Fréttablaðið - 12.11.2009, Qupperneq 41
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 5nærfatnaður & náttföt ● fréttablaðið ●
Nýjasta undirfatatískan frá Triumph var
sýnd á tískupöllum í Wuhan í Kína í haust
við góðar undirtektir.
Fyrirsæturnar sýndu sportleg nærföt,
blúndunærfatasett, náttkjóla og þunna
sloppa.
Samkvæmt heimildum tískufyrirtækja
fara átta prósent af því sem kínverskar konur
eyða í tískufatnað á ári hverju í nærföt en tut-
tugu prósent af því sem franskar konur eyða í
föt, fara í nærfatnað. Engu að síður vakti tísku-
sýning Triumph í Wuhan mikla lukku meðal
kínverskra kvenna. - ag
Klassísk
hvít nær-
föt eru
sívinsæl.
NORDIC-
PHOTOS/AFP
Leikmunir komu oftar en ekki við sögu á sýning-
unni í Wuhan, eins og sjá má.
Joe Boxer er engin venjuleg
manneskja – reyndar er hann
ekki manneskja heldur eitt af
frægum nöfnum í náttfatageir-
anum. Náttfötin frá Joe Boxer
eru afar skemmtileg enda fer
þar saman kímnigáfa og góð
hönnun.
„Flestir þekkja Joe Boxer-nátt-
buxurnar,“ segir Sveinbjörg
María, annar eigenda Joe Boxer-
verslananna, sem eru í Kringlunni
og Smáralind. „Þær eru úr 100
prósent bómull, raunar úr efni
sem við köllum flónel og því mjög
mjúkar. Þær hafa notið mikilla
vinsælda bæði hjá konum og körl-
um enda fjölnota. Fólk sefur ekki
aðeins í þeim heldur finnst því
ekki síður gott að smeygja sér í
þær að loknum vinnudegi þegar
það gerir húsverkin eða um helg-
ar þegar það slappar af yfir lestri
blaða og kaffibolla. Köflótt mynst-
ur er einkennandi fyrir þessar
buxur en þær eru einnig til með
broskörlum og það er sko ekki
verra í skammdeginu.“
Sveinbjörg María segir að við
náttbuxurnar séu það T-bolir með
ýmsum áletrunum og broskarl-
inum góða sem einnig eiga upp
á pallborðið hjá aðdáendum Joe
Boxer. „Við erum með gott úrval
af T-bolum með ýmsum áletrun-
um eða skemmtilegum skrípa-
myndum og táknum.“
Þeir sem vilja samsett náttföt
úr léttara efni en mjúku þurfa
ekkert að fara út úr Joe Boxer-
búðinni því þau fást þar. „Við
skiljum engan útundan. Vörulín-
an hjá okkur er alltaf að breikka
og það má segja að við bjóðum
upp á vörur fyrir allt frá nýbur-
um til níræðra. Við fengum ný-
lega ungbarnanáttföt sem hafa
verið rifin út en sú vörulína nefn-
ist Happy goodnight. Þau eru
þakin bros körlunum títtnefndu
og til í þremur litum. Þau er hægt
að fá í stærðum fyrir nýfædd börn
og upp í þriggja til fjögurra ára
aldur. Þegar börnin eru komin á
skólaaldur, svona níu ára og eldri,
eru það svokallaðar „lucky“ jogg-
ing-buxur, sem heilla. Þær eru
afar þægilegar og þeim finnst gott
að vera í þeim bæði í leikskólan-
um og skólanum. Þær fást í fjór-
um til fimm litum og nær orðið
„lucky“ niður á mitt lærið .
Sveinbjörg María segir að næst-
um tíu ár séu síðan hún og maður-
inn hennar stofnuðu Joe Boxer hér
á landi og Íslendingar hafi tekið
vörumerkinu vonum framar.
En hver er þessi Joe Boxer?
Nú hlær eigandinn áður en hann
svarar: „Joe Boxer er bara nafn
sem bandaríski hönnuðurinn Nick
Graham gaf vörumerkinu og vöru-
línunni en margir halda að hönn-
uðurinn heiti Joe Boxer, en svo er
alls ekki. Markmið hönnunarinn-
ar er hins vegar að hleypa gleði,
kátínu og brosi inn í líf fólks.“
Hleypa gleði í líf fólks
Sveinbjörg María opnaði ásamt manni sínum Joe Boxer á Íslandi fyrir áratug.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blúndur, vængir
og sloppar
Þunnir slopp-
ar komu vel
út utan yfir
nærfötunum-
frá Triumph.
1. Herraboxer
2899 kr.
3. Herra köflóttar lógó
náttbuxur
4980 kr.
Rebel ermlaus bolur
2980 kr.
4. Dömu lucky
hlírabolur
2680 kr.
köflóttar lógó
náttbuxur
4980 kr.
2. Barnanáttbuxur
4890 kr.
5. Dömu heimaföt
Lucky bolur
2980 kr.
Lucky buxur
4990 kr.
1.
2.
3.
4.
5.