Fréttablaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 38
 12. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● nærfatnaður & náttföt Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is Sími: 512 5439 ● Í MARILYN MONROE- STÍL Mynd sem tekin var á Langa- sandi í Kaliforníu af keppendum um titilinn Miss Universe árið 1957 sýnir að þær klæddust efnismikl- um sundbolum miðað við það sem síðar komst í tísku. Síddin minnir á minipils nútímans. Þetta snið var vinsælt þá af þorra stúlkna, meðal annars af hinni kynþokkafullu leik- konu Marilyn Monroe. Fulltrúi Íslands í keppninni á Langa- sandi árið 1957 var Bryndís Schram. Hún er fimmta frá vinstri í fremstu röð, hávaxnari en flestar hinna. MYND/ÚR BÓKINNI BROSAÐ GEGNUM TÁRIN Lífstykkjabúðin á sér hátt í ald- arlanga sögu sem er ótvírætt merki um að íslenskar konur hafa alla tíð kunnað að meta þá vöru sem þar hefur verið á boðstólum og svo er enn. Huggulegur heimafatnaður, brjóstahöld, sundbolir, samfellur og sloppar eru meðal þess sem vinsælt er í Lífstykkjabúðinni á Laugavegi 82 og úrvalið er fjöl- breytt. Við erum með flottan fatn- að fyrir konur á öllum aldri, bæði smáar og stórar, og gefum okkur út fyrir að vera með vandaða vöru en ekki eitthvað sem þarf endur- nýjunar við eftir nokkra mánuði,“ segir Berglind Sverrisdóttir versl- unarstjóri. Hún bendir meðal ann- ars á fatnað fyrir þær sem vilja líta enn betur út en áður með því að lyfta upp brjóstum eða forma þau á annan hátt. „Margar konur vilja enga sauma á brjóstahöldum en átta sig ekki á því að saumarn- ir gera mikið fyrir þær,“ tekur hún fram. Lífstykkjabúðin var stofnuð 1916 af Elísabetu Kristjánsdóttur Foss sem hafði stundað nám í líf- stykkjasaumi í Kaupmannahöfn, aðallega hjá Illum, og byrjaði í Hafnarstræti 9 í Reykjavík með eina saumavél að vopni. Reksturinn dafnaði og óx og eftir flutninga frá Hafnarstræti yfir í Kirkjustræti og þaðan í Austurstræti kom að því að hún byggði yfir starfsemina í Hafn- arstræti 11 og var þar með sex til níu stúlkur í vinnu við saumaskap og afgreiðslu. Einu erfiðleikarnir við að reka fyrirtækið stöfuðu af efnisskorti vegna gjaldeyris- skorts og innflutningshamla. Þessa sögu alla kann Guðrún Steingrímsdóttir, eigandi versl- unarinnar í dag. „Ég keypti Líf- stykkjabúðina 1993. Tók við henni af Þóri Skarphéðinssyni og Guð- jóni Hólm, þekktum kaupsýslu- mönnum í mið- borginni. Þá hafði hún flutt úr Hafn- arstrætinu á Skóla- vörðustíg og þaðan að Laugavegi 4. Þar fékk hún ekki að vera því það átti að friða húsið en hér á Lauga- vegi 82 hefur hún verið síðustu þrjú árin.“ Húsnæði búðarinnar er rúm- gott og bjart og það er hannað í líf- stykkjastíl af Guðrúnu Lilju Gunn- arsdóttur hönnuði. Til dæmis sjást sokkabönd í skermum og í mátun- arklefum. Saumaskapur á vegum verslunarinnar er löngu aflagður en allar vörur eru fluttar inn frá Frakklandi, Þýskalandi, Belgíu og hinum Norðurlandaþjóðunum. Nafn verslunarinnar er eitt af því sem alltaf hefur fylgt henni og Guðrún Steingrímsdóttir segir aldrei hafa komið til greina að breyta því þótt mikil alda hafi gengið yfir af erlendum búðanöfn- um á síðustu árum. „Það eru örfá íslensk nöfn eftir hér við Lauga- veginn fyrir utan Lífstykkjabúð- ina,“ segir hún og bendir til dæmis á Brynju, Vinnufatabúðina og Vísi. - gun Búð hönnuð í lífstykkjastíl Glæsilegar innrétt- ingar setja svip á Lífstykkjabúðina. FRÉTTA BLA Ð IÐ /H RÖ N N ● SOKKABUXUR SLÁ Í GEGN Sokkabuxur litu fyrst dagsins ljós á 7. áratugnum en fram að því höfðu konur gengið í nælonsokkum. Afbrigði af þeim höfðu áður skotið upp kollinum en það var ekki fyrr en með meiri gæðum, lækkuðu verði og tilkomu mínípilsanna að þær urðu almennt vinsælar. Restin er flestum kunn. Laugavegi 82
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.