annað úr
jersey eða öðrum hefðbundn-
ari efnum.
Elva, sem er útskrifuð af hand-
íðabraut frá Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti, leggur mikið upp
úr áferð og hefur hug á að læra
textíl- eða fatahönnun. „Ég sauma
úr öllum mögulegum efnum en
hnýti þau og lita á ýmsan veg.
Elva heldur tískusýningu með
nemendum í útskriftaráfanga
handíðabrautar Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti 26. nóvember
næstkomandi klukkan 20.30 og
þar verður hægt að berja fötin
augum. vera@frettabladid.is
Býr til föt úr grisjum
Elva Björg Pálsdóttir hefur lengi haft gaman af því að sauma úr óhefðbundnum efnum og er nýfarin að
gera föt úr grisju. Útkoman er merkilega góð og hefur Elva fengið fínustu viðbrögð.
Mikið er af sjómönn-
um, sem nota grisju
við störf, í kringum
Elvu og hafði hún
lengi velt því fyrir
sér hvort hægt
væri að sauma úr
þeim föt.
Elva leggur mikið upp úr lit og áferð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Skór & töskur
Sérverslun með
FÁKAFENI 9
(við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18
& laugard. 11-16
www.gabor.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Ný dúnúlpusending
www.eirberg.is • 569 3100
Stórhöfða 25
Viðurkenndar
stuðningshlífar
• Veita góðan stuðning
• Vandaður vefnaður
með góðri öndun
• Einstök hönnun
• Viðurkennd gæði
• Fjölbreytt úrval
!
"#$%
&'( )* +
,-%,.,/,-%,.,0&
teg. Suzanna - virkilega flottur
push up fyrir brjóstgóðar
í D,DD,E,F,FF,G skálum
á kr. 6.885,-
teg. Amelia
glæsilegur í D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr. 6.885,-
20% afsláttur af BASLER vörum
18. okt. - 18. nóv
HAUSTDAGAR
BASLER • PARÍSARTÍZKAN • Skipholti 29b • S. 551 0770
Auglýsingasími
– Mest lesið