Fréttablaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 36
 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR4 Nicolas Sarkozy Frakk-landsforseti er ekki einn um að stinga mannrétt-indabrotum kínverskra stjórnvalda undir stól þegar pen- ingar og viðskipti eru annars vegar. Sama má segja um flesta aðra þjóðarleiðtoga og víst er að á krepputímum verður vald pen- inganna enn meira. Lúxusiðnað- urinn er þar engin undantekning og hefur þessum markaði vaxið fiskur um hrygg í Kína á síðustu árum. Sífellt feiri Kínverjar hafa nú efni á lúxusvarningi og tísku- húsunum fjölgar um tugi ef ekki hundruð á ári hverju. Til dæmis opnar Balenciaga tvær búðir í ár og tvær á næsta ári og Chan- el fjölgar sínum sölustöðum úr þremur í fimm á þessu ári. Louis Vuitton sem hefur nú þegar opnað 32 búðir í Kína opnaði á dögun- um sína fyrstu í Mongólíu, Gucci er með 29 búðir og Cartier með 32. Tala franskra tískuhúsa hefur þrefaldast á fjórum árum og eru þær nú 1.600 í Kína, þar af 272 í höndum tískuhúsanna sjálfra en ekki í höndum heimamanna sem kaupa lagerinn og selja í nafni hönnuðarins. Þetta sýnir hversu mikilvægur markaðurinn er tal- inn af stjórnendum fyrirtækj- anna. Tískuhúsin opna ekki leng- ur á ríkari svæðum landsins eins og í Peking eða Sjanghæ þar sem bling-bling stíllinn ræður ríkjum heldur einnig í fjarlægari lands- hlutum þar sem enn má sjá vagna dregna af nautum fara framhjá útstillingargluggum fínu versl- ananna. Annað sem hefur breyst er að fínu merkin eru ekki aðeins seld í stórum verslunarhúsum heldur eru tískuhúsin nú sjáan- leg á verslunargötum sem eru að breytast í fínustu verslunargötur á heimsmælikvarða. Nú er ekki lengur talað um Jap- ana sem mikilvægustu viðskipta- vinina í Asíu, bæði vegna efna- hagskreppunnar í Japan en ekki síður því að Kína er á örfáum árum orðinn annar stærsti lúxus- markaðurinn í heimi hjá Vuitton og Gucci svo dæmi séu tekin og sá stærsti hjá öðrum. Tískuhús- in prísa sig sæl um að hafa kín- verska markaðinn í kreppunni. Kínverjar eru 1,3 milljarðar í dag og PIB í landinu hækkar um átta prósent á árinu 2009. Það segir sig því sjálft að fínu tískuhúsin væru í erfiðari aðstöðu í heims- kreppunni ef þessa markaðar nyti ekki við. Meðan sala á ilm- vötnum, töskum og úrum dregst saman um 8-16 prósent í Evr- ópu, Bandaríkjunum og Japan þá eykst salan á sama tíma í Kína um tíu prósent. Þessi þróun hófst hægt og rólega upp úr 1992 en síðan 2004 er hægt að tala um sprengingu í lúxusgeiranum og þó að búast megi við því að markað- urinn verði á endanum mettaður eru Brasilía og Indland í start- holunum og verða sjálfsagt næsti áfangastaður landkönnuða lúxus- geirans. bergb75@free.fr Kína Eldóradó lúxusiðnaðarins ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR Bergþór Bjarnason skrifar frá París Umhverfið er tískuvörurisanum Gucci hugleikið. Fyrirtækið hefur heitið átakinu Rainforest Action Network stuðning sinn. Tískuvörufyrirtækið Gucci vill vinna gegn eyðingu regnskóg- anna samkvæmt heimasíðu tísku- tímaritsins Vogue. Gucci, sem á tískuvörumerkin Balenciaga, Yves Saint Laurent og Alexander McQueen, hefur lýst yfir stuðningi við Rainforest Action Network og heitið því að nota ekki pappír úr indónesískum regnskógum eða aðrar plöntuafurðir þaðan í tösk- ur sínar. Mimma Viglezio, talsmað- ur Gucci, segir regnskóga ekki vera lúxus heldur lífsnauðsyn ef stöðva á hlýnun jarðar og vonast til að ákvörðun Gucci verði öðrum tískuvörufyrirtækjum til eftir- breytni. Lafcadio Cortesi, formaður Rainforest Action Network, segir Gucci-samsteypuna sýna bæði gott fordæmi og forsjálni með stuðningi sínum. Gucci vill bjarga regn- skógunum Gucci hefur heitið því að nota ekki pappír frá indónesískum regnskógum eða aðrar plöntuafurðir þaðan í töskur sínar. Kjóllinn sem Marilyn Monroe klæddist þegar hún söng afmælissönginn fyrir John F. Kennedy var alsettur 6.000 gervidemöntum. Hann var seldur á upp- boði árið 1999 fyrir 1,26 milljónir dollara. af netinuTímapantanir 534 9600 Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur -www.heyrn.is Bjóðum úrval af döskum ReSound heyrnartækjum * Heyrnarþjónusta * Heyrnarvernd * Heyrnarmælingar * Heyrnartæki * Ráðgjöf Hjá Heyrn er veitt alhliða þjónusta til að bæta úr heyrnarskerðingu undir faglegri ábyrgð Ellisifjar K. Björnsdóttur, heyrnarfræðings. Ellisif K . Björnsdóttir heyrnar fræðingur jóð rval af önskum ReSound heyrnat j Ellisif K . Björnsdóttir heyrnar fræðingur Uppboðshúsið Christie’s heldur í næstu viku uppboð á munum úr eigu Yves Saint-Laurent. Þetta er í annað sinn sem slíkt uppboð fer fram. Í sept- ember í fyrra, fjórum mánuðum eftir lát Saint-Laurent, tilkynnti ástmað- ur hans, Pierre Bergé, að hann ætlaði að selja flesta þá listmuni sem þeir félagarnir hefðu safnað að sér á fimmtíu árum. Uppboðið var haldið í febrúar 2009 og var kallað uppboð aldarinnar af mörgum. Þar voru 700 munir úr eigu þeirra boðnir upp og seldir fyrir 342 milljónir evra. Nú verða boðnir upp fjölmargir listmunir á borð við málverk eftir Fernand Leger auk annarra hluta eins og ferðatöskur frá Hermes og Mercedes Benz-bifreið Saint-Laurent. Uppboðið fer fram dagana 17. til 19. nóvember og er áætl- að að munirnir muni hala inn milli þrjár og fjórar milljónir evra. - sg Bifreið Saint-Laurent boðin upp Í FEBRÚAR SELDUST MUNIR TÍSKUHÖNNUÐARINS FYRIR 340 MILLJÓNIR EVRA. NÚ VERÐA BOÐNIR UPP ENN FLEIRI MUNIR. Kínverskur vasi frá sextándu öld sem metinn er á 60 þúsund evrur. Gotneskt billjardborð af heimili Saint-Laurent og Bergé. stÓrviÐburÐur Þú og Ég dúettinn Helga Möller og Jóhann Helgason mæta á 80´s Club Grensásvegi 5-7 og skemmta gestum okkar á ljósagólfinu í tilefni 30 ára starfsafmælis Þú og Ég. Taka þau öll sín vinsælustu lög sem þau gerðu á ljósagólfinu í Hollywood fyrir 30 árum ásamt Villa Ástráðs sem spilar öll bestu 80´s lögin langt fram á nótt. “Þú og Ég“ föstudagskvöldið 13 nóv 2009. Forsala miða í dag og á morgun frá kl. 17:00 til 22:00 á 80´s Club Grensásvegi 5-7. Miðaverð er í forsölu aðeins 1,000 kr og 1,900 kr við innganginn. Þú og Ég byrja stundvíslega kl. 01:00. Muna 30 ára aldurstakmarkið og snyrtilegur klæðnaður ! Sjáumst brosandi hress á 80´s Club um helgina. B o l t i n n a l l t a f í b e i n n i . K a l d u r á k r a n a á t i l b o ð i . fÖstudaginn 13. nÓv.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.